Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 13. apríl 2026 12:00 Reyðarfjörður er í Fjarðabyggð. vísir/vilhelm Leikskólagjöld og gjald fyrir sundferð í Fjarðabyggð mun lækka um þrjú prósent frá og með næstu mánaðamótum. Um er að ræða skref til að styðja við verðbólgumarkmið. Formaður bæjarráðs hvetur önnur sveitarfélög til að gera slíkt hið sama.
Það var í morgun sem bæjarráð Fjarðabyggðar samþykkti á fundi sínum tillögu um að allar gjaldskrár í A-hluta sveitarfélagsins verði lækkaðar um þrjú prósent frá og með næstu mánaðamótum. Aðgerðin er að sögn Ragnars Sigurðssonar, formanns bæjarráðs liður í því að styðja við verðbólgumarkmið og létta undir heimilum í sveitarfélaginu. Svigrúm til staðar „Við vorum að ganga frá ársreikningi sveitarfélagsins í síðustu viku og þar vorum við með jákvæða afkomu í A-hluta og í samstæðunni annað árið í röð þannig við teljum okkur hafa svigrúm til þess að stíga þetta skref og lækka gjaldskrár sem snúa að A-hluta sveitarfélagsins.“ Um er að ræða lækkun á gjaldskrá leikskóla og öllu því sem við kemur barna- og fjölskyldufólki á svæðinu. „Þetta er lækkun í tónlistarskólann, sundlaugar, líkamsrækt og svona mætti áfram telja.“ Hann hvetur bæði stjórnvöld og aðra til að stíga sambærileg skref ef svigrúm er fyrir hendi. Þetta er þriggja prósenta lækkun, hefur hún teljandi áhrif á heimili og fjölskyldur á svæðinu? „Já við erum að skila til baka þeim gjaldskrárhækkunum sem urðu við síðustu fjárhagsáætlunargerð og þetta er klárlega liður í að koma til móts við gjaldskrárhækkanir sem leiðir þá af því að ef fleiri taka þátt og við förum í samstillt átak í þessu þá verði það til að dempa verðbólguna.“ Fulltrúar Fjarðabyggðar eru ekki þeir einu sem hafa gripið til þessara aðgerða. Kópavogsbær tilkynnti í byrjun mánaðar að gjaldskrárhækkanir verði takmarkaðar við 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands. Fréttin hefur verið uppfærð eftir að ábending barst frá Kópavogsbæ.
Fjarðabyggð Fjármál heimilisins Verðlag Leikskólar Skóla- og menntamál Mest lesið Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Innlent Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Innlent Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Innlent Hættulegt að lána lyf Innlent Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Innlent Inga í veikindaleyfi Innlent Safna fyrir fjölskyldu Steinunnar sem lést við barnsburð Innlent Fleiri fréttir Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Nei eða já? Af eða á? Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Hættulegt að lána lyf Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Styttan af Séra Friðriki fer upp, bara ekki strax Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Truflanir á island.is Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Þrír mánuðir til stefnu Stefán Jökulsson er látinn Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Inga í veikindaleyfi Slagurinn um ESB og sumarhretið fyrir austan Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Bein útsending: Ópíóíðar og verkjalyf á Íslandi Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Sjá meira