Við erum að missa börnin – ekki bara úr skóla heldur úr tengslum Sara Rós Kristinsdóttir og Soffía Ámundadóttir skrifa 24. apríl 2026 15:31 Mikil umræða hefur átt sér stað í samfélaginu um börn sem eru í skólaforðun. Ekki eru allir sammála um hvaða orð eigi að nota yfir þennan vanda má þar nefna skróp, skólaforðun, skólasóknarvandi, skólahöfnun en þessi orð vísa í að barnið sé vandinn. Á Íslandi í dag er talið að um 1000 börn eigi í skólaforðun. Þessi vandi hefur alltaf verið til staðar en síðustu ár hefur aukningin verið mikil. Samfélagið verður að bregðast við og grípa þessi börn og fjölskyldur þeirra snemma í ferlinu. Ef það tekst ekki þá vex vandinn og getur orðið gríðarlega dýr heilsufarslega og fjárhagslega fyrir alla, barnið, foreldra og samfélagið. Það sem skortir helst er betri gögn, samræmd nálgun og meiri rannsóknir. Umfangið er óljóst, tengsl við andlega og félagslega þætti og þetta ástand hefur mikil áhrif á kerfið í heild sinni ekki bara nemendur og fjölskyldur þeirra. Skólatengsl Í mörg ár hefur verið talað um mikilvægi tengsla og hafa verið gerðar fjölda rannsókna í þeim efnum. Í dag vitum við flest hversu nauðsynlegt það er fyrir okkur mannfólkið að upplifa okkur tilheyra. Það er skólaskylda hér á landi frá 1.- 10.bekk og viljum við að börn fái tækifæri til að blómstra í skólastarfi. Nái að skapa sér góða framtíðarsýn og horft bjartsýnir fram veginn. Þess vegna finnst okkur mikilvægt að við sem samfélag spyrjum okkur að því hvort það sé haft í huga að börn fái að upplifa tengsl í sínum skóla. Rannsóknir hafa sýnt að ef nemandi upplifi jákvæð tengsl við einn kennara sé það verndandi þáttur í lífi barns. Foreldrar, kennarar og þjálfarar eru yfirleitt mikilvægustu aðilar í lífi barns og við verðum að taka þá ábyrgð alvarlega. Örugg tengsl við skóla vísa til þess að barn upplifi skólann sem öruggan, styðjandi og fyrirsjáanlegan stað þar sem það tilheyrir og getur treyst fullorðnum. Barn sem er með örugg tengsl við skólann sinn á því auðveldara með viðveru í skólanum, það er öruggara í allri þátttöku og er óhræddara við að prófa sig áfram í námi og gera mistök. Kennari sem sýnir barni hlýju, hlustar á hvað barnið er að upplifa en bregst ekki bara við hegðun með refsingu, er sanngjarn, skýr og skipulagður er líklegri til að ná tengslum við nemenda sem mun hafa jákvæð áhrif á mætingu og þátttöku barnsins. Viðhorf Þegar barn fer að forðast að mæta í skólann þá getum við spurt okkur hvort það sé vegna þess að barnið sé ekki að upplifa góð tengsl. Þættir sem við viljum horfa í er: Öruggt umhverfi þar sem nemenda líður vel Nemandi upplifi sig tilheyra Nemandi hafi góð tengsl við að minnsta kosti einn starfsmann skólans Fyrirsjáanleiki sé til staðar Námskröfur séu við hæfi Kennsluaðferðir sem henta nemenda Gott og skýrt skipulag og markmið Fjölbreytni og sveigjanleiki í stundaskrá Starf byggt á áhugasviði og styrkleikum nemenda Barn sem er í skólaforðun er að kalla á hjálp og þá er mikilvægt að stíga inn með þau bjargráð sem til þarf hverju sinni. Við þurfum að draga úr átökum, auka samkennd, bregðast við og styrkja tengsl. Samfélagið okkar Þegar tengsl milli barns og skóla hafa rofnað þá þarf að leggja vinnu í að byggja aftur tengslin. Stundum er það unnið í þeim skóla sem barnið hefur verið í en í sumum tilfellum er betra fyrir barnið að fara í annað umhverfi. Skoða þarf vel hvaða skóli verður fyrir valinu og það eru til skólar sem fara óhefðbundnar leiðir miðað við almenna grunnskóla. Börn alveg eins og fullorðnir passa ekki öll í sama boxið og til að auka farsæld barna þá langar okkur að taka saman eftirfarandi punkta. Forgangsraða fjármunum til að leysa vandann Snemmtæk íhlutun, að alltaf sé brugðist við vanda barna strax Að hafa úrval af ólíkum skólum í samfélaginu, með ólíkar áherslur og að þeir séu aðgengilegir Gott aðgengi að ólíkum fagstéttum fyrir almennu skólana svo hægt sé að vinna í þverfaglegu teymi þegar þörf er á Að kennarar hafi ávallt viðeigandi stuðning Lausnir Skólaforðun er ekki bara “einstaklingsvandamál” heldur merki um að eitthvað í umhverfinu virkar ekki. Lausnir þurfa því að koma frá mörgum áttum í einu. Fyrirbyggja frekar en slökkva elda, grípa snemma inn í þegar mæting eða líðan fer að versna — ekki bíða þar til barnið hættir alveg. Sveigjanlegra skólakerfi, bjóða upp á fjölbreyttari leiðir til náms Andleg heilsa í forgrunni, auka aðgengi að sálfræðingum og ráðgjöfum í skólum og kenna börnum að takast á við kvíða og streitu. Sterkari tengsl heimilis og skóla, foreldrar og skóli vinna saman sem teymi í stað þess að vísa ábyrgð á milli. Öruggt og styðjandi skólaumhverfi, draga markvisst úr einelti, félagslegri einangrun og óöryggi. Einstaklingsmiðuð nálgun, spyrja “hvað er að valda þessu hjá þessu barni?” í stað þess að beita sömu lausn fyrir alla. Skólaforðun hjá barni liggur sjaldnast hjá barninu einu, heldur í samspili einstaklings og umhverfis. Með því að setja líðan, öryggi og þarfir nemenda í forgang má draga úr skólaforðun og skapa aðstæður þar sem fleiri geta tekið virkan þátt í námi. Skapað jákvæða framtíðarsýn og stuðlað að því að barnið fái tækifæri til að blómstra. Að lokum viljum við höfundar leggja til að orðið skólatengsl sé notað í stað allra hinna orðanna sem lýsa meira vandanum út frá kerfinu. Annað hvort er barnið með góð skólatengsl eða ekki. Skortur á tengslum við skóla er á ábyrgð allra í samfélaginu. Allir vilja tilheyra. Höfundar: Sara Rós Kristinsdóttir -Lífsstefna og hlaðvarpið 4.vaktin Soffía Ámundadóttir - Verkefnastjóri NýMennt Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið „Noregur hefur aðildarviðræður við Evrópusambandið“ Gunnar H. Garðarsson Skoðun Þjóðin og valdið Guðmundur Ari Sigurjónsson Skoðun Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun Sjáum hvað landsbyggðunum býðst Sæunn Gísladóttir Skoðun Hver er maðurinn? Ragnhildur Jónsdóttir Skoðun Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal Skoðun Hver er munurinn fyrir vinstrið á EES og ESB? Jökull Sólberg Auðunsson Skoðun Innihald náms skiptir máli – ekki umbúðirnar! Ragnheiður Stephensen Skoðun Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson Skoðun Við viljum ekki ganga í ESB Jón Ívar Einarsson Skoðun Skoðun Skoðun Ríkisstjórn sem vandar sig ekki veldur skaða Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Framtíðarsýn um réttlæti og stöðugleika Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Á eigin skinni Gauti Kristmannsson skrifar Skoðun Nú á þjóðin leik – já til að sjá 29. ágúst Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Loksins sameinuð! Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Næsta stafræna gjá Íslands er þegar að myndast Stefán Atli Rúnarsson skrifar Skoðun Varanlegar undanþágur: skýjaborgir eða raunhæf samningsmarkmið? Birgir Finnsson skrifar Skoðun Helvíti hægt Ármann Halldórsson skrifar Skoðun „Noregur hefur aðildarviðræður við Evrópusambandið“ Gunnar H. Garðarsson skrifar Skoðun Umsnúningur hugmyndafræði xD Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Að taka mynd eða að skapa mynd Stefán Hrafn Jónsson skrifar Skoðun Hver er maðurinn? Ragnhildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Tækifæri til bættra samganga Arna Lára Jónsdóttir skrifar Skoðun Þjóðin og valdið Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Innihald náms skiptir máli – ekki umbúðirnar! Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Þegar framsetning verður að umbótum Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir skrifar Skoðun JÁ til að sjá eða NEI til að bjarga sjálfstæðinu? Jón Daníelsson skrifar Skoðun Verðið er skilgreint – varan ekki Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Á meðan þjóðin ræðir ESB er heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga lagt niður Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Sjáum hvað landsbyggðunum býðst Sæunn Gísladóttir skrifar Skoðun Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal skrifar Skoðun Leiftursókn gegn lýðheilsu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Er Ísland í alvöru svo miklu ríkara en umheimurinn? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Hvers vegna ég segi nei 29. ágúst Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þjóðin er alltaf klofin Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Auðlindirnar eru okkar, hvort sem við erum í EES eða ESB Lárus M. K. Ólafsson skrifar Skoðun Bændur á bremsunni Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Vilt þú að Ísland ábyrgist 250 ma.kr. af skuldum ESB? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Hver er munurinn fyrir vinstrið á EES og ESB? Jökull Sólberg Auðunsson skrifar Sjá meira
Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun
Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal Skoðun
Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson Skoðun
Skoðun Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir skrifar
Skoðun Á meðan þjóðin ræðir ESB er heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga lagt niður Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal skrifar
Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun
Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal Skoðun
Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson Skoðun