Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Kjartan Kjartansson skrifar 25. apríl 2026 09:04 Samkvæmt nýjustu kosningaspánni hafa líkurnar á því að Albert Guðmundsson sjöundi maður Sjálfstæðisflokksins nái kjöri aukist á meðan dregið hefur úr líkum á því að Bjarnveig Bjarnadóttir sjötti maður Samfylkingarinnar nái kjöri. Vísir Sjálfstæðisflokkurinn er kominn með ríflega fjögurra prósentustiga forskot á Samfylkinguna í Reykjavík í kosningaspá Vísis. Sjöundi maður hans á nú meiri líkur á að komast inn en sjötti maður Samfylkingar. Líkur sósíalista að ná inn manni hafa aukist en Flokks fólksins dalað. Kosningaspá Vísis sem Baldur Héðinsson, stærðfræðingur, gerir hefur til þessa bent til þess að Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn fengju sex borgarfulltrúa hvor. Eftir að spáin var uppfærð með nýjustu könnun Maskínu í gær er Sjálfstæðisflokkurinn nú með 4,4 prósentustiga forskot á Samfylkinguna. Miðað við þær tölur á Albert Guðmundsson, sjöundi maður á lista sjálfstæðismanna, 64 prósent líkur á að ná kjöri. Líkurnar voru 29 prósent í byrjun mánaðar. Hildur Björnsdóttir gæti verið oddviti sjö manna borgarstjórnarflokks sjálfstæðismanna eftir kosningar. Hún er nú einn fjögurra fulltrúa flokksins eftir liðhlaup tveggja sjálfstæðismanna til Miðflokksins í vetur.Vísir/Einar Á sama tíma er nú orðið tvísýnt um hvort Samfylkingin nái sjötta manninum inn í borgarstjórn. Bjarnveig Birta Bjarnadóttir, sjötti maður á listanum, er nú með helmingslíkur á kjöri en þær voru 73 prósent fyrir rúmum tveimur vikum. Viðreisn og Vinstrið líklegri en Miðflokkur eins og stendur Sem fyrr eru horfur á því að það ráði úrslitum um hvers kyns meirihluti verður myndaður eftir kosningar hvernig atkvæði dreifast á milli Vinstrisins, Viðreisnar og Miðflokksins. Allir þrír flokkar virðast eiga tvo menn vísa og eygja möguleikann á þeim þriðja. Eins og spáin stendur núna á Stefán Pálsson, þriðji maður á lista Vinstrisins, mestar líkur á að komast inn, 63 prósent. Þorvaldur Davíð Kristjánsson, þriðji maður Viðreisnar, hefur 54 prósent líkur, en Lárus Blöndal, þriðji maður Miðflokksins, 44 prósent líkur. Borgarstjórn Reykjavíkur kosningaspá Helsta breytingin eftir að spáin var uppfærð er sú að Silja Sóley Birgisdóttir, oddviti Sósíalistaflokksins, á nú í fyrsta skipti yfir helmingslíkur á að komast inn í borgarstjórn. Líkurnar mælast 62 prósent en þær voru innan við fjörutíu prósent þegar fyrsta kosningaspáin var birt 7. apríl. Þá eru nú innan við helmingslíkur á að Guðmundur Ingi Þóroddsson, oddviti Flokks fólksins, nái sæti í borgarstjórn. Þær eru 42 prósent en voru yfir helmingi fyrr í mánuðinum. Yfir helmingslíkur eru á því að Framsóknarflokkurinn og Píratar nái einum manni inn í borgarstjórn, hvor í sínu lagi. Einn þriggja flokka meirihluti í spilunum en annar stendur tæpt Meirihlutamyndun gæti orðið snúin ef úrslitin verða í líkingu við spána eins og hún stendur nú. Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin gætu myndað tveggja flokka meirihluta en það er fyrir fram nokkuð ólíkleg niðurstaða þótt aðeins eitt hús skilji að heimili oddvitanna í Vesturbæ Reykjavíkur. Að því gefnu að stóru flokkarnir tveir vilji ekki vinna saman væri eini mögulegi þriggja flokka meirihlutinn samstarf Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Miðflokks. Hann hefði þrettán borgarfulltrúa, ef miðað er við að sjálfstæðismenn nái inn sjö mönnum og að þeir frambjóðendur sem hafa helmingslíkur eða meira í spánni nái kjöri. Tólf borgarfulltrúa þarf til þess að mynda meirihluta. Samfylkingin þyrfti að ná inn sjötta manninum í borgarstjórn til þess að eiga möguleika á að mynda þriggja flokka meirihluta með Vinstrinu og Viðreisn. Um kosningaspána: Kosningaspá Baldurs Héðinssonar byggir á niðurstöðum skoðanakannana. Þeim er gefið vægi út frá þremur þáttum; hversu margir svara könnun, hversu langt er frá því könnunin var gerð og hver stendur að henni. Útkoman er spá um hlutfall atkvæða sem hver flokkur hlýtur. Í framhaldinu hermir kosningaspáin 100.000 sýndarkosningar þar sem flökt er á fylgi. Fyrir hverja niðurstöðu er borgarstjórnarsætum úthlutað. Þær hermanir gefa svo mat á líkum hvers frambjóðanda að ná kjöri. Könnun Maskínu sem var gerð 17.-24. apríl hefur sextíu prósent vægi í nýjustu uppfærslu spárinnar. Könnun Gallup fyrir 1.-15. apríl hefur fjörutíu prósent vægi. Kosningaspá Vísis Skoðanakannanir Reykjavík Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sveitarstjórnarmál Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu Innlent Fleiri fréttir „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Sjá meira
Kosningaspá Vísis sem Baldur Héðinsson, stærðfræðingur, gerir hefur til þessa bent til þess að Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn fengju sex borgarfulltrúa hvor. Eftir að spáin var uppfærð með nýjustu könnun Maskínu í gær er Sjálfstæðisflokkurinn nú með 4,4 prósentustiga forskot á Samfylkinguna. Miðað við þær tölur á Albert Guðmundsson, sjöundi maður á lista sjálfstæðismanna, 64 prósent líkur á að ná kjöri. Líkurnar voru 29 prósent í byrjun mánaðar. Hildur Björnsdóttir gæti verið oddviti sjö manna borgarstjórnarflokks sjálfstæðismanna eftir kosningar. Hún er nú einn fjögurra fulltrúa flokksins eftir liðhlaup tveggja sjálfstæðismanna til Miðflokksins í vetur.Vísir/Einar Á sama tíma er nú orðið tvísýnt um hvort Samfylkingin nái sjötta manninum inn í borgarstjórn. Bjarnveig Birta Bjarnadóttir, sjötti maður á listanum, er nú með helmingslíkur á kjöri en þær voru 73 prósent fyrir rúmum tveimur vikum. Viðreisn og Vinstrið líklegri en Miðflokkur eins og stendur Sem fyrr eru horfur á því að það ráði úrslitum um hvers kyns meirihluti verður myndaður eftir kosningar hvernig atkvæði dreifast á milli Vinstrisins, Viðreisnar og Miðflokksins. Allir þrír flokkar virðast eiga tvo menn vísa og eygja möguleikann á þeim þriðja. Eins og spáin stendur núna á Stefán Pálsson, þriðji maður á lista Vinstrisins, mestar líkur á að komast inn, 63 prósent. Þorvaldur Davíð Kristjánsson, þriðji maður Viðreisnar, hefur 54 prósent líkur, en Lárus Blöndal, þriðji maður Miðflokksins, 44 prósent líkur. Borgarstjórn Reykjavíkur kosningaspá Helsta breytingin eftir að spáin var uppfærð er sú að Silja Sóley Birgisdóttir, oddviti Sósíalistaflokksins, á nú í fyrsta skipti yfir helmingslíkur á að komast inn í borgarstjórn. Líkurnar mælast 62 prósent en þær voru innan við fjörutíu prósent þegar fyrsta kosningaspáin var birt 7. apríl. Þá eru nú innan við helmingslíkur á að Guðmundur Ingi Þóroddsson, oddviti Flokks fólksins, nái sæti í borgarstjórn. Þær eru 42 prósent en voru yfir helmingi fyrr í mánuðinum. Yfir helmingslíkur eru á því að Framsóknarflokkurinn og Píratar nái einum manni inn í borgarstjórn, hvor í sínu lagi. Einn þriggja flokka meirihluti í spilunum en annar stendur tæpt Meirihlutamyndun gæti orðið snúin ef úrslitin verða í líkingu við spána eins og hún stendur nú. Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin gætu myndað tveggja flokka meirihluta en það er fyrir fram nokkuð ólíkleg niðurstaða þótt aðeins eitt hús skilji að heimili oddvitanna í Vesturbæ Reykjavíkur. Að því gefnu að stóru flokkarnir tveir vilji ekki vinna saman væri eini mögulegi þriggja flokka meirihlutinn samstarf Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Miðflokks. Hann hefði þrettán borgarfulltrúa, ef miðað er við að sjálfstæðismenn nái inn sjö mönnum og að þeir frambjóðendur sem hafa helmingslíkur eða meira í spánni nái kjöri. Tólf borgarfulltrúa þarf til þess að mynda meirihluta. Samfylkingin þyrfti að ná inn sjötta manninum í borgarstjórn til þess að eiga möguleika á að mynda þriggja flokka meirihluta með Vinstrinu og Viðreisn. Um kosningaspána: Kosningaspá Baldurs Héðinssonar byggir á niðurstöðum skoðanakannana. Þeim er gefið vægi út frá þremur þáttum; hversu margir svara könnun, hversu langt er frá því könnunin var gerð og hver stendur að henni. Útkoman er spá um hlutfall atkvæða sem hver flokkur hlýtur. Í framhaldinu hermir kosningaspáin 100.000 sýndarkosningar þar sem flökt er á fylgi. Fyrir hverja niðurstöðu er borgarstjórnarsætum úthlutað. Þær hermanir gefa svo mat á líkum hvers frambjóðanda að ná kjöri. Könnun Maskínu sem var gerð 17.-24. apríl hefur sextíu prósent vægi í nýjustu uppfærslu spárinnar. Könnun Gallup fyrir 1.-15. apríl hefur fjörutíu prósent vægi.
Um kosningaspána: Kosningaspá Baldurs Héðinssonar byggir á niðurstöðum skoðanakannana. Þeim er gefið vægi út frá þremur þáttum; hversu margir svara könnun, hversu langt er frá því könnunin var gerð og hver stendur að henni. Útkoman er spá um hlutfall atkvæða sem hver flokkur hlýtur. Í framhaldinu hermir kosningaspáin 100.000 sýndarkosningar þar sem flökt er á fylgi. Fyrir hverja niðurstöðu er borgarstjórnarsætum úthlutað. Þær hermanir gefa svo mat á líkum hvers frambjóðanda að ná kjöri. Könnun Maskínu sem var gerð 17.-24. apríl hefur sextíu prósent vægi í nýjustu uppfærslu spárinnar. Könnun Gallup fyrir 1.-15. apríl hefur fjörutíu prósent vægi.
Kosningaspá Vísis Skoðanakannanir Reykjavík Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sveitarstjórnarmál Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu Innlent Fleiri fréttir „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Sjá meira