Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 28. apríl 2026 08:00 Ingvar í hrossastóðinu. Aðsend Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum. Ingvar P. Guðbjörnsson er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Rangárþingi ytra. Ég heiti Ingvar P. Guðbjörnsson og starfa sem upplýsingafulltrúi Sjálfstæðisflokksins ásamt því að sitja í sveitarstjórn Rangárþings ytra. Þá rek ég lítið sauðfjárbú og stunda tilfallandi fararstjórn í hestaferðum á sumrin. Ég er giftur Charles A. Gittins þýðanda. Við erum í fjarbúð. Ég bý á Hellu og hann í Belgíu. Ég er Rangæingur að uppruna og hef búið á Hellu lengst af ævinnar. Ég settist fyrst í sveitarstjórn árið 2002 og er nú að bjóða mig fram í fimmta sinn til sveitarstjórnar. Ég brenn fyrir sveitarfélagið mitt og fólkið sem þar býr. Óbilandi trú mín á Rangárþingi ytra drífur mig áfram í að taka þátt í sveitarstjórnarstörfunum. Hvar á Íslandi myndir þú búa ef þú mættir ekki búa í þínu sveitarfélagi? „Yrði að vera í Rangárvallasýslu svo Rangárþing eystra eða Ásahreppur yrðu fyrir valinu.“ Hver er uppáhalds bókin þín? „Dalalíf eftir Guðrúnu frá Lundi (öll bindin). Ég las Dalalíf fyrir nokkrum árum og heillaðist alveg að þessari sveitarómantík frá 19. öld sem þar er að finna. Fram að var ég mest fyrir ævisögur og sagnfræðilegar bækur.“ Ef þú þyrftir að skera niður í rekstri sveitarfélagsins þíns um hundrað milljónir, hvar myndir þú skera niður? „Ég myndi standa vörð um grunnþjónustuna. Myndi byrja í efstu lögunum, stjórnsýslunni og svo myndi ég setja aðhaldskröfu á þær stofnanir sem ekki sinna grunnþjónustu. Útgjöldin eru um 3.500 milljónir og ég held að þetta væri vel hægt.“ Ef þú fengir hundrað milljónir til að efla tiltekin verkefni eða svið í sveitarfélaginu, hver væru þau? „Ég myndi forgangsraða fjármagninu í að bæta þjónustu við fólk, í dagdvöl fyrir heilabilaða, í frístundaakstur fyrir börn og ungmenni og í akstur fyrir fatlaða sem dæmi.“ Ingvar og Charles nýgiftir í Oddakirkju 22.júní 2013.Aðsend Hver væri titill ævisögu þinnar? Dag í senn. Ég hef verið í þannig vinnuumhverfi lengi að enginn dagur er eins og ég hef lært að lifa dálítið hvern dag fyrir sig – þó mér finnist reyndar gott að hafa langtímaáætlanir og markmið fram í tímann. En það er þannig með fílinn að maður borðar hann bita fyrir bita – og lífið er svipað. Maður lifir einn dag í einu. Hvort er betra að hringja eða senda skilaboð? Vinir mínir myndu líklega halda því fram að ég svari skilaboðum fyrr. En það fer aðeins eftir erindinu. Hvaða skoðun þín er óvinsæl innan eigin flokks? Mínar skoðanir fara nokkuð saman með mínum flokki í hreinskilni sagt. Það þyrfti eiginlega að spyrja flokksystkin mín að því fremur en mig. Ef þú gætir orðið sérfræðingur í einhverju samstundis, hvað væri það? Ætli það gæti ekki gagnast mér vel að vera sálfræðingur Hvaða ákvörðun myndir þú taka á fyrsta ári í sveitarstjórn sem yrði umdeild? Ég er á því að þegar stofnanir koma með óskir um aukin útgjöld þá eigi þær að hagræða fyrir þeim að einhverjum hluta til að halda í við útgjaldaaukningu. Ég held að það gæti orðið umdeilt innan stjórnsýslunnar. Eins finnst mér mjög áhugaverð sú leið sem Kópavogur er að fara með hækkanir á gjaldskrám að miða fremur við verðbólgumarkmið en að elta verðbólguna og ég myndi vilja koma þeirri aðferðafræði á sömuleiðis sem gæti mögulega orðið umdeilt innan pólitíkurinnar en ég held að íbúarnir myndu fagna því. Þriggja ára á baki Tryllingi í eigu föðurs Péturs.Aðsend Hvað var það síðasta sem þú notaðir gervigreindina í? Ég lét hana gera skopmynd af mér. Nefndu mistök sem þú hefur gert á ævi þinni. Örugglega af nægu að taka. Ég dvel þó sjaldan við hið liðna, allra síst það sem ekki fór vel en reyni að læra af mistökum mínum. Líklega af þeim sökum man ég ekki eftir neinu sérstöku. Hvað er betra í þínu sveitarfélagi en öðrum? Ég reyni að lifa nokkuð hrokalaust – en mér finnst útsýnið, víðsýnið og fjallahringurinn í mínu sveitarfélagi eitthvað sem ég vil ekki vera án og margir aðrir hafa ekki. Hvað borðar þú í morgunmat? Borða aldrei morgunmat. Hvað fer í taugarnar á þér varðandi stjórnun sveitarfélagsins í dag? Mér finnst stundum skorta á að skoða hlutina meira ígrundað og lengra fram í tímann. Hvað finnst þér raunhæft að afreka á næstu fjórum árum? Ég vil sjá hreyfingu á grænum iðngörðum á Strönd og vil að þar verði starfsemi byrjuð að byggjast upp fyrir lok kjörtímabilsins. Eins vil ég sjá meiri þjónustu byggjast upp á Hellu. Með réttum skrefum og meiri markaðssetningu á svæðinu sé ég fullt af sóknarfærum fyrir atvinnulíf á svæðinu. Hvert er uppáhalds lagið þitt? Hallelujah eftir Leonard Cohen snertir alltaf við mér og er líklega uppáhalds lagið mitt. Hvaða mistök hafa verið gerð í þínu sveitarfélagi undanfarin ár? Mistök væru kannski full stór orð – en áhersla á atvinnumál hefur setið á hakanum á kjörtímabilinu og það hefði einnig mátt sinna aðhaldi með útgjöldum betur. Þá held ég að það hefði átt að endurskoða skólastefnuna á kjörtímabilinu en hún er síðan 2021. Hvert er uppáhalds gælunafnið sem þú hefur fengið og af hverju? Vinir mínir gáfu mér það í fertugsafmælisgjöf að gera mig að skoskum lávarði sem ég hafði mjög gaman af, ekki síst þegar þeir kalla mig „lord Ingvar“. Hvaða loforð úr kosningabaráttunni munt þú standa við? Ég hyggst standa við þau öll. Það er betra að hafa raunsæi að leiðarljósi þegar verið er að gefa loforð og að sjá nokkuð fyrir hvernig eigi að standa við það sem maður er að lofa. Vísir skorar á oddvita stjórnmálaflokka út um allt land að taka þátt í Oddvitaáskoruninni til að kynna sig og sín málefni. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast með því að senda póst á siljars@syn.is. Fyrri Oddvitaáskoranir má skoða á síðunni visir.is/p/oddvitaaskorun. Oddvitaáskorunin Rangárþing ytra Sjálfstæðisflokkurinn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Lífið „Maður getur varla beðið um meira“ Lífið „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Lífið Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Lífið Örvar og María Elísabet nýtt listapar Lífið Fresta öðrum tónleikum sínum hérlendis vegna óvænts fráfalls ástvinar Tónlist Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Lífið Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi Lífið „Þú ætlar ekki að verða feilaður rappari“ besta mantran Tónlist Bakaríið í beinni útsendingu Lífið Fleiri fréttir „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Lilja í Cosmo selur aðra perlu Kjartans Korter í fæðingarþunglyndi en fór út að hlaupa viku eftir fæðingu Spurt var um dýr með það harðan skjöld að byssukúlurnar fljúga af þeim Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið Barnastjarnan orðin tveggja barna móðir Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? Ísak Bergmann og Agnes Perla eiga von á barni „Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“ Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Karl Th. Birgisson er látinn Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Sjá meira
Vísir skorar á oddvita stjórnmálaflokka út um allt land að taka þátt í Oddvitaáskoruninni til að kynna sig og sín málefni. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast með því að senda póst á siljars@syn.is. Fyrri Oddvitaáskoranir má skoða á síðunni visir.is/p/oddvitaaskorun.
Oddvitaáskorunin Rangárþing ytra Sjálfstæðisflokkurinn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Lífið „Maður getur varla beðið um meira“ Lífið „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Lífið Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Lífið Örvar og María Elísabet nýtt listapar Lífið Fresta öðrum tónleikum sínum hérlendis vegna óvænts fráfalls ástvinar Tónlist Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Lífið Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi Lífið „Þú ætlar ekki að verða feilaður rappari“ besta mantran Tónlist Bakaríið í beinni útsendingu Lífið Fleiri fréttir „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Lilja í Cosmo selur aðra perlu Kjartans Korter í fæðingarþunglyndi en fór út að hlaupa viku eftir fæðingu Spurt var um dýr með það harðan skjöld að byssukúlurnar fljúga af þeim Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið Barnastjarnan orðin tveggja barna móðir Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? Ísak Bergmann og Agnes Perla eiga von á barni „Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“ Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Karl Th. Birgisson er látinn Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Sjá meira