Gabríel Douane í síbrotagæslu: Einn handtekinna vegna líkamsárásar í mars Ritstjórn skrifar 10. apríl 2026 16:37 Gabríel Douane Boama við aðalmeðferð í héraðsdómi 2023. Gabríel Douane Boama er einn þeirra fjögurra sem handteknir voru vegna alvarlegrar líkamsárásar í miðborginni aðfaranótt 5. mars. Gæsluvarðhald yfir honum vegna árásarinnar rann út í gær og þá var hann úrskurðaður í síbrotagæslu til 6. maí.
Fjórir voru handteknir þann 5. mars síðastliðinn vegna líkamsárásar í íbúð í miðborginni. Sá sem varð fyrir árásinni er karlmaður á fertugsaldri. Hann var fluttur á slysadeild með talsverða áverka. Tveir mannanna voru úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald þann sama dag en hinir tveir látnir lausir. Gæsluvarðhald yfir öðrum þeirra var framlengt þann 12. mars og það rann út í gær. Samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var gæsluvarðhald yfir honum framlengt í gær á grundvelli síbrotagæslu. Samkvæmt lögum um meðferð sakamála má meðal annars úrskurða mann sem grunaður er um háttsemi sem fangelsisrefsing er lögð við ef ætla má að hann muni halda áfram brotum meðan máli hans er ekki lokið. Áður hefur verið greint frá því að ekki hafi verið farið fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir hinum manninum þar sem hann var þess í stað færður til afplánunar á eldri dómi. Langt hlé nýtt í annað mál Aðalmeðferð í ótengdu máli Gabríels Douane, sem varðar þrjár ákærur í tíu liðum, fór fram í gær og í dag. Þegar hún hófst játaði hann nokkuð óvænt stóran hluta málsins og því þurfti frekari sönnunarfærsla ekki að fara fram hvað þann hluta varðar og morguninn fór að miklu leyti í að afboða vitni og brotaþola, sem ekki var lengur þörf á að taka skýrslu af. Fyrir klukkan 11 varð ljóst að næsta vitni á vitnalistanum sem þurfti að mæta hafði ekki verið boðað fyrr en eftir klukkan 13. Dómari bað sækjanda málsins um að reyna að flýta komu þess vitnis og lagði til við verjanda Gabríels að tíminn yrði nýttur í að leiða Gabríel fyrir dómara vegna gæsluvarðhaldskröfu í öðru máli, sem var á dagskrá dómstólsins síðar í gær. Samkvæmt heimildum Vísis var þar um að ræða gæsluvarðhaldskröfu í tengslum við líkamsárásina sem fjallað er um hér að framan. Handtekinn vegna stunguárásar mánuði fyrr Gabríel var handtekinn í tengslum við stunguárás í miðbæ Reykjavíkur þann 7. febrúar síðastliðinn. Samkvæmt fréttatilkynningu frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu þann 9. febrúar var hann úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna málsins til 13. febrúar. Eftir því sem Vísir kemst næst var það gæsluvarðhald ekki framlengt. Þann 9. febrúar var hann dæmdur til eins árs fangelsisvistar fyrir líkamsárás sem hann framdi í félagi við yngri bróður sinn. Gabríel að baki langan sakaferil þrátt fyrir ungan aldur. Hann losnaði til að mynda úr fangelsi þann 3. febrúar síðastliðinn eftir að hafa afplánað dóm, fjórum dögum áður en hann var handtekinn vegna stunguárásarinnar.
Dómsmál Lögreglumál Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Sinueldur í Grafarvogi Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira