Ágúst Íslandsmeistari í fyrsta sinn og Thelma fagnaði fimmta titlinum Ágúst Orri Arnarson skrifar 19. apríl 2026 10:23 Íslandsmeistararnir í fjölþraut. Fimleikasamband Íslands Keppt var til úrslita í fjölþraut á Íslandsmótinu í áhaldafimleikum í húsakynnum Ármanns í gær. Ágúst Ingi Davíðsson tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í fjölþraut karla í fyrsta sinn á ferlinum. Thelma Aðalsteinsdóttir varð Íslandsmeistari í fjölþraut kvenna í fimmta sinn á ferlinum.
Í karlaflokki tryggði Ágúst Ingi sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil með frábærri frammistöðu á öllum áhöldum og sýndi í gær að hann er orðinn einn fremsti fimleikamaður landsins. Ágúst Ingi varð Íslandsmeistari í fyrsta sinn. Fimleikasamband Íslands Gærdagurinn tók hins vegar óvænta stefnu þegar Dagur Kári Ólafsson, sem talinn var líklegur til sigurs, slasaði sig á tvíslá. Þrátt fyrir að reyna að halda áfram og aðlaga æfingar sínar á svifrá var ljóst að hann náði sér ekki á strik og ákvað að hætta keppni. Valgarð Reinhardsson, margfaldur Íslandsmeistari í fjölþraut, tók ekki þátt í fjölþrautinni að þessu sinni, en verður þó á meðal keppenda í úrslitum á áhöldum í dag þar sem hann keppir á hringjum. Mikla athygli vakti einnig endurkoma Martins Bjarna Guðmundssonar, sem sneri aftur til keppni eftir langvarandi meiðsli og hafnaði í 2. sæti. Atli Snær Valgeirsson, Íslandsmeistari síðasta árs, endaði í 3. sæti eftir jafna og harða keppni. Martin Bjarni, Ágúst Ingi og Atli Snær á verðlaunapallinum. Fimleikasamband Íslands Í kvennaflokki stóð Thelma Aðalsteinsdóttir uppi sem Íslandsmeistari eftir glæsilega og örugga keppni. Með sigrinum jafnar hún Berglindi Pétursdóttur og Sif Pálsdóttur yfir fjölda Íslandsmeistaratitla í fjölþraut. Titlarnir eru nú orðnir fimm talsins hjá Thelmu og hún styrkir enn stöðu sína meðal fremstu fimleikakvenna landsins. Thelma getur jafnað met nöfnu sinnar á næsta ári. Fimleikasamband Íslands Einungis ein kona hefur unnið Íslandmeistaratitil oftar en þær þrjár og það er hún Thelma Rut Hermannsdóttir, sex sinnum. Thelma Aðalsteinsdóttir gæti því jafnað met nöfnu sinnar á næsta ári. Lilja Katrín Gunnarsdóttir veitti Thelmu harða keppni og hafnaði í 2. sæti, aðeins 1,134 stigum á eftir henni. Kristjana Ósk Ólafsdóttir tryggði sér 3. sætið, en baráttan um verðlaunasætin var afar jöfn. Lilja Katrín, Thelma og Kristjana Ósk á verðlaunapallinum. Fimleikasamband Íslands Sérstaklega vakti athygli hörð barátta um bronsið þar sem fyrrum Íslandsmeistararnir Agnes Suto (2019) og Nanna Guðmundsdóttir (2021) áttust við. Agnes endaði að lokum í 4. sæti, aðeins 0,177 stigum frá verðlaunasæti, og hefur vakið athygli fyrir sterka endurkomu þar sem hún keppir bæði í áhaldafimleikum og hópfimleikum. Hún sýnir enn og aftur að hún tilheyrir fremstu röð þrátt fyrir að vera 34 ára og æfir ekki alltaf af fullum krafti. Nanna var einnig í harðri baráttu um verðlaunasæti en varð fyrir því óláni að slasast í gólfæfingum, á síðasta áhaldi sínu, og gat því ekki lokið keppni. Úrslit á einstökum áhöldum fara fram í dag og má búast við áframhaldandi spennu þar sem keppendur berjast um Íslandsmeistaratitla á hverju áhaldi. Nánar má lesa um mótið á heimasíðu Fimleikasambands Íslands.
Fimleikar Mest lesið Freyr fagnaði eins og óður maður í leikslok Fótbolti „Ísland breytti lífi mínu“ Íslenski boltinn Segir kominn tíma fyrir John Terry að fara að læra leikreglurnar Enski boltinn Óliver Elí vann Opna breska áhugamannamót pilta Golf Nýliðarnir eyða meira en Manchester United Enski boltinn „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Körfubolti Þór Ak. - Keflavík | Geta sett nágranna sína á botninn Íslenski boltinn Setti sjálfan sig á lista yfir hörmulegustu félagaskiptin Enski boltinn Daníel með slitna hásin Handbolti Flaug á hausinn á brautinni í gær en vann EM-gull í kvöld Sport Fleiri fréttir Selfoss og Jón Daði semja um starfslok Sara Björk skoraði tvö mörk og loksins sigur Magnus Carlsen varði titilinn á HM í rafíþróttum Ruben Amorim fagnaði sigri á móti Manchester United Þór Ak. - Keflavík | Geta sett nágranna sína á botninn FH - Breiðablik | Toppslagur í Kaplakrika Óliver Elí vann Opna breska áhugamannamót pilta Hlín opnaði markareikninginn hjá Malmö með tvennu Orri Steinn byrjaði í tapleik gegn Chelsea Romero yfirgefur Tottenham og fer til Atlético Madrid Thelma Karen með mark í stórsigri Häcken Fastir í þriðja gír og bitlausir Fullkomin byrjun hjá Emelíu og Köge Ferran Torres gengur til liðs við PSG Daníel með slitna hásin Þór/KA fær til sín leikmann frá Bandaríkjunum „Þetta eru leikirnir þar sem bestu leikmennirnir vilja vera bestir í“ „Vona að allir sem voru á vellinum hafi fundið fyrir þessu“ Íslendingarnir ljúka keppni í einstaklingskeppni á EM Hringekja tapreksturs í fótboltanum „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ „Ísland breytti lífi mínu“ Draumur að vinna með José Mourinho Setti sjálfan sig á lista yfir hörmulegustu félagaskiptin Nýliðarnir eyða meira en Manchester United Dagskráin: Einn stærsti leikur ársins í Bestu deild kvenna Segir kominn tíma fyrir John Terry að fara að læra leikreglurnar Er Enzo Fernandez tveggja Rodri virði? Neymar vill að þeir neikvæðu haldi sig heima Flaug á hausinn á brautinni í gær en vann EM-gull í kvöld Sjá meira