Regnbogagrýlan Sigtryggur Ellertsson skrifar 18. apríl 2026 10:01 Undanfarið hefur orðið til hávær umræða um regnbogafánann í skólum, knúin áfram af gagnrýni úr pólitík um að þar sé brotið gegn hlutleysi. En áður en við tökum undir slíkar áhyggjur er eðlilegt að spyrja: er hér raunverulegt vandamál, eða er verið að búa það til? Regnbogafáninn er ekki tákn pólitísks áróðurs heldur mannréttinda, virðingu og þess að öll eigi rétt á að vera þau sjálf. Þegar slíkt tákn er sýnilegt í skólum er verið að senda einföld en mikilvæg skilaboð til barna og ungmenna: þið eruð velkomin og verðmæt rétt eins og þið eruð. Þetta skiptir máli. Fyrir sum börn er skólinn ekki bara staður til að læra stærðfræði og íslensku, heldur líka staður þar sem þau reyna að átta sig á sjálfum sér í heimi sem getur verið óöruggur. Fyrir hinsegin börn getur sýnileiki og viðurkenning skipt sköpum fyrir líðan þeirra, öryggi og sjálfsmynd. Það er því að sama skapi hæpið að halda því fram að það væri „hlutleysi“ að fjarlægja slík tákn. Að velja hlutleysi þegar kemur að mannréttindum er líka afstaða. Skólar eru ekki hlutlausir gagnvart einelti, mismunun eða ofbeldi og eiga ekki að vera það. Afhverju ættu þeir að vera hlutlausir gagnvart mannréttindum. Þeir eiga að standa vörð um öryggi og velferð allra nemenda. Í raun minnir þessi umræða á bakslag sem við höfum séð annars staðar. Orðræða sem þekkist úr erlendum stjórnmálum, þar sem réttindi minnihlutahópa eru sett fram sem „umdeild hugmyndafræði“, er farin að rata inn í íslenskt samfélag. Sú nálgun á illa við hér. Við höfum byggt samfélag sem leggur áherslu á jöfnuð, virðingu og mannréttindi og það er skrítin pólitík að gera það umdeilt. Hvað gengur fólki sem það reynir raunverulega til? Það er líka mikilvægt að hlusta á þau sem vinna með börnum á hverjum degi. Kennarar og skólastjórnendur eru ekki að flagga regnboganum til að taka þátt í pólitískri baráttu, heldur til að skapa öruggt og opið umhverfi. Eins og bent hefur verið á í umræðunni snýst þetta ekki um pólitík heldur um börn sem upplifa sig öðruvísi og þurfa að finna að þau tilheyri. Við stöndum því frammi fyrir vali. Viljum við skóla sem eru kaldir og „hlutlausir“ á pappír, eða skóla sem eru hlýir, mannlegir og standa með öllum börnum? Svarið ætti að vera augljóst. Ef eitthvað er bogið í þessari umræðu, þá er það ekki regnbogafáninn. Það er sú hugmynd að mannréttindi og sýnileiki jaðarsettra hópa séu eitthvað sem eigi að fela. Í stað þess að horfa undan þegar á móti blæs, draga okkur til baka og þegja þegar það virkar þægilegra þurfum við að standa saman. Láta í okkur heyra. Taka afstöðu gegn þeim sem vilja þagga og brjóta. Halda áfram að fræða, styðja og sýna í verki að samfélagið okkar er fyrir öll. Höfundur skipar 4. sæti á lista Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Akureyrarbæ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hinsegin Vinstri græn Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir Skoðun Halldór 12.09.2026 Halldór Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir skrifar Skoðun Hver er okkar Napóleon Bónaparte? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Samfélagsumræðan og nunnan Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun 0,01% er ekki undanþága frá ábyrgð Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Óréttlæti lífeyriskerfisins gagnvart ungu fólki Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við erum froskar í vatni sem nálgast suðu Isla Sweet,Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Skoðun Sögulegt skref fyrir dýr í Danmörku Linda Karen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo skrifar Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Þegar tengsl geta skipt sköpum Steinunn Bergmann,María Björk Ingvadóttir skrifar Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Má þjóðin aðeins fá að anda? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hver fær að skilgreina hvað þjóðin sagði? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fjórfrelsið og EES fyrir Ísland Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar Skoðun Öldungaráð Reykjavíkurborgar tekið úr sambandi Viðar Eggertsson skrifar Skoðun Stöðugleiki á leigumarkaði Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar Sjá meira
Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar
Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar
Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar
Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar