Ljósið elt út í haug Sigurjón Njarðarson skrifar 12. apríl 2026 15:02 „Menn geta kallað það hvað sem er. Ég hef ekki sent neitt bréf þar sem fram kemur að einhverju sé rift eða það dregið til baka.“ Þessi orð lét þáverandi utanríkisráðherra, Gunnar Bragi Sveinsson, falla í viðtali við Morgunblaðið þann 13. mars 2015. Ef við horfum svo á viðbrögð fulltrúa Evrópusambandsins við bréfum utanríkisráðherra þá bera þau öll að sama brunni. Ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks sem sat frá 2013 til 2015 dró aldrei til baka umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu frá árinu 2009. Þann 8. ágúst 2025 óskaði utanríkismálanefnd Alþingis eftir upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu, þar á meðal var óskað eftir afstöðu til slita viðræðna og afturköllunar ESB-umsóknar árið 2015 og aðgangi að öllum þeim minnisblöðum sem lágu að baki þeirri ákvörðun og framkvæmd ráðherra á þeim tíma. Ráðuneytið afhenti greinargerð sína og umbeðin minnisblöð þann 20. ágúst 2025. Þau gögn eru aðgengileg hér. Niðurstaða ráðuneytisins er mjög skýr og í fullu samræmi við orð Gunnars Braga Sveinssonar frá árinu 2015. Greinargerðin endar á þessum orðum: „Hvorki orðalag ofangreindra bréfa né málsmeðferð fyrir þinginu bera með sér að um formlega afturköllun á aðildarumsókn Íslands að ESB hafi verið að ræða heldur áréttingu á því að viðræðum hefði verið hætt og ekki ætti að líta á Ísland sem umsóknarríki. Fær þetta stoð í umræðu á vettvangi Alþingis og í samfélaginu. Viðbrögð ESB, sem hefur aldrei litið á bréf íslenskra yfirvalda sem formlega afturköllun umsóknar, eru á sömu nótum.“ Öll gögnin á borðið! Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, birti á heimasíðu sinni pistil þann 9. apríl síðastliðinn sem bar yfirskriftina „Utanríkisráðuneytið liggur á gögnum“. Gerir ráðherrann fyrrverandi þar að umtalsefni umsögn fyrrnefnds Gunnars Braga við tillögu til þingsályktunar um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna. Þar segir Gunnar Bragi að hann hafi óskað eftir öllum gögnum er vörðuðu samskipti hans við Evrópusambandið og tengdust „lúkningu málsins“. Raunar virðist Gunnar Bragi vera á þeirri skoðun að erindi hans til Evrópusambandsins í apríl 2015 hafi haft þær afleiðingar að Ísland hefði dregið aðildarumsókn sína til baka. Sem er sérstakt því að hann tiltók það sérstaklega á sínum tíma að hann hefði ekki rift neinu eða dregið neitt til baka… en látum það liggja milli hluta að sinni. Gunnar Bragi segir einnig að ráðuneytið neiti að afhenda honum þessi gögn. Hér hefði nú verið meiri sómi að utanríkisráðherrann fyrrverandi hefði skýrt í einhverju frá því hvort að ráðuneytið hefði rökstutt ákvörðun sína um að afhenda ekki gögnin og þá á hvaða grunni sú ákvörðun hefði verið. Það gerir hann ekki og lætur þess í stað að því liggja að sú ákvörðun hefði verið tekin á pólitískum forsendum, sem er mjög alvarlegt ef satt væri. Í stað þess að líta gagnrýnum augum á umsögn utanríkisráðherrans fyrrverandi fellur Björn Bjarnason í þá gryfju að elta ljósið út í haug. Raunar bætir hann í og endar pistilinn á þessum orðum: „Til að unnt sé að grandskoða allt sem gerðist við slit íslensku ríkisstjórnarinnar á viðræðunum við ESB í mars 2015 er óhjákvæmilegt að utanríkisráðuneytið leggi gögn málsins á borðið. Án þeirra er útilokað fyrir þjóðina að taka upplýsta ákvörðun. Hvað vill utanríkisráðuneytið fela?“ Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Björn Bjarnason hefur ýjað að því að utanríkisráðuneytið hagi sínum málum með annarleg sjónarmið að leiðarljósi. Nú skal það viðurkennt að undirritaður hefur lengi borið virðingu fyrir Birni Bjarnasyni. Hann hefur um árabil verið í farabroddi þegar kemur að því að standa vörð um Evrópusamvinnu og alþjóðamál. Hann vann fjölda góðra verka bæði sem alþingismaður og ráðherra og hans fótspor í íslensku samfélagi munu lengi sjást. Því er það virkilega miður að hann feti niður þá slóð að gera íslenska stjórnsýslu tortryggilega, að því er virðist með það eitt að markmiði að þvæla um fyrir eðlilegri samfélagsumræðu. Þetta eru vonbrigði. Björn Bjarnason veit líka fullvel að utanríkismálanefnd getur óskað eftir þeim gögnum sem Gunnar Bragi vísar til. Hann veit líka fullvel að um afhendingu gagna fer eftir lögum og að ef þau fást ekki afhent ber að gera það með rökstuðningi. Staðreyndin er sú að ekkert bendir til þess að ráðuneytið liggi á einhverjum gögnum sem leiðrétta tilvitnuð orð þáverandi utanríkisráðherra um að erindi hans hafi leitt til þess að „einhverju sé rift eða það dregið til baka“. Það er vonandi að þessu fari nú að linna. Höfundur er lögfræðingur og framkvæmdastjóri þingflokks Viðreisnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurjón Njarðarson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Útlensk skólabörn, íslenska og enska Roza Matijević Ismailovski Skoðun EES-líflínan er tekin að trosna Einar Karl Haraldsson Skoðun Una 72% evrópubúa sér vel í Evrópusambandinu? Andri Sigurðsson Skoðun Hvers vegna vil ég sem Austurríkismaður hvetja Íslendinga til að segja NEI þann 29. ágúst? Stephan Zanzerl Skoðun Vaxtaþrælarnir og hinir Ingólfur Sverrisson Skoðun „Viltu koma út að leika?“ Hallgrímur Helgason Skoðun Hvað vilja ólígarkarnir að þú kjósir 29. ágúst?" Jón Þór Ólafsson Skoðun Þetta er líka sagt af mikilli virðingu Ólafur Margeirsson Skoðun Hvað ef þú hefur rangt fyrir þér? Eyþór Eðvarðsson Skoðun Lyfjamál og ESB Einar Magnússon Skoðun Skoðun Skoðun Ísland þarf raunhæfar lausnir — ekki óútskýrðar stærðir og óraunhæfar sviðsmyndir Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun „Viltu koma út að leika?“ Hallgrímur Helgason skrifar Skoðun Vaxtaþrælarnir og hinir Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Una 72% evrópubúa sér vel í Evrópusambandinu? Andri Sigurðsson skrifar Skoðun EES-líflínan er tekin að trosna Einar Karl Haraldsson skrifar Skoðun Útlensk skólabörn, íslenska og enska Roza Matijević Ismailovski skrifar Skoðun Lyfjamál og ESB Einar Magnússon skrifar Skoðun Aðilar vinnumarkaðar munu áfram gera kjarasamninga innan ESB Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Lokum ekki dyrum Þorsteinn Ólafsson skrifar Skoðun Vellystingar á yfirdrætti Elías Pétursson skrifar Skoðun Nýsköpun í Evrópu: Heildarmyndin sem Hilmar sleppur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Langmæðgur vilja sjá – frá Flatey til den Haag Guðrún Marta Jónsdóttir ,Guðrún Marta Ársælsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki bara fólkið sem þarf að spila með Andri Reyr Haraldsson skrifar Skoðun Hvað þýðir já fyrir bændur? Stefán Magnússon skrifar Skoðun Ef gervigreind sparar okkur tíma — hver fær hann? Stefán Atli Rúnarsson skrifar Skoðun Hvers vegna vil ég sem Austurríkismaður hvetja Íslendinga til að segja NEI þann 29. ágúst? Stephan Zanzerl skrifar Skoðun Hverjir óttast Evrópusambandið? Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Við erum á plastbát í ólgusjó Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Áskorun til samningsaðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda um endurskoðunneysluvísitölu og brottfall húsnæðisliðar úr neysluvísitölu skrifar Skoðun ESB, afsal eða útvíkkun á fullveldi? Karl Andersson Claesson skrifar Skoðun Kaupmáttur þjóðanna í Meistaradeild Evrópu Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Nei-fólkið mitt, þið eruð svo sæt þegar þið hlýðið Viktor Ólason skrifar Skoðun Fyrirhuguð hækkun á máltíðum fyrir eldra fólk í Reykjavík Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Ekkert plan, engin sleggja Illugi Gunnarsson skrifar Skoðun Þetta er líka sagt af mikilli virðingu Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Afhverju ég ætla að segja JÁ Sverrir Páll Einarsson skrifar Skoðun Hvað vilja ólígarkarnir að þú kjósir 29. ágúst?" Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Hvar er heilbrigðiskerfið mitt? Gunnhildur Erla Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvað ef þú hefur rangt fyrir þér? Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Kolkrabbinn, sneiðarnar og eyðing byggðarinnar Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
„
Hvers vegna vil ég sem Austurríkismaður hvetja Íslendinga til að segja NEI þann 29. ágúst? Stephan Zanzerl Skoðun
Skoðun Ísland þarf raunhæfar lausnir — ekki óútskýrðar stærðir og óraunhæfar sviðsmyndir Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Aðilar vinnumarkaðar munu áfram gera kjarasamninga innan ESB Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar
Skoðun Langmæðgur vilja sjá – frá Flatey til den Haag Guðrún Marta Jónsdóttir ,Guðrún Marta Ársælsdóttir skrifar
Skoðun Hvers vegna vil ég sem Austurríkismaður hvetja Íslendinga til að segja NEI þann 29. ágúst? Stephan Zanzerl skrifar
Skoðun Áskorun til samningsaðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda um endurskoðunneysluvísitölu og brottfall húsnæðisliðar úr neysluvísitölu skrifar
Hvers vegna vil ég sem Austurríkismaður hvetja Íslendinga til að segja NEI þann 29. ágúst? Stephan Zanzerl Skoðun