Dúllur okkar daga Hallgrímur Helgason skrifar 13. apríl 2026 12:00 Fyrir síðustu jól kom út bókin Fröken Dúlla eftir Kristínu Svövu Tómasdóttur sem sló rækilega í gegn og fékk Íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki fræðirita, enda frábær lesning. Hér er um að ræða ævisögu Jóhönnu Knudsen, hins fræga kynvarðar ástandsáranna, konunnar sem fórnaði nánast öllum vökutímum sínum fyrir vernd íslensks þjóðernis, lét njósna um ungar konur og sendi þær í sveitavist ef þær sáust með útlendingum í bænum. Titill bókarinnar vakti mikla athygli, en við heimildavinnu sína komst höfundurinn að því að Jóhanna gegndi gælunafninu Dúlla. Nú eru aðrir tímar og annarskonar ástand, ástand sem hefur getið af sér glænýjar Dúllur. Þar fer fremst í flokki okkar snyrtilegi hægriöfgasveinn, Snorrri Másson, svar Íslands við hinum franska Bardella eða fyrrum kanslara Austurríkis, Kurz, sem ber nafn með rentu því fáir sátu styttra í því embætti. Það skiptir engu hversu lítilfjörleg mál koma upp í íslensku samfélagi, ef þau varða útlendinga, ef útlendingar koma við sögu, ef útlenska heyrist töluð eða veifað er útlenskum fána, þá er öfgasveinninn Snorri mættur teinréttur eins og hver önnur Jóhanna Knudsen til að veifa sínum siðgæðisfingri og vísa okkur á rétta og þjóðlega braut. Fyrir honum erum við öll djúpt sokkin í ástandið sem fyrir honum virðist jafnvel enn ógnvænlegra en það sem ríkti á hernámsárunum. Íslands eina von er Snorri Dúlla Másson. Leiðtogi Snorra í lífinu er Sigmundur Davíð, maður sem líka sér útlending í hverju horni og vill þá alla burt, en hefur að öðru leyti enga stefnu aðra en segja nei við öllum tillögum og verja með málþófi rétt Wintris-elítunnar til eigin gróða auk þess sem hann mætir öllum alþjóðamálum í ósamstæðum skóm. Þá var formaður Miðflokksins svo óheppinn með skrifstofuglugga í nýrri viðbyggingu Alþingis að hann sér nú einungis erlenda fána út um gluggann sinn sem blakta þar á stöngum Ráðhússins. Það eru palestínski fáninn, sá úkraínski, rauðhvítur fáni Grænlands og svo bannsettur regnbogafáninn. Um þessa hneisu fjallar önnur hver færsla hans. Hann er eins og maðurinn sem sá ekki til sólar fyrir eigin skoðunum. Sigmundur Dúlla Gunnlaugsson. Næst berum við niður hjá Karli Gauta Hjaltasyni, sjálfskipuðum umboðsmanni Trump í friðarmálum. Hann dúllaði vel yfir sig í þinginu á dögunum þegar hann hrópaði úr ræðustól þess: „Hamasliðar á Höfðatorgi!“ daginn sem sú lygi fór í loftið og tveimur tímum eftir að lögreglan hafði leiðrétt hana. Karl Dúlla Hjaltason. Dúllurnar standa vaktina um alla borg, hvar sem búrkur og baklövur og annað verra óeðli ógnar þjóðarvitund okkar Íslendinga. Það kann reyndar að skjóta skökku við að öll þeirra hugmyndafræði er komin erlendis frá, frá trumpistunum vestra og popúlistum í Evrópu, en ekki var svosem við öðru að búast hjá lítt læsu og lítt sigldu fólki. Með í liðinu má einnig telja hlaðvarparann sterka, Þórarinn Hjartarson, sem nú hefur unnið það afrek að fá til sín 3000 viðmælendur, og þar af heilar 3 konur, en ræður þó aðeins við eina pælingu í sínu lífi, sumsé þann reginglæp Palestínumanna að bíta loks frá sér eftir 70 ára langt þjóðarmorð Ísraela á sér og sínum. Þórarinn Dúlla Hjartarson. Óvæntur liðsauki barst Dúllunum síðan á dögunum innan úr sjálfu réttarkerfinu þegar fyrrum vararíkissaksóknarinn Helgi Magnús Gunnarsson vasaði heilar 200 milljónir fyrir eitt saklaust læk að hann hélt og fékk að auki lausn sinnar tungu. Hann hefur síðan látið eftir sér að blása út rasisma og útlendingahatri í hverjum þættinum á fætur öðrum. Helgi Magnús Dúlla Gunnarsson. Duglegasti siðapostulinn er þó Hamast-liðinn í Hádegismóum, Stefán Einar Stefánsson, sem hamast nótt og dag við að fá fólk í þáttinn sinn og úthúðar því svo af sama offorsi á samfélagsmiðlum ef svarið er nei. Af tvennu illu virðast flestir taka síðari kostinn. Stefán Einar varð sem kunnugt er landsfrægur á liðnu hausti þegar hann viðurkenndi að hann læsi bækur með svolítið undarlegum hætti. Í stað þess að lesa textann les hann aðeins blaðsíðutalið, en hikar þó ekki við að dæma bækurnar út frá því. Kannski fannst þarna skýring á takmörkunum hans. Með þessari frumlegu lestraraðferð tókst honum þó að reikna út hvað blaðsíðan kostar hjá hverjum af okkar góðu höfundum, með því að deila síðufjöldanum í fengin laun úr ritlaunasjóði. Samkvæmt þessu kostar síðan 30 þúsund krónur hjá undirrituðum. Á móti reyndist auðvelt að reikna út hver dýrasti penni landsins væri, en það er auðvitað Stefán Einar sjálfur, maðurinn sem skrifar í mesta lagi tvær ríkisstyrktar Moggasíður á mánuði og þiggur fyrir það eina og hálfa milljón króna. (Þó má reyndar segja að Dúllan Helgi Magnús sé dýrari með sínar tvö hundruð milljónir fyrir eitt læk.) En þá segir fólk á móti að samanburðurinn sé ekki sanngjarn því Stefán Einar sé ekki að skrifa skáldskap. Á móti minnum við á uppdiktuðu fyrirsögnina „Hamasliðar á Höfðatorgi“. Við nefnum hann Stefán Dúlla Stefánsson. Nema það skyldi vera Abdúlla. Hér gleymast sjálfsagt margar Dúllur en látum þessa upptalningu duga í bili. Hugsum vel til þeirra allra og þökkum þeim árveknina og dugnaðinn. Þökkum líka Guði og goðum fyrir að einhver skuli nenna að standa þjóðernisvaktina á skemmtistöðum borgarinnar á þessum síðustu og verstu og halda á lofti merki Jóhönnu heitinnar Knudsen. Höfundur er myndlistarmaður og rithöfundur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hallgrímur Helgason Mest lesið Alræmdur faðir stígur fram Atli Heiðar Gunnlaugsson Skoðun Hvað myndir þú gera við auka milljón á ári? Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Friður á Segulfirði Bjarni Karlsson Skoðun Skipulag, ábyrgð og meirihlutamyndun Marta Rut Ólafsdóttir,Lárus Jónsson Skoðun Enginn kaus Bjarna eða Brynjar Gunnar Salvarsson Skoðun Vindorkan – ný fjármálabóla í ríkjum ESB? Júlíus Valsson Skoðun Dagur og Diljá - dómur er fallinn Halldór Jörgen Olesen Skoðun Það er gott að vera kristinn, en slæmt þegar fáfræðin fær að ráða för María Gunnarsdóttir Skoðun Styrkur í fjárfestingu í sjávarútvegi Heiðrún Lind Marteinsdóttir Skoðun Halldór 23.05.2026 Halldór Skoðun Skoðun Friður á Segulfirði Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Vindorkan – ný fjármálabóla í ríkjum ESB? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Skipulag, ábyrgð og meirihlutamyndun Marta Rut Ólafsdóttir,Lárus Jónsson skrifar Skoðun Enginn kaus Bjarna eða Brynjar Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Hvað myndir þú gera við auka milljón á ári? Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Galin skattheimta ríkisstjórnarinnar Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Fyrst upplýsingar og stöðugleiki, svo má kjósa Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Króatar og ávextir ESB-aðildar Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Þegar hlutverkin deyja og sjálfið vaknar Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Dagur og Diljá - dómur er fallinn Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Styrkur í fjárfestingu í sjávarútvegi Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Það er gott að vera kristinn, en slæmt þegar fáfræðin fær að ráða för María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Alþjóðasamstarf í umhverfismálum er ekki háð Evrópusambandsaðild Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Norður-Kórea, íslensk stjórnmál og raunveruleikinn Mía Marselína Alexa Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Stóreflum námsefnisgerð í íslenska skólakerfinu Magnús Þór Jónsson,Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hundrað milljarða loforð Dags Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Líffræðileg fjölbreytni og sveitarfélög Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir,Skúli Skúlason skrifar Skoðun Nokkur orð um einföldun eftirlits Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Fólkið fær að ráða för Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Alræmdur faðir stígur fram Atli Heiðar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Lýðræðislegt, sanngjarnt, gott Alex Leó Kristinsson skrifar Skoðun Nei, ég vil ekki vinna með þér! Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Þrefölda svipa verðtryggingar á Íslandi Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Hver borgar brúsann? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hvaða áhrif hefði ESB-aðild á verðbólguna? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Er aithingi.is hættulegt lýðræðinu? Kristján Logason skrifar Skoðun Rafbyssugríman er fallin Þórhildur Sunna Ævarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju upplifa sumir kjósendur fjarlægð frá Samfylkingunni? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Launastefna Seðlabankans: Hverjir sitja eftir? Ingvar Freyr Ingvarsson,Sigrún Brynjarsdóttir skrifar Skoðun Ár í eldlínunni Einar Bárðarson skrifar Sjá meira
Skoðun Það er gott að vera kristinn, en slæmt þegar fáfræðin fær að ráða för María Gunnarsdóttir skrifar
Skoðun Norður-Kórea, íslensk stjórnmál og raunveruleikinn Mía Marselína Alexa Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Stóreflum námsefnisgerð í íslenska skólakerfinu Magnús Þór Jónsson,Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Líffræðileg fjölbreytni og sveitarfélög Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir,Skúli Skúlason skrifar
Skoðun Nokkur orð um einföldun eftirlits Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Launastefna Seðlabankans: Hverjir sitja eftir? Ingvar Freyr Ingvarsson,Sigrún Brynjarsdóttir skrifar