Þétting byggðar og grænu svæðin í Kópavogi Beitir Ólafsson skrifar 20. apríl 2026 11:01 Við hjá Miðflokknum teljum að vanda þurfi til verka þegar kemur að þéttingu byggðar, skoða hana af skynsemi svo hún komi ekki niður á innviðum, grunnþjónustu, íþróttastarfi, heilsugæslu og íbúum. Stoppa þarf aðför að grænum svæðum innan sveitarfélagsinns, auka viðhald og varðveislu þeirra í þágu íbúa. Þéttingarstefna sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu er eitthvað sem við erum öll orðin vör við. Þétting byggðar hefur verið teflt fram óspart í sveitarstjórnapólitík sem lausn á vandamálum innan sveitarfélagsins. Þétting byggðar er sögð eiga að laga húsnæðisvandann og oft talin hagkvæmur kostur þegar kemur að uppbyggingu sveitarfélags vegna auðveldrar tengingar við veitukerfi, skóla, leikskóla og við samgöngur. Allt hljómar þetta eins og sinfónía í eyrum hins almenna borgara þegar þetta er sett upp með þessu móti, en er þetta raunin? Hvaða raunverulegu áhrif hefur illa ígrunduð þétting byggðar á íbúa sveitarfélagsins og hvað sjáum við hafa raungerst. Lóðir á þéttingarreitum eru alla jafna mjög dýrar sem skilar sér í hærra fasteigna- og leiguverði. Fjárhagslegir hagsmunir ráða oft ríkjum þegar skipulag og uppbygging hefst á þéttingarreitum. Vegna þess hve dýrar lóðirnar eru, svarar ekki kostnaði fyrir byggingaraðila að byggja hagkvæmar og lágreistar byggingar. Verktökum er í raun nauðugur einn kostur að hámarka fjölda íbúða og þá verður niðurstaðan oftar en ekki sú að byggja háreistar byggingar og þéttleikinn verður mikill. Þennan vítahring getur bara sveitarfélagið rofið. Bílastæði svarar ekki þörfum íbúa, skuggavarp er meira og algengt er orðið að dagsbirta og sólarljós inn í íbúðir sé ábótavant. Þétting byggðar í grónum hverfum eykur umferðar- og hljóðmengun sem hefur verulega neikvæð áhrif á lýðheilsu íbúa. Skólar og leikskólar svara ekki kalli þéttingarstefnu sveitarfélagana. Börn komast ekki að í leikskóla sökum plássleysis og algengara er orðið að systkini fá ekki pláss í sama leikskóla. Skólabörnum er úthýst í tímabundnum úrræðum/útihúsum á skólalóð og sum hver jafnvel misst bókasafnið innan skólans undir kennslustofu vegna aðstöðuleysis. Með tilkomu útihúsanna er orðin veruleg skerðing á útileiksvæði barnanna. Nemanda hópar í hverjum bekk orðnir of stórir vegna skorts á aðstöðu og miklar byrgðar og aukið álag á kennara. Íþróttir og tómstundir eiga undir högg að sækja vegna þéttingarstefnu sveitarfélaga. Fjöldinn orðin of mikill í sumum íþróttagreinum og komnir eru biðlistar. Ráða þarf inn fleira starfsfólk, auka þarf viðhald á innviðum og tækjabúnaði hjá félögum sem skilar sér í hærri iðgjöldum til iðkenda. Með hærri iðgjöldum skapast ójöfnuður og hvati til stéttaskiptingar innan sveitarfélagsins. Grænu svæðin þarf að varðveita og viðhalda innan sveitarfélagsins og mega þau ekki víkja fyrir þéttingarstefnunni. Mikilvægi grænu svæðanna eru oft virt af vettugi þegar kemur að þéttingu byggðar og skipulagningu nýrra hverfa. Grænu svæðin innan sveitarfélags eru mikilvæg þegar kemur að lýðheilsu fólks, fólk leitar í þau til útiveru og samveru sem skilar sér í bættri sálrænni og félagslegri líðan. Einnig stuðla grænu svæðin innan þéttbýlis að bættum loftgæðum og draga úr hávaða og skjóli gagnvart vindi. Tryggja þarf aðgengi íbúa að grænum svæðum svo þeir njóti góðs af. Höfundur býður sig fram í 3. Sæti á lista fyrir Miðflokkinn í Kópavogi i komandi sveitarstjórnarkosningum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar