Ísland í klóm myglunnar – Kerfisbundið lögleysi og stjórnsýslulegt gáleysi Sigurður Sigurðsson skrifar 14. apríl 2026 07:03 Íslenskt samfélag stendur frammi fyrir einni stærstu fjárhagslegu og heilsufarslegu ógn samtímans. Það er ekki vandi sem tengist náttúruhamförum eða efnahagslegum sveiflum, heldur vandi sem við höfum búið til sjálf með kerfisbundnu eftirlitsleysi, vanmati á náttúruöflum og rofi á ábyrgðarkeðju byggingariðnaðarins. Við erum að tala um leka- og myglufaraldurinn sem herjar á opinberar byggingar og nýbyggingar landsins. Þegar heilu skólarnir eru rýmdir og rifnir, og nýjasta og dýrasta stórhýsi landsins, Nýi Landspítalinn, er reist á grunni erlendra kerfa án íslenskrar vottunar, verðum við að spyrja: Er einhver heima í brúnni? Milljarðatjón og heilsufar barna í húfi Á síðustu misserum hafa fréttir af myglu í skólum orðið daglegt brauð. Fossvogsskóli og Brákarborg eru aðeins toppurinn á ísjakanum. Kostnaðurinn við viðgerðir á þessum tveimur skólum einum og sér hleypur á milljörðum króna. Á landsvísu erum við að tala um tugi eða hundruð milljarða í beint fjárhagstjón fyrir opinbera aðila. En það er dýrari reikningur sem fylgir þessu: heilsutjón starfsfólks og ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir börn sem eyða sínum mótunarárum í innilofti sem er mengað eitruðum sveppagróum og bakteríum. Við vitum hvernig þetta gerist. Íslenskt veðurfar er miskunnarlaust. Lárétt rigning með ofsaroki, og gríðarlegt rakastig innan frá þegar hundruð barna flæða inn í skólahúsnæði í blautum fatnaði, krefst mannvirkja sem eru hönnuð með þekkingu á staðháttum. Svo virðist sem við höfum glatað þessari þekkingu. Með lokun Rannsóknarstofnunar byggingariðnaðarins (Rb) hurfu vísindin úr byggingarferlinu. Engin sambærileg stofnun tók við til að prófa byggingarefni og kerfi gagnvart íslenskri „frost-þýðu“ hringrás eða íslensku slagveðri. Við erum í raun að gera risastóra tilraun með opinbert fé og lýðheilsu, án þess að hafa rannsóknargögnin til að styðja við framkvæmdirnar, eins og við höfðum meðan Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins starfaði. Nýi Landspítalinn: Stjarnfræðileg áhætta Alvarlegasta og eitt nýjasta dæmið um þessa þróun er bygging Nýja Landspítalans. Þessi 70.000 fermetra bygging er hjarta heilbrigðiskerfis okkar. Samt er hún klædd 30.000 fermetrum af glerútveggjum, sem sérfræðingar telja eitt áhættusamasta byggingakerfi sem hægt er að nota utaná hús á Íslandi. Kerfið er hannað af erlenda fyrirtækinu Staticus, framleitt í erlendri verksmiðju og sett upp að miklu leyti af erlendum starfskröftum. Hér vakna stórar spurningar um lögmæti. Samkvæmt Mannvirkjalögum og byggingarreglugerð eiga hönnuðir að hafa íslenska löggildingu og iðnmeistarar og sveinar sömuleiðis. Erlend kerfi eiga að undirgangast vottanir byggðum á prófunum á Íslandi sem sýna fram á veðurþol þeirra við íslenskar aðstæður. Við heyrum af því að stjórnendur verkefnisins séu ekki byggingamenntaðir og að tekið sé við erlendum byggingavottunum sem eiga lítið skylt við íslenskan raunveruleika. Ef Nýi Landspítalinn fer að leka, þá stöndum við ekki bara frammi fyrir hundruð milljarða fjárhagstjóni – við stöndum frammi fyrir bresti á þjóðaröryggi. Við eigum enga varabyggingu. Ef 70.000 fermetra sjúkrahús sýkist af myglu eða bakteríum, hvert fara sjúklingarnir - eða 70.000 fermetra sjúkrahússrekstur? Beint á götuna - eins og skólarnir. Viðvaranir frá sérfræðingum hunsaðar Á IcelAQ ráðstefnunni árið 2022 flutti Dr. Miia Pitkäranta, finnskur sérfræðingur í útveggjakerfum, erindi sem hefði átt að vera öllum ráðamönnum víti til varnaðar. Hún lýsti því hvernig bakteríur sem ræktaðar eru í útveggjakerfum sýkja fólk inni í byggingum, með skelfilegum afleiðingum fyrir ónæmiskerfið. Á Íslandi virðist þessi þekking ekki ná inn í skipulagsherbergi verktaka eða opinberra framkvæmdasýslna. Þar ráða innkaupaferli og ódýrasta boð ríkjum, en ekki krafa um vandað og vísindalega og löglega vottað handverk. Kerfið er lamað Í dag er ástandið þannig að fasteignakaupendur treysta ekki lengur nýbyggingum. Fólk leitar í eldra húsnæði sem hefur „staðið af sér storminn“, því það veit að vottun nýrra húsa er oft aðeins pappírsgagn án raunverulegs innihalds. Eftirlitið er lamað. Byggingarfulltrúar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) virðast ekki hafa tæki eða kjark til að stöðva stórframkvæmdir þar sem fagkunnáttu og lögbundnum vottunum er ábótavant. Þegar markaðurinn fyllist af erlendum iðnverkamönnum og byggingakerfum án tengingar við íslenskar lögbundnar byggingakröfur, slitnar ábyrgðarkeðjan. Meistarinn á staðnum ber ekki lengur ábyrgð á heildinni, heldur verður hann aðeins hlekkur í flóknu ferli þar sem enginn á síðasta orðið þegar leki kemur í ljós. Lausnin: Rafrænt rauntímaeftirlit og löghlýðni Við getum ekki haldið áfram á þessari braut. Við þurfum róttæka kerfisbreytingu. Í fyrsta lagi verðum við að innleiða rafrænt rauntímaeftirlit á öllum byggingarstigum. Enginn verkþáttur á að vera samþykktur nema fyrir liggi stafræn staðfesting á að: Hönnuðurinn sé með íslenska löggildingu og hafi tekið tillit til íslenskra aðstæðna. Iðnaðarmennirnir á staðnum hafi sannanlega menntun og lögbundin réttindi. Byggingarefnið sé sérstaklega vottað fyrir íslenskt veðurfar og loftslag. Ef þessi gögn vantar í miðlægt kerfi á framkvæmdin að stöðvast sjálfkrafa. Það á ekki að vera hægt að „loka“ byggingu fyrr en tæknilegt gæðaeftirlit hefur verið staðfest með myndum og gögnum á hverju einasta stigi, af hlutlausum fagaðila. Í öðru lagi þurfum við að endurreisa Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins. Við þurfum stað sem framkvæmir slagveðursprófanir og frost-þýðu rannsóknir á nýjum kerfum eins og glerhjúpum Landspítalans áður en þau eru sett upp, en ekki eftir að skaðinn er skeður. Lokaorð Það er kominn tími til að stjórnmálamenn og yfirvöld mannvirkjamála vakni. Við getum ekki leyft okkur að byggja hús sem gera okkur veik. Við getum ekki leyft okkur að kasta tugum milljarða af almannafé í viðgerðir sem hefði mátt koma í veg fyrir með vönduðu eftirliti og fullri virðingu fyrir lögum. Nýi Landspítalinn má ekki verða minnisvarði um kerfislegt gáleysi. Hann á að vera hús lækninga, en ef við höldum áfram að hunsa kröfur um lögmæti, vottun og staðbundna þekkingu, gæti hann endað sem dýrasta og flóknasta „mygluhús“ sögunnar. Við krefjumst þess að byggt sé samkvæmt lögum – í raun, en ekki bara á pappír. Höfundur er byggingaverkfræðingur og áhugamaður um betra samfélag Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurður Sigurðsson Mest lesið Halldór 31.10.26 Halldór Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? skrifar Skoðun Hugmyndakassinn Perla Hafþórsdóttir skrifar Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Óðinn heldur fyrir heila augað Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar skrifar Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Sjá meira
Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson Skoðun
Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar
Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson Skoðun