Innlent

Varnarsigur segir for­maður bæjar­ráðs Ísa­fjarðar

Kristján Már Unnarsson skrifar
Gylfi Ólafsson, formaður bæjarráðs, segir Ísafjarðarflugið tryggt með ásættanlegum hætti og á mjög góðum flugvélum.
Gylfi Ólafsson, formaður bæjarráðs, segir Ísafjarðarflugið tryggt með ásættanlegum hætti og á mjög góðum flugvélum. samsett mynd

Vegagerðin hefur samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar gegn 1,7 milljarða króna niðurgreiðslu næstu fjögur ár. Það er ríflega helmings lækkun frá tilboði Icelandair, sem var upp á 3,5 milljarða króna, en á móti kemur að flugferðum er fækkað um 28 prósent. Formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar kveðst líta á þetta sem varnarsigur.

Icelandair var eina félagið sem bauð í Ísafjarðarflugið og hljóðaði tilboð félagsins upp á 3,5 milljarða króna. Vegagerðin hafnaði tilboðinu enda var það hátt yfir kostnaðaráætlun, sem var upp á 1,3 milljarða króna.

Núna hefur Vegagerðin hins vegar náð samkomulagi við Icelandair um að félagið taki að sér verkefnið næstu fjögur árin gegn 1.690 milljóna króna meðgjöf ríkisins á samningstímanum, eða sem nemur 422 milljónum króna á ári, og verða 37 sæta Dash 8 Q200-vélar áfram notaðar á flugleiðinni.

Flugvél Icelandair beygir inn að flugbrautinni.Vilhelm

Samningsfjárhæðin er 52% lægri en tilboð Icelandair hljóðaði upp á. Á móti kemur að dregið er úr tíðni flugferða og verða allt niður í sjö ferðir á viku yfir háveturinn.

Upphaflegar forsendur útboðsins gerðu ráð fyrir tíu til fjórtán ferðum á viku, mismunandi eftir mánuðum, eða alls 632 ferðum að lágmarki yfir árið. Núna var samið um sjö til tíu ferðir á viku eða 452 ferðir að lágmarki yfir árið, sem er 28% fækkun ferða.

„Mér finnst bara best að líta á þetta sem varnarsigur,“ sagði formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar, Gylfi Ólafsson, spurður um samninginn.

Frá Ísafjarðarflugvelli.Vilhelm

„Við vorum farin að verða dálítið áhyggjufull á tímabili. Flugið er náttúrulega gríðarlega mikilvægt fyrir okkur og við fáum ekki allar okkar kröfur uppfylltar í þessu. Það eru fá flug um veturinn og svo framvegis.

En flugið er allavega tryggt til fjögurra ára og með svona ásættanlegum hætti og á mjög góðum flugvélum.

Þetta er lágmarksfjöldi flugferða þannig að við höfum allar væntingar til þess að þeim verði svo fjölgað þegar mikið er að gera og mikið um að vera. Enda er bara mjög mikið að gera og mikið um að vera í atvinnulífi og menningarlífi hér fyrir vestan þessi misserin,“ sagði Gylfi Ólafsson.


Tengdar fréttir

Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar

Vegagerðin og Icelandair hafa náð samkomulagi um flug til Ísafjarðar. Samningurinn gildir til fjögurra ára. Lágmarksfjöldi ferða er 452 hringferðir á ári.

Norlandair mátti ekki bjóða í Ísafjörð á þessari flugvél

Skilyrði útboðs Vegagerðarinnar um að flugvél með jafnþrýstibúnaði þyrfti í Ísafjarðarflug útilokaði Norlandair frá því að geta boðið í flugleiðina. Framkvæmdastjóri Norlandair segir að flugtæknilega sé þetta ekki nauðsynleg krafa.

Icelandair hættir flugi til Ísafjarðar

Icelandair hyggst hætta að fljúga til Ísafjarðarbæjar eftir sumarið 2026. Ástæðan er sérstaða flugvallarins sem leiðir til þess að einungis litlar vélar geti lent þar og vegna framkvæmda í Grænlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×