Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 16. apríl 2026 13:27 Lilja Alfreðsdóttir formaður Framsóknar. Vísir/Vilhelm Lilja Dögg Alfreðsdóttir formaður Framsóknar kynnti í dag efnahagsaðgerðir flokksins ásamt tillögu að nýrri þjóðarsátt um efnahagsmál. Aðgerðunum er ætlað að létta undir með heimilum landsins en í tilkynningu frá flokknum segir að breyta þurfi verklagi í hagstjórn landsins. „Þróun efnahagsmála og aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar í þeim efnum er áhyggjuefni. Framsókn leggur áherslu á að verðbólga og vextir lækki hraðar en núverandi horfur gera ráð fyrir og til að það takist þarf að leggja grunn að nýrri þjóðarsátt um efnahagsmál,“ segir í tilkynningunni. Leggja fram sex punkta áætlun Þar segir að verkefnið kalli á samvinnu samfélgsins í heild og snúi að því að verja heimili og fyrirtæki, styðja við forsendur kjarasamninga og um leið styðja við aukinn stöðguleika til framtíðar. Til þess þurfi opið og markvisst samtal helstu hagaðila þar sem stjórnvöld, sveitarfélög, fjármálakerfið, vinnumarkaðurinn, atvinnulífið og almenningur legst á eitt um raunhæfar lausnir. „Þær aðgerðir sem Framsókn leggur til er ætlað létta undir með heimilum og draga úr kostnaðarþrýstingi, meðal annars með lægri virðisaukaskatti á matvæli sem og aðgerðum sem lækka bifreiðakostnað. Lagt er til að þær aðgerðirnar gildi frá 1. maí til 1. október 2026, eða fram yfir endurskoðun komandi kjarasamninga.“ Fram kemur að flokkurinn leggi jafnframt til aðgerðir sem miði að því að halda aftur af hækkun leiguverðs. Markmiðið sé að bæta stöðu fólks hér og nú, styrkja velferð og draga úr þeim verðbólguáhrifum sem hár framfærslukostnaður hafi haft á heimili landsins. Segir að aðgerðirnar séu hóflegar og takmarkaðar í umfangi. „Til lengri tíma þarf jafnframt að breyta verklagi í hagstjórn landsins. Framsókn vill leggja grunn að nýjum leikreglum hins opinbera sem styðja við lægri verðbólgu, meiri fyrirsjáanleika og öflugri uppbyggingu. Þar má nefna markvissara samtal um stóru málin, samræmdari gjaldtöku hins opinbera, aukið framboð í húsnæðismálum og ný verkfæri til að meta áhrif stærri ákvarðana á verðbólgu, heimili og fyrirtæki, svonefnda verðbólgusíu. Með þeim hætti má tengja nauðsynlegar aðgerðir til skemmri tíma við ábyrgari og traustari stefnu til framtíðar.“ Efnahagstillögur Framsóknar sem kynntar voru á kynningafundinum. 1. Samvinna og samtal – ný þjóðarsátt 2. Samræmd og fyrirsjáanleg gjaldtaka hins opinbera 3. Verðbólgusía – nýtt verklag í opinberum fjármálum 4. Lægra matarverð – tímabundin lækkun skatta 5. Lægra bensínverð – tímabundin lækkun skatta og gjalda 6. Leigumarkaður – afturköllun hækkunar skattstofns leigutekna Framsóknarflokkurinn Alþingi Efnahagsmál Fjármál heimilisins Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Katla skelfur Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Fleiri fréttir Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Sjá meira
„Þróun efnahagsmála og aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar í þeim efnum er áhyggjuefni. Framsókn leggur áherslu á að verðbólga og vextir lækki hraðar en núverandi horfur gera ráð fyrir og til að það takist þarf að leggja grunn að nýrri þjóðarsátt um efnahagsmál,“ segir í tilkynningunni. Leggja fram sex punkta áætlun Þar segir að verkefnið kalli á samvinnu samfélgsins í heild og snúi að því að verja heimili og fyrirtæki, styðja við forsendur kjarasamninga og um leið styðja við aukinn stöðguleika til framtíðar. Til þess þurfi opið og markvisst samtal helstu hagaðila þar sem stjórnvöld, sveitarfélög, fjármálakerfið, vinnumarkaðurinn, atvinnulífið og almenningur legst á eitt um raunhæfar lausnir. „Þær aðgerðir sem Framsókn leggur til er ætlað létta undir með heimilum og draga úr kostnaðarþrýstingi, meðal annars með lægri virðisaukaskatti á matvæli sem og aðgerðum sem lækka bifreiðakostnað. Lagt er til að þær aðgerðirnar gildi frá 1. maí til 1. október 2026, eða fram yfir endurskoðun komandi kjarasamninga.“ Fram kemur að flokkurinn leggi jafnframt til aðgerðir sem miði að því að halda aftur af hækkun leiguverðs. Markmiðið sé að bæta stöðu fólks hér og nú, styrkja velferð og draga úr þeim verðbólguáhrifum sem hár framfærslukostnaður hafi haft á heimili landsins. Segir að aðgerðirnar séu hóflegar og takmarkaðar í umfangi. „Til lengri tíma þarf jafnframt að breyta verklagi í hagstjórn landsins. Framsókn vill leggja grunn að nýjum leikreglum hins opinbera sem styðja við lægri verðbólgu, meiri fyrirsjáanleika og öflugri uppbyggingu. Þar má nefna markvissara samtal um stóru málin, samræmdari gjaldtöku hins opinbera, aukið framboð í húsnæðismálum og ný verkfæri til að meta áhrif stærri ákvarðana á verðbólgu, heimili og fyrirtæki, svonefnda verðbólgusíu. Með þeim hætti má tengja nauðsynlegar aðgerðir til skemmri tíma við ábyrgari og traustari stefnu til framtíðar.“ Efnahagstillögur Framsóknar sem kynntar voru á kynningafundinum. 1. Samvinna og samtal – ný þjóðarsátt 2. Samræmd og fyrirsjáanleg gjaldtaka hins opinbera 3. Verðbólgusía – nýtt verklag í opinberum fjármálum 4. Lægra matarverð – tímabundin lækkun skatta 5. Lægra bensínverð – tímabundin lækkun skatta og gjalda 6. Leigumarkaður – afturköllun hækkunar skattstofns leigutekna
Efnahagstillögur Framsóknar sem kynntar voru á kynningafundinum. 1. Samvinna og samtal – ný þjóðarsátt 2. Samræmd og fyrirsjáanleg gjaldtaka hins opinbera 3. Verðbólgusía – nýtt verklag í opinberum fjármálum 4. Lægra matarverð – tímabundin lækkun skatta 5. Lægra bensínverð – tímabundin lækkun skatta og gjalda 6. Leigumarkaður – afturköllun hækkunar skattstofns leigutekna
Framsóknarflokkurinn Alþingi Efnahagsmál Fjármál heimilisins Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Katla skelfur Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Fleiri fréttir Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Sjá meira