Golf

Sögu­legt for­skot McIlroy að gufa upp

Sindri Sverrisson skrifar
Rory McIlroy hóf daginn með sex högga forskot á toppnum.
Rory McIlroy hóf daginn með sex högga forskot á toppnum. Getty/Maddie Meyer

Rory McIlroy er enn efstur á Masters mótinu, hálfnaður með þriðja hring, en sögulega forskotið sem hann hafði eftir fyrstu tvo hringina hefur snarminnkað.

Norður-Írinn var á -12 höggum eftir fyrstu tvo dagana, sex höggum á eftir næstu mönnum, Sam Burns og Patrick Reed, en enginn hefur áður haft svo mikið forskot þegar mótið er hálfnað.

McIlroy hóf hins vegar þriðja hringinn á að fá skolla en bætti fyrir það með fugli á þriðju braut. Hann fékk par á hinum sjö af níu fyrstu holunum og er því enn á -12 höggum.

Lowry fór holu í höggi

Fast á hæla McIlroy koma nú Cameron Young, á -10 höggum eftir 13 holur í dag, og þeir Shane Lowry og Haotong Li sem eru á -9 höggum, eftir 10 og 12 holur.

Lowry gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi á 6. braut. Það er í annað sinn sem Lowry afrekar það á Augusta National vellinum og í fimmta sinn á ferlinum sem hann nær holu í höggi.

Burns fékk tvo fugla á fyrstu átta holunum og er samtals á -8 höggum en Reed er með öllu skrautlegra skorkort því hann byrjaði á þremur fuglum og fékk svo tvo skolla, og er samtals á -7 höggum eftir 10 holur í dag.

Keppnin heldur áfram í beinni útsendingu á Sýn Sport en hægt er að sjá stöðuna með því að smella hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×