Aukum nærþjónustu í Urriðaholti Vilmar Pétursson skrifar 21. apríl 2026 14:02 Urriðaholtið er fyrsta umhverfisvottaða hverfið á Íslandi. Ýmislegt er gert til að draga úr áhrifum byggðarinnar á hina dásamlegu og nærandi náttúru sem umlykur byggðina. Í hverfið vantar hinsvegar ýmsa nærþjónustu sem íbúar þurfa að sækja annað og hefur í för með sér aukna umferð og óþægindi og er úr takti við umhverfisáherslurnar. Samfylkingin í Garðabæ vill því auka og efla þjónustu innan hverfisins. Þau mál sem við setjum þar á oddinn eru: Heilsugæsla í Urriðaholt. Strax verði hafnar formlegar viðræður við Ríkið um heilsugæslu í Urriðaholti. Í skipulagsgögnum er heilsugæsla sérstaklega nefnd sem hluti af fyrirhugaðri þjónustu á Háholtinu. Íbúar í Urriðaholti eru nú orðnir yfir 4000 og stefnir í að þeir verði nálægt 5000 þegar hverfið er fullbyggt. Samsetning íbúanna kallar á mikla þörf fyrir heilsuvernd, ungbarnaeftirlit og forvarnarþjónustu. Íbúafjöldinn ber heilsugæslustöð með 3-4 lækna og 1-2 hjúkrunarfræðinga. Þar mætti einnig vera þverfagleg þjónusta, félagsráðgjafi og sálfræðingur og lítill rannsóknarkjarni. Heilsugæslan í Garðabæ þjónar nú öllu sveitarfélaginu og er nálægt getuþaki. Aðlaðandi og fjölbreytt útisvæði við sundlaug. Verið er að byggja litla innilaug við Urriðaholtsskóla og síðustu skilaboð eru að laugin eigi að vera opin almenningi. Til að þetta verði raunverulegur valkostur fyrir íbúa, foreldra sem vilja koma með börnin, eldri íbúa sem vilja synda aðeins og setjast síðan í pottinn, göngufólk sem vill mýkja sig upp eftir göngur, unglinga sem vilja hitta félagana og spjalla, þarf að gera útisvæðið aðlaðandi og fjölbreytt. Þar sjáum við fyrir okkur marga potta, gufubað, æfingatæki og aðstöðu til að njóta sólar. Bókasafnsþjónusta. Ekki er nein bókasafnsþjónusta fyrir íbúa hverfisins önnur en skólabókasafnið sem sinnir grunnskólabörnum. Við viljum koma á bókasfnsþjónustu í hverfinu. Þar eru ýmsir valkostir eins og að efla og opna skólabókasafnið, koma upp útibúi frá bókasafninu í Garðabæ, pöntunarþjónustu eða bókabíl. Við í Samfylkingunni í Garðabæ munum á næstunni kynna áherslur okkar fyrir bæjarbúum. Við erum búin að bretta upp ermar og erum tilbúin til verka. Höfundur er íbúi í Urriðaholti og skipar 4.sæti á lista Samfylkingarinnar í Garðabæ fyrir komandi sveitastjórnakosningar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Sjá meira
Urriðaholtið er fyrsta umhverfisvottaða hverfið á Íslandi. Ýmislegt er gert til að draga úr áhrifum byggðarinnar á hina dásamlegu og nærandi náttúru sem umlykur byggðina. Í hverfið vantar hinsvegar ýmsa nærþjónustu sem íbúar þurfa að sækja annað og hefur í för með sér aukna umferð og óþægindi og er úr takti við umhverfisáherslurnar. Samfylkingin í Garðabæ vill því auka og efla þjónustu innan hverfisins. Þau mál sem við setjum þar á oddinn eru: Heilsugæsla í Urriðaholt. Strax verði hafnar formlegar viðræður við Ríkið um heilsugæslu í Urriðaholti. Í skipulagsgögnum er heilsugæsla sérstaklega nefnd sem hluti af fyrirhugaðri þjónustu á Háholtinu. Íbúar í Urriðaholti eru nú orðnir yfir 4000 og stefnir í að þeir verði nálægt 5000 þegar hverfið er fullbyggt. Samsetning íbúanna kallar á mikla þörf fyrir heilsuvernd, ungbarnaeftirlit og forvarnarþjónustu. Íbúafjöldinn ber heilsugæslustöð með 3-4 lækna og 1-2 hjúkrunarfræðinga. Þar mætti einnig vera þverfagleg þjónusta, félagsráðgjafi og sálfræðingur og lítill rannsóknarkjarni. Heilsugæslan í Garðabæ þjónar nú öllu sveitarfélaginu og er nálægt getuþaki. Aðlaðandi og fjölbreytt útisvæði við sundlaug. Verið er að byggja litla innilaug við Urriðaholtsskóla og síðustu skilaboð eru að laugin eigi að vera opin almenningi. Til að þetta verði raunverulegur valkostur fyrir íbúa, foreldra sem vilja koma með börnin, eldri íbúa sem vilja synda aðeins og setjast síðan í pottinn, göngufólk sem vill mýkja sig upp eftir göngur, unglinga sem vilja hitta félagana og spjalla, þarf að gera útisvæðið aðlaðandi og fjölbreytt. Þar sjáum við fyrir okkur marga potta, gufubað, æfingatæki og aðstöðu til að njóta sólar. Bókasafnsþjónusta. Ekki er nein bókasafnsþjónusta fyrir íbúa hverfisins önnur en skólabókasafnið sem sinnir grunnskólabörnum. Við viljum koma á bókasfnsþjónustu í hverfinu. Þar eru ýmsir valkostir eins og að efla og opna skólabókasafnið, koma upp útibúi frá bókasafninu í Garðabæ, pöntunarþjónustu eða bókabíl. Við í Samfylkingunni í Garðabæ munum á næstunni kynna áherslur okkar fyrir bæjarbúum. Við erum búin að bretta upp ermar og erum tilbúin til verka. Höfundur er íbúi í Urriðaholti og skipar 4.sæti á lista Samfylkingarinnar í Garðabæ fyrir komandi sveitastjórnakosningar.
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar