Réttur barna til menntunar Salvör Nordal skrifar 23. apríl 2026 15:02 Embætti umboðsmanns barna hefur á síðustu árum fengið fjölmörg erindi vegna barna sem njóta ekki réttinda sinna til menntunar með fullnægjandi hætti. Mismunandi ástæður liggja þar að baki. Dæmi eru um að börn fái ekki skólavist við hæfi, þau séu með skerta stundatöflu og í einhverjum tilvikum hefur þeim verið vísað úr skóla. Þessi börn eiga það flest sameiginlegt að hafa upplifað mikla höfnun vegna þessa, oft nánast frá upphafi skólagöngunnar. Eðli máls samkvæmt finna þau mörg til vanlíðunar og vanmáttar gagnvart skólakerfinu þar sem umhverfið styður ekki við þarfir þeirra. Af þeim erindum sem borist hafa embættinu má sjá að mörg þessara barna eru með taugaþroskaraskanir eins og ADHD eða einhverfu og hafa þurft að bíða árum saman eftir greiningum og viðeigandi stuðningi. Skólasókn Embætti umboðsmanns barna hefur margoft vakið athygli á stöðu þeirra barna sem glíma við það sem kallað hefur verið skólaforðun eða skólasóknarvandi. Erfitt er að átta sig á umfangi vandans þar sem hvergi er skipulega safnað upplýsingum um þennan hóp. Árið 2019 sendi embættið menntamálaráðuneytinu tillögur, að beiðni ráðuneytisins, þar sem meðal annars var lögð áhersla á mikilvægi þess að kortleggja vandann, samræma fjarvistarskráningu í öllum grunnskólum, samræma verkferla, tryggja stuðning við börn og leita eftir sjónarmiðum barna. Nú sjö árum síðar virðist lítið hafa áunnist; ekki er ljóst hversu mörg börn á landinu glíma við skólaforðun og mynda ekki jákvæð tengsl við skólann, einkum vegna þess að það skortir viðeigandi úrræði og stuðning fyrir þennan hóp barna. Kerfisbundin aðgreining innan skólans Skólaskylda er í grunnskólum og börn eiga stjórnarskrárvarinn rétt til menntunar. Samkvæmt 2. gr. grunnskólalaga ber grunnskólum að haga störfum sínum í sem fyllstu samræmi við stöðu og þarfir nemenda og stuðla að alhliða þroska, velferð og menntun hvers og eins. Í aðalnámskrá grunnskóla er einnig fjallað um jöfn tækifæri barna til náms. Þar kemur fram í kafla 7.2 að allir nemendur í grunnskóla eigi rétt á að stunda nám við sitt hæfi og að tækifærin eigi að vera jöfn óháð atgervi og aðstæðum hvers og eins. Í þessu efni á skólinn að vera fyrir öll börn án aðgreiningar. Á nýlegu málþingi um skólaforðun kom fram að hópur barna upplifir kerfisbundna aðgreiningu innan skólans. Þeim er vísað úr skólastofunni, meðal annars vegna þess að þau ráða ekki við aðstæður og þau fá ekki að taka þátt í viðburðum á vegum skólans. Þannig fá þau daglega skilaboð um að þau tilheyri ekki skólasamfélaginu og ættu frekar að sitja heima. Slík höfnun brýtur hvern einstakling niður og það ætti því ekki að koma á óvart að börn sem búa við þetta umhverfi forðist skólann með öllum ráðum. Embætti umboðsmanns barna fær reglulega erindi sem lýsa aðstæðum þessara barna. Skólinn sem á að vera jöfnunartæki og umhverfi þar sem börn vaxa og þroskast verður þessum hópi óbærilegur. Hegðunarvandi barnanna vex í kerfi þar sem þau eru kerfisbundið brotin niður. Á síðustu misserum hafa fjölmargar frásagnir verið birtar um börn og ungmenni sem hafa lent í alvarlegum vímuefnavanda. Það sem þau eiga nánast undantekningalaust sameiginlegt er erfið og útlokandi skólaganga oft nánast frá fyrsta degi. Bið eftir þjónustu Í tölum sem embættið birtir reglulega um bið barna eftir þjónustu kemur fram að bið eftir greiningu hefur vaxið stöðugt á síðustu árum og er biðin orðin 2-3 ár eftir ADHD- og einhverfugreiningu. Við bætist í mörgum tilvikum löng bið hjá sveitarfélögum eftir frumgreiningu. Það er því ekki óalgengt að börn bíði upp undir 5 ár eftir greiningu, eða stóran hluta skólagöngunnar. Formleg greining er ekki forsenda stuðnings en vitanlega getur fagleg greining tryggt að stuðningurinn sé sniðinn að þörfum barnsins og eftir því sem við á nauðsynleg lyf. Ekki liggja fyrir nákvæmar upplýsingar um bið eftir talmeinafræðingum en í skýrslu sem birt var af starfshópi heilbrigðisráðuneytisins árið 2024 kom fram að rétt undir fimm þúsund börn biðu þá eftir þjónustu þeirra. Í þessum hópi eru fjölmörg börn á leikskólaaldri, og ekki þarf að fjölyrða um mikilvægi málþroska við upphaf skólagöngunnar og afleiðingar af langri bið eftir þjónustunni. Börnin bera skaðann Í fjölmiðlum birtast reglulega fréttir þar sem börn eru sögð hafa beitt ofbeldi innan skólans en þegar mál þeirra eru skoðuð er oftar en ekki um að ræða börn sem ráða ekki við þær aðstæður sem þau eru sett í. Það er ekki hægt að ætlast til þess að börn með taugaþroskaraskanir eða aðrar áskoranir aðlagi sig að skólanum heldur verður umhverfi barna að vera þannig úr garði gert að það ýti undir þroska þeirra og styrkleika. Skóli án aðgreiningar krefst þess að öllum börnum standi raunverulega til boða að sækja nám í umhverfi sem hentar þörfum þeirra. Nauðsynlegt er að skólarnir hafi aðgang að viðeigandi úrræðum og að þar starfi fagfólk sem getur stutt við hvert barn svo þau megi öll ná sem bestum þroska á sínum forsendum. Þetta hefur vissulega tekist í mörgum skólum víða um land en staðan er þó sú að of mörg börn standa afar höllum fæti innan skólakerfisins og við því þarf að bregðast tafarlaust. Höfundur er umboðsmaður barna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Salvör Nordal Réttindi barna Mest lesið Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Sjá meira
Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun