Hnífjöfn barátta fyrir lokadag Masters Sindri Sverrisson skrifar 11. apríl 2026 23:14 Rory McIlroy er búinn að missa niður sex högga forskot sitt. Getty/Hector Vivas Rory McIlroy fékk fjölda kylfinga til sín í toppbaráttuna á Masters á skrautlegum þriðja hring í dag. Spennan verður því afar mikil á lokahringnum. McIlroy náði sér engan veginn á strik í dag og fór hringinn á höggi yfir pari. Það leit þó út fyrir að hann yrði enn með forystuna þar til að hann átti of stutt pútt á 17. flöt og fékk þar sinn þriðja skolla, eftir að hafa auk þess fengið tvöfaldan skolla á 11. braut. Hann fékk einnig fjóra fugla. Cameron Young lék hins vegar stórkostlega, eða á -7 höggum, og er nú jafn McIlroy á toppnum á samtals -11 höggum. Þéttur hópur manna kemur þar á eftir og því margir sem gera tilkall til þess að klæðast græna jakkanum annað kvöld eins og McIlroy gerði fyrir ári síðan. Efstu kylfingar fyrir lokahringinn: T1. Cameron Young (-11) T1. Rory McIlroy (-11) 3. Sam Burns (-10) 4. Shane Lowry (-9) T5. Jason Day (-8) T5. Justin Rose (-8) T7. Scottie Scheffler (-7) T7. Haotong Li (-7) T9. Patrick Cantlay (-6) T9. Russell Henley (-6) T9. Patrick Reed (-6) Hápunktur dagsins var hola í höggi hjá Íranum Shane Lowry sem þar með hefur tvisvar náð draumahögginu á Masters, fyrstur manna. Hann er í 4. sæti og aðeins tveimur höggum á eftir forystusauðunum. Sam Burns, sem líkt og Patrick Reed var næstur á eftir McIlroy fyrir hringinn en þó sex höggum á eftir honum, minnkaði forskot Norður-Írans í aðeins eitt högg. Reed er hins vegar kominn niður í 9. sæti á samtals -6 höggum þrátt fyrir kraftmikla byrjun í dag. Bein útsending frá lokahringnum hefst á Sýn Sport klukkan 16 á morgun. Golf Masters-mótið Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sparkaði golfboltanum aftur inn á flötina Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir frammíköll Sleppir verðlaunaafhendingu til að losna við herskyldu Tryggði sig á PGA-mótaröðinna þrátt fyrir að meiðsli enduðu næstum feril hans Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Stendur ekki til að hleypa LIV-kylfingum að Evrópa hafði betur gegn Bandaríkjunum Horfðu á golfmót í körfubíl Dagbjartur í góðum málum á úrtökumóti DP World Tour Aron Snær fékk albatross á úrtökumóti DP World Tour Ragnar bestur allra á úrtökumóti DP World Tour í dag Gunnlaugur Árni í samstarf með Nike: „Hefur mikla þýðingu fyrir mig“ Skulda Rahm og DeChambeau milljónir dollara Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Átta Íslendingar mætast í Þýskalandi Enduðu tíu ára sigurgöngu Bandaríkjanna Tryggðu sig í efstu deild Evrópumótsins með öruggum sigri Sjá meira
McIlroy náði sér engan veginn á strik í dag og fór hringinn á höggi yfir pari. Það leit þó út fyrir að hann yrði enn með forystuna þar til að hann átti of stutt pútt á 17. flöt og fékk þar sinn þriðja skolla, eftir að hafa auk þess fengið tvöfaldan skolla á 11. braut. Hann fékk einnig fjóra fugla. Cameron Young lék hins vegar stórkostlega, eða á -7 höggum, og er nú jafn McIlroy á toppnum á samtals -11 höggum. Þéttur hópur manna kemur þar á eftir og því margir sem gera tilkall til þess að klæðast græna jakkanum annað kvöld eins og McIlroy gerði fyrir ári síðan. Efstu kylfingar fyrir lokahringinn: T1. Cameron Young (-11) T1. Rory McIlroy (-11) 3. Sam Burns (-10) 4. Shane Lowry (-9) T5. Jason Day (-8) T5. Justin Rose (-8) T7. Scottie Scheffler (-7) T7. Haotong Li (-7) T9. Patrick Cantlay (-6) T9. Russell Henley (-6) T9. Patrick Reed (-6) Hápunktur dagsins var hola í höggi hjá Íranum Shane Lowry sem þar með hefur tvisvar náð draumahögginu á Masters, fyrstur manna. Hann er í 4. sæti og aðeins tveimur höggum á eftir forystusauðunum. Sam Burns, sem líkt og Patrick Reed var næstur á eftir McIlroy fyrir hringinn en þó sex höggum á eftir honum, minnkaði forskot Norður-Írans í aðeins eitt högg. Reed er hins vegar kominn niður í 9. sæti á samtals -6 höggum þrátt fyrir kraftmikla byrjun í dag. Bein útsending frá lokahringnum hefst á Sýn Sport klukkan 16 á morgun.
Efstu kylfingar fyrir lokahringinn: T1. Cameron Young (-11) T1. Rory McIlroy (-11) 3. Sam Burns (-10) 4. Shane Lowry (-9) T5. Jason Day (-8) T5. Justin Rose (-8) T7. Scottie Scheffler (-7) T7. Haotong Li (-7) T9. Patrick Cantlay (-6) T9. Russell Henley (-6) T9. Patrick Reed (-6)
Golf Masters-mótið Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sparkaði golfboltanum aftur inn á flötina Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir frammíköll Sleppir verðlaunaafhendingu til að losna við herskyldu Tryggði sig á PGA-mótaröðinna þrátt fyrir að meiðsli enduðu næstum feril hans Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Stendur ekki til að hleypa LIV-kylfingum að Evrópa hafði betur gegn Bandaríkjunum Horfðu á golfmót í körfubíl Dagbjartur í góðum málum á úrtökumóti DP World Tour Aron Snær fékk albatross á úrtökumóti DP World Tour Ragnar bestur allra á úrtökumóti DP World Tour í dag Gunnlaugur Árni í samstarf með Nike: „Hefur mikla þýðingu fyrir mig“ Skulda Rahm og DeChambeau milljónir dollara Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Átta Íslendingar mætast í Þýskalandi Enduðu tíu ára sigurgöngu Bandaríkjanna Tryggðu sig í efstu deild Evrópumótsins með öruggum sigri Sjá meira