Innlent

Einn fluttur á slysa­deild eftir á­rekstur

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Tveir bílar höfnuðu saman á Hafnarfjarðarvegi.
Tveir bílar höfnuðu saman á Hafnarfjarðarvegi. Aðsend

Tveir bílar lentu saman á Hafnarfjarðarvegi rétt fyrir klukkan þrjú. Einn var fluttur á slysadeild.

Þetta staðfestir Sigurjón Hendriksson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu.

„Einn sjúklingur var fluttur á slysadeild en hann er ekki talinn vera með alvarlega áverka,“ segir Sigurjón en um er að ræða annan ökumanninn.

Tilkynningin barst um fimm mínútur í þrjú en er starfi á vettvangi lokið. Báðir bílarnir voru óökufærir og voru þeir fluttir af vettvangi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×