Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 24. apríl 2026 15:25 Valgeir Magnússon stjórnarformaður Pipar\TBWA, Silja M. Storhaug, þáverandi framkvæmdastjóri SDG og Nicolay Jernberg, framkvæmdastjóri SDG í dag. Myndin var tekin þegar Pipar\TBWA festi kaup á SDG. Pipar SDG Design Studios, dótturfélag auglýsingastofunnar Pipar\TBW, hefur verið úrskurðað gjaldþrota. Það sem eftir var af starfseminni sameinaðist annarri starfsemi Pipar\TBWA í Noregi undir merkjum SDG. „
Félagið var úrskurðað gjaldþrota í janúar fyrir ári síðan,“ segir Valgeir Magnússon, starfandi stjórnarformaður Pipar\TBWA. Hann tekur fram að þegar félagið fór í þrot hafi verið búið að greiða allar skuldir félagsins nema skuldir til þeirra sjálfra. Tekin var ákvörðun um að úrskurða félagið gjaldþrota til að losna við skuldbindingar félagsins til framtíðar, við fyrri eigendur þess og slíkt að sögn Valgeirs. „Þetta var ekki sett í þrot til að losna úr skuldum heldur voru framtíðarvandamál svo mikil að það var betra að setja það í þrot,“ segir hann. Rekstur félagsins hafi gengið afar illa og hafi félagið verið í verri stöðu þegar Pipar\TBWA keypti það heldur en gert var ráð fyrir. „Það var búið að ganga mjög illa í mjög mörg ár áður en við tókum við.“ Kanarífuglinn í hagkerfinu Valgeir segir auglýsingamarkaðinn í Noregi afar erfiðan. SDG sé ein af þekktustu hönnunarstofum Norðurlandanna en þrátt fyrir það hafi rekstur félagsins verið illa settur. Hins vegar eigi Pipar\TBWA annað fyrirtæki að nafni Ceedr sem er auglýsingastofa á öllum Norðurlöndunum og rekstur þess gangi vel. „Okkar bransi er oft kanarífuglinn í hagkerfinu, þannig að ef hagkerfið kólnar erum við eitt af fyrirtækjunum sem finnum fyrst fyrir því og þá sérstaklega hönnunarhlutinn,“ segir Valgeir. „Það var þannig árin 2024 og 2025 í Noregi að það fóru ein til tvær hönnunarstofur á hausinn í hverjum mánuði.“ Staðan sé ekki eins á Íslandi þar sem olíukreppan og hærra verð á rafmagni í Evrópu hefur ekki eins mikil áhrif hér á landi líkt og í Noregi. Rekstur SDG Design Group gengur því brösulega í dag og er lítill sem enginn hagnaður. „Það gekk rosalega vel fyrir tveimur árum síðan en núna erum við að halda sjó þar,“ segir hann. „Tækifærin eru samt alltaf mjög mikil þannig að allt í einu kemur eitt stórt verkefni og þá er allt geðveikt.“
Auglýsinga- og markaðsmál Gjaldþrot Noregur Mest lesið Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Fleiri fréttir 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Sjá meira