Dánaraðstoð og hjúkrunarfræðingar: Hvað segja gögnin? Bjarni Jónsson skrifar 16. apríl 2026 13:01 Meirihluti hjúkrunarfræðinga á Íslandi styður dánaraðstoð. Samt telur fagfélag þeirra ekki tímabært að heimila hana. Fyrir Alþingi liggur þingsályktunartillaga Bryndísar Haraldsdóttur og fleiri sem felur heilbrigðisráðherra að undirbúa frumvarp um dánaraðstoð. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) telur í umsögn sinni ekki tímabært að heimila hana að svo stöddu og að málið þarfnist frekari umræðu. Tilefni er til að bregðast við þeirri afstöðu. Stuðningur innan stéttarinnar Samkvæmt skýrslu heilbrigðisráðherra frá 2023, sem byggir á Gallup-könnun meðal heilbrigðisstarfsfólks og sjúklingasamtaka, eru 86% hjúkrunarfræðinga hlynntir dánaraðstoð, 7% hlutlausir og 7% andvígir. Niðurstöður benda til víðtæks stuðnings innan stéttarinnar. Fíh dregur þó í efa að þær endurspegli raunverulega afstöðu hjúkrunarfræðinga og vísar til lítils úrtaks og svarhlutfalls. Sú gagnrýni byggir að mínu mati á röngum tölfræðilegum forsendum. Tölfræðilegt mat styður niðurstöðuna Úrtakið var 400 hjúkrunarfræðingar og 115 svöruðu (29%). Gallup notaði svokallað „lýsandi“ úrtak. Það felur í sér að þátttakendur voru valdir af handahófi (slembival) en jafnframt tryggt að dreifing væri hlutfallslega jöfn eftir aldri, kyni, sérsviðum, vinnustöðum og búsetu. Þannig aukast líkur á að úrtakið sé lýsandi fyrir þýðið í heild. Uppgefin vikmörk voru ±3,6%. Endurútreikningur miðað við 115 svör gefur ±6,4%, sem er innan viðurkenndra marka (4-8%). Þetta þýðir að í 95% tilvika sem könnunin yrði lögð fyrir hjá úrtakinu mætti búast við stuðning á bilinu 79,6%-92,4%. Niðurstöðurnar eru því traustar og ekkert bendir til þess að veruleg skekkja hafi haft áhrif á heildarmyndina. Í leiðbeiningum um túlkun niðurstaðna Gallup-könnunarinnar er farið yfir vikmörk og merkingu þeirra. Á Vísindavef HÍ má einnig finna útskýringar á því hvað vikmörk þýða og hvernig meta megi mögulega skekkju. Önnur gögn sýna sambærilega þróun Rannsókn Brynhildar K. Ásgeirsdóttur frá 2021 á viðhorfum heilbrigðisstarfsfólks á klínískum deildum Landspítalans byggði á samanburði við kannanir frá 1995 og 2010. Niðurstöður sýndu að 71% hjúkrunarfræðinga voru hlynntir dánaraðstoð. Vikmörk voru ±8,8%, sem þýðir að með 95% tölfræðilegu öryggi liggur stuðningurinn á bilinu 62% til 80%. Óákveðin voru 19% en 18% andvíg. Ritrýnd vísindagrein í BMC Medical Ethics um niðurstöður kannanna þriggja staðfesti aðferðafræði og tölfræðilegt marktæki þeirra. Meðfylgjandi stöplarit sýnir þróun viðhorfa frá 1995 til 2021 auk Gallup-könnunar ráðuneytisins frá 2023. Skýr þróun blasir við: stuðningur hjúkrunarfræðinga við dánaraðstoð hefur aukist jafnt og þétt yfir tíma og er nú orðinn afgerandi. Um hugtakanotkun og mögulegan misskilning Í umsögn Fíh segir síðan: „Að auki hefur hugtakaruglingur og þróun í íslensku máli gert allan samanburð við fyrri viðhorfskannanir um efnið ómarktækan. Gætt hefur misskilnings þegar spurt er út í dánaraðstoð og það talið hliðstæða líknarmeðferðar sem það er ekki. Til að niðurstaða könnunar endurspegli raunverulega afstöðu heilbrigðisstarfsfólks er því mikilvægt að hugtök séu rétt notuð og í samræmi við það tungutak sem notað er í heilbrigðisþjónustu.“ Þessi gagnrýni virðist vísa í einhverja aðra orðræðu en fer fram í könnununum og málfarið í þeim gefur ekki tilefni til „hugtakaruglings“. Fyrri viðhorfskannanir byggðust á skýrum lýsingum á dánaraðstoð, ekki túlkun orðsins sjálfs. Það var ótvírætt að ekki var verið að vísa til líknarmeðferðar. Í könnun ráðuneytisins, sem byggði vissulega ekki á jafn ítarlegum skilgreiningum í svarmöguleikum, var meginspurningin svohljóðandi: „Á heildina litið, hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) ert þú því að dánaraðstoð verði leyfð á Íslandi?“ Hverjum hjúkrunarfræðingi hlýtur að vera ljóst að hér er ekki átt við líknarmeðferð enda er hún þegar heimil og viðurkennd. Eftirfylgnispurning um hvernig dánaraðstoð gæti farið fram, svo sem að læknir gefi lyf í æð eða að sjúklingur innbyrðir sjálfur lyf, útilokar enn frekar misskilning. Í ljósi framsetningar spurninganna og fagþekkingar svarenda er afar ólíklegt að kerfisbundinn misskilningur hafi haft áhrif á niðurstöðurnar. Samfélagslegur stuðningur Viðhorf hjúkrunarfræðinga endurspeglar einnig breiðari samfélagslega þróun. Fjórar kannanir frá 2015 sýna stöðugan stuðning almennings: að meðaltali eru 76% hlynnt dánaraðstoð og aðeins um 7% andvíg. Dánaraðstoð og líknarmeðferð Í umsögn sinni vísar Fíh í niðurstöður hjúkrunarþings sem haldið var 2024. Þar leggur félagið áherslu á mikilvægi bættrar líknarmeðferðar, sem er óumdeilt og grundvallaratriði í heilbrigðisþjónustu. Lífsvirðing hefur ítrekað kallað eftir því að líknarmeðferð verði efld, óháð því hvort dánaraðstoð verður heimiluð eður ei. Dánaraðstoð þarf ekki að vera andstæða líknarmeðferðar heldur ætti að mati Lífsvirðingar að vera einn af valkostum við lok lífs. Lífsvirðing tekur einnig undir það sjónarmið Fíh að regluverk um dánaraðstoð þurfi að vera skýrt og vandað. Reynslan í Hollandi, þar sem dánaraðstoð hefur verið heimiluð frá 2002, sýnir að slíkt er mögulegt. Gögn kalla á næstu skref Fíh telur að „ekki sé tímabært að heimila dánaraðstoð hér á landi og að málið krefjist frekari og dýpri umræðu.“ Lífsvirðing tekur undir mikilvægi víðtækrar umræðu enda er það eitt af meginmarkmiðum félagsins, en það eitt og sér réttlætir ekki frestun lagasetningar. Þvert á móti benda gögn og þróun viðhorfa til að forsendur séu til að taka næstu skref. Beiðni Lífsvirðingar um fund með nýkjörnum formanni og stjórn Fíh hefur ekki enn leitt til fundar. Ef markmiðið er að efla „frekari og dýpri umræðu“ er mikilvægt að skapa vettvang þar sem ólík sjónarhorn geta mæst og unnið sameiginlega úr þeim faglegu og siðferðilegu álitaefnum sem málið felur í sér. Áhugavert væri að fá frekari upplýsingar um hvernig Fíh hyggst halda áfram þeirri umræðu meðal félagsmanna sinna eftir hjúkrunarþingið árið 2024 og hvort til standi að kanna viðhorf þeirra með frekari hætti, sérstaklega í ljósi þeirrar gagnrýni sem félagið hefur sett fram á aðrar kannanir. Lífsvirðing kallar eftir samtali Ofangreindar viðhorfskannanir varpa ljósi á stuðning við dánaraðstoð en þær svara ekki spurningum um framkvæmd, faglega ábyrgð eða siðferðileg mörk. Slík álitaefni þarf að vinna sérstaklega með í áframhaldandi stefnumótun. Lífsvirðing ítrekar ósk sína um málefnalegt samtal við Fíh um hvernig best verði tryggt að lagarammi, verklag og fagleg ábyrgð standist þær kröfur sem gera verður til jafn viðkvæms málaflokks. Höfundur er stjórnarmaður Lífsvirðingar, sem berst fyrir lögleiðingu dánaraðstoðar á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Dánaraðstoð Mest lesið Dýrasta land heims í nafni sjálfstæðisins Inga Valgerður Henrikssen Skoðun Er íslenskan að verða gestur í eigin landi? Petra María Ingvaldsdóttir Skoðun Barátta við náttúru og yfirvald Jón Steinar Sæmundsson Skoðun Eru áfengiskaup verndandi þáttur? Dagbjört Harðardóttir Skoðun STEM ævintýrið á Íslandi: Lausn við PISA-vandanum eða táknræn stefnumótun? Maren Davíðsdóttir Skoðun Já, ég styð aðildarviðræður Ólafur Margeirsson Skoðun Veist þú hvað „foid“ er? Þorsteinn Siglaugsson Skoðun Hugleiðingar um meðferð á beiðni um DNA rannsókn á mannabeinum í grafreit Lára Magnúsardóttir Skoðun Skilgreiningarvald mennskunnar Erna Mist Skoðun Hvenær ætlar ríkisstjórnin að hætta að ljúga að sjálfri sér – og okkur? Kristinn Karl Brynjarsson Skoðun Skoðun Skoðun Í upphafi skal endinn skoða Íris Eva Gísladóttir,Ársæll Guðmundsson,Jóhanna Stella Oddsdóttir,Simon Cramer Larsen,Helga Þórðardóttir skrifar Skoðun Skilgreiningarvald mennskunnar Erna Mist skrifar Skoðun Dýrasta land heims í nafni sjálfstæðisins Inga Valgerður Henrikssen skrifar Skoðun Hugleiðingar um meðferð á beiðni um DNA rannsókn á mannabeinum í grafreit Lára Magnúsardóttir skrifar Skoðun Hvenær ætlar ríkisstjórnin að hætta að ljúga að sjálfri sér – og okkur? Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Ef þetta væri barnið þitt Arnar Kjartansson skrifar Skoðun Eru áfengiskaup verndandi þáttur? Dagbjört Harðardóttir skrifar Skoðun Hvenær er maður þjófur og hvenær er maður ekki þjófur? Einar Helgason skrifar Skoðun Gerðu það sem ég segi, ekki það sem ég geri! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Frá fullveldi til Brussel Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Fögnum Heimsdegi hafsins 8. júní Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Er íslenskan að verða gestur í eigin landi? Petra María Ingvaldsdóttir skrifar Skoðun Barátta við náttúru og yfirvald Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun STEM ævintýrið á Íslandi: Lausn við PISA-vandanum eða táknræn stefnumótun? Maren Davíðsdóttir skrifar Skoðun „Mamma, sjáðu, útlendingur!“ – Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Já, ég styð aðildarviðræður Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Veist þú hvað „foid“ er? Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun ETS, ESB og EES – Að fá sæti við borðið Dóra Sif Tynes skrifar Skoðun Hvernig Ráðhúsið var gert að hagsmunaskrifstofu á kostnað almennings Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fiskurinn, valdið og tilfinningin fyrir fullveldi Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Afskipti Rússlands og ESB: tvöfalt siðferði í nafni lýðræðis Júlíus Valsson skrifar Skoðun Gervigreind nýtist best með mannlegri þekkingu og reynslu Ásgeir Þorgeirsson skrifar Skoðun Skipti engu nema við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Svartkimi samfélagsins: Þegar tveir heimar mætast í yfirheyrsluherberginu Davíð Bergmann skrifar Skoðun Þegar sorg verður valdatæki Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hvalir éta frá okkur fiskinn? Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Stígum ölduna saman Víglundur Laxdal skrifar Skoðun Þegar líf er í húfi Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hver á að veita þjónustuna? Sandra B. Franks skrifar Skoðun Getum við lært af Bjarti í Sumarhúsum? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Sjá meira
STEM ævintýrið á Íslandi: Lausn við PISA-vandanum eða táknræn stefnumótun? Maren Davíðsdóttir Skoðun
Hugleiðingar um meðferð á beiðni um DNA rannsókn á mannabeinum í grafreit Lára Magnúsardóttir Skoðun
Hvenær ætlar ríkisstjórnin að hætta að ljúga að sjálfri sér – og okkur? Kristinn Karl Brynjarsson Skoðun
Skoðun Í upphafi skal endinn skoða Íris Eva Gísladóttir,Ársæll Guðmundsson,Jóhanna Stella Oddsdóttir,Simon Cramer Larsen,Helga Þórðardóttir skrifar
Skoðun Hugleiðingar um meðferð á beiðni um DNA rannsókn á mannabeinum í grafreit Lára Magnúsardóttir skrifar
Skoðun Hvenær ætlar ríkisstjórnin að hætta að ljúga að sjálfri sér – og okkur? Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun STEM ævintýrið á Íslandi: Lausn við PISA-vandanum eða táknræn stefnumótun? Maren Davíðsdóttir skrifar
Skoðun „Mamma, sjáðu, útlendingur!“ – Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo skrifar
Skoðun Hvernig Ráðhúsið var gert að hagsmunaskrifstofu á kostnað almennings Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Svartkimi samfélagsins: Þegar tveir heimar mætast í yfirheyrsluherberginu Davíð Bergmann skrifar
STEM ævintýrið á Íslandi: Lausn við PISA-vandanum eða táknræn stefnumótun? Maren Davíðsdóttir Skoðun
Hugleiðingar um meðferð á beiðni um DNA rannsókn á mannabeinum í grafreit Lára Magnúsardóttir Skoðun
Hvenær ætlar ríkisstjórnin að hætta að ljúga að sjálfri sér – og okkur? Kristinn Karl Brynjarsson Skoðun