„Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. apríl 2026 21:54 Michael Carrick, stjóri Manchester United, var mjög ósáttur með dómgæsluna í kvöld. Getty/Carl Recine/ Michael Carrick, knattspyrnustjóri Manchester United, var mjög ósáttur með rauða spjaldið sem miðvörðurinn Lisandro Martínez fékk fyrir hártog í 2-1 tapi á móti Leeds á Old Trafford í kvöld. Hann kvartað mikið undan dómgæslunni eftir leikinn. „
Við byrjuðum leikinn ekki sérstaklega vel. Við fengum augljóslega á okkur mark þegar Leny Yoro fær olnbogaskot aftan á höfuðið og þeir skora fyrsta markið,“ sagði Michael Carrick sem tapaði í fyrsta sinn á heimavelli sem stjóri Manchester United. „Dómararnir ákváðu að breyta ekki þeirri ákvörðun. Það var stórt augnablik í leiknum. Við fundum ekki alveg taktinn, þetta small ekki saman, við áttum nokkur augnablik en þetta var ekki alveg til staðar stóran hluta fyrri hálfleiks,“ sagði Carrick. „En í seinni hálfleik fannst mér strákarnir, eins og þeir nálguðust þetta, halda jákvæðninni og berjast fyrir því að fá eitthvað út úr leiknum eftir aðra skelfilega, skelfilega ákvörðun um að reka [Lisandro Martinez] af velli. Í tveimur leikjum í röð höfum við fengið svona ákvarðanir gegn okkur en þetta er ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð,“ sagði Carrick. „Þú mátt gefa Leny Yoro olnbogaskot fyrir fyrsta markið, augljóslega með handleggnum, þú mátt sveifla handleggnum í andlitið á Martinez og svo þegar hann missir jafnvægið vegna þess, þá er hann hálfpartinn í glímu, snertir hálfpartinn aftan á hárið á honum sem gerir það að verkum að teygjan losnar,“ sagði Carrick. „Ég veit ekki einu sinni hvernig þetta lítur út. Þetta er ekki tog, þetta er ekki rykking, þetta er ekki árásargjarnt. Hann snertir það og er rekinn af velli. Það versta af öllu er að hann er sendur til að endurskoða þetta, augljós og greinileg mistök. Skelfilegt,“ sagði Carrick.
Enski boltinn Manchester United Leeds United Mest lesið Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Handbolti Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Fótbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira