Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 24. apríl 2026 18:30 Sergej Lavrov er utanríkisráðherra Rússlands. AP Utanríkisráðherra Rússlands segir Vesturlönd hafa lýst Rússlandi stríði á hendur með Úkraínu í broddi fylkingar. Vestrænir leiðtogar tali opinskátt um fyrirætlaða styrjöld við Rússland og vilji nota „Kænugarðsstjórnina“ sem múrbrjót. Þetta er þrátt fyrir að Rússland hafi gert allsherjarinnrás í landið fyrir fjórum árum síðan og staðið í árásum á það í á annan áratug.
Sergej Lavrov utanríkisráðherra Rússlands ávarpaði fund fulltrúa „frjálsra félagasamtaka“ í dag og lét þessi ummæli falla. „Stríði hefur verið lýst á hendur okkur. Kænugarðsstjórnin er notuð sem spjótsoddur. En allir vita að þessi spjótsoddur er bjargarlaus án stuðnings Vesturlanda í formi vopna, upplýsinga, gervihnattakerfa, aðstoðar við herþjálfun og miklu meira. Kænugarðsstjórnina og úkraínska ríkið er verið að nota sem geópólitískan múrbrjót,“ sagði hann samkvæmt rússneska miðlinum Tass sem er í eigu rússneska ríkisins. Lavrov vísar svo til ummæla sem Frederic Vansina aðalhershöfðingi Belgíu lét falla um mikilvægi þess að Evrópa gæti staðið Rússlandi jafnfætis í hernaði án aðstoðar Bandaríkjanna árið 2030. Þau ummæli hafa rússnesk stjórnvöld túlkað sem átyllu fyrir hernaðaruppbyggingu vegna tilvonandi árásar. „Nokkrir bersöglir náungar, ég held að þeir hafi verið í herstjórn Belgíu, lýstu því opinberlega yfir að þeir stæðu í undirbúningi fyrir stríð við Rússland, að Úkraína veiti þeim bara frest. Eins og sagt er, er varla hægt að vera berorðari,“ sagði hann.
Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Úkraína Hernaður Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Sjá meira