„Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 17. apríl 2026 20:02 Jens segir mótttökurnar hafa yljað um hjartarætur. lýður valberg Starfslok eins ástsælasta kennara í Háskólanum í Reykjavík hafa orðið að gríðarlega vinsælu efni á samfélagsmiðlum. Hópur manns tók sig til og stóð heiðursvörð þegar hann lauk sínum síðasta kennsludegi á ferlinum. Hann segir móttökurnar hafa yljað honum um hjartarætur.
Myndbandið hefur farið eins og eldur í sinu um samfélagsmiðla en á því sést kennarinn Jens Arnljótsson stíga út úr kennslustofu Háskólans í Reykjavík eftir að hafa kennt sinn síðasta tíma á starfsferlinum. Eins og sést hafði fjöldi manns myndað heiðursvörð og klappað fyrir honum á leið út skólaganginn. „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði,“ segir Jens í kvöldfréttum Sýnar. Eins og kjaftshögg Jens segist ekki hafa hafa haft hugmynd um móttökurnar. „Ég er ekki á Facebook svo ég vissi ekki neitt. Þetta var eins og að fá kjaftshögg.“ Brá þér? „Já mér brá en svo eftir á þægilega, það var gleði sem fylgdi þessu líka.“ Og viðurkennir að honum hafi yljað um hjartarætur. „Það var gaman að sjá þarna nemendur, gamla nemendur og starfsmenn. Marga úr tæknifræðinni.“ Langur og farsæll ferill Já og fjölskyldu og vini. Jens byrjaði að kenna í kringum árið 1990, áður en fréttamaður fæddist, og hefur átt langan og farsælan feril. Fyrst í Tækniskólanum, síðar Tækniháskólanum og loks Háskólanum í Reykjavík þar sem honum hefur liðið vel með góðu samstarfsfólki og nemendum. Jens segir svolítið skrítið að vera hættur og ekki búinn að ákveða hvað taki við. „Ég þarf að finna mér eitthvað. Það er ekkert sem er svona alveg eitthvað sem ég veit um.“ Ertu ekkert á leið í áhugamálin, golfið eða álíka? „Nei golfið er ekki á dagskrá, ég kann ekkert í golfi og hef ekki prufað það. Ég kunni fótbolta hér áður fyrr en er orðinn of gamall í það en ég finn mér eitthvað.“
Tímamót Háskólar Skóla- og menntamál Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Rubio lentur á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Sjá meira