Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik Tómas Arnar Þorláksson skrifar 15. apríl 2026 20:15 Zixiao Xu, sem er kallaður Xiaoma er ellefu ára gamall og verður tólf ára í maí. vísir/ívar Ellefu ára strákur sem forritaði sinn eigin stærðfræðitölvuleik segir stærðfræðibækur í grunnskólum einfaldlega of leiðinlegar til að vekja áhuga nemenda. Fréttamaður fékk að sjálfsögðu tækifæri til að spreyta sig á leiknum.
Hinn ellefu ára, Zixiao Xu, sem er kallaður Xiaoma, er sonur kínverskra innflytjenda og er fæddur hér á landi. Hann er bráðskarpur og lífsglaður drengur og tók upp á því á dögunum að búa til sinn eigin stærðfræðitölvuleik fyrir samnemendur sína. Hann segir stærðfræðibækur sem notast er við í grunnskólum í dag of leiðinlegar til að vekja áhuga barna. Kennsluefni þurfi að vera sjónrænna og meira lifandi. „Ég fékk hugmyndina því mjög margir í kringum mig áttu frekar erfitt með stærðfræði eins og almenn brot og heiltölur og fannst erfitt að sjá það bara í bókum. Það er kannski skemmtilegra að sjá það í svona tölvuleikjaumhverfi,“ sagði Xiaoma en í spilaranum hér að neðan má berja tölvuleikinn augum og sjá fréttamann brjóta heilann yfir stærðfræðidæmum. Xiaoma forritaði tölvuleikinn einn síns liðs en hann er hægt að nálgast á vefsíðunni MathX.is. Hann fékk vin sinn til liðs við sig til að hanna skemmtilega fígúru sem nefnist Reiknir. Reiknir prýðir leikinn og heilsar notendum. „Ég notaði forrit sem Google á sem heitir Antigravity. Þú verður að hugsa skipulega hvað þú ætlar að gera áður en þú byrjar að forrita. Hvað finnst kennurunum þínum um að þú hafir búið til svona flottan leik? „Ég sýndi kennurunum mínum fyrst og þeim fannst það mjög flott. Bekkjarfélagar mínir prufuðu hann og öllum fannst það mjög töff.“ Í leiknum vinna notendur sig áfram í gegnum borð þar sem dæmin verða flóknari með hverju stigi. „Fyrst gerir þú heiltölur, svo almenn brot, svo gerir þú rúmfræði og jöfnur og það mun koma fleira í framtíðinni.“ Þá fékk fréttamaður tækifæri til að spreyta sig á stærðfræðinni eftir að hafa valið samlagningu og erfiðleikastig. Þess má geta að Xioma hófst handa við að forrita leikinn í febrúar á þessu ári en það verður að segjast að lokaafurðin er einstaklega vel heppnuð.
Skóla- og menntamál Tækni Grunnskólar Krakkar Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Erlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri fréttir Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Sjá meira