Hvar er næsti háskóli? Sjúkrahús? Alþjóðaflugvöllur? Unnur Pétursdóttir skrifar 27. apríl 2026 09:48 Akureyri stendur á tímamótum. Samþykkt hefur verið þingsályktunartillaga þess efnis að Akureyri verði skilgreind sem svæðisborg, sem felur í sér viðurkenningu á hlutverki Akureyrar sem þjónustukjarna fyrir mun stærra svæði en bæjarmörkin ein og sér ná yfir. Það hlutverk er brýnt að efla. Í samtölum við hagaðila bæði innan Akureyrar og um allt Norðurland, hefur komið skýrt fram að erlendir fjárfestar leggja ríka áherslu á grunninnviði þegar þeir kanna tækifæri á svæðinu. Meðal algengustu spurninga þeirra eru: Hvar er næsti háskóli? Hvar er næsta sjúkrahús? Hvar er næsti alþjóðaflugvöllur?Hér hefur Akureyri miklu hlutverki að gegna og ber mikla ábyrgð á því að þessir innviðir séu í lagi. Háskólar, sjúkrahús og flugvellir eru á ábyrgð ríkisins, ekki sveitarfélaga. Þegar ákvarðanir eru teknar fjarri og þekking á staðbundnum aðstæðum gjarnan mismikil, skiptir öflug hagsmunagæsla á Alþingi höfuðmáli. Slík hagsmunagæsla hefur verið lítt áberandi undanfarið. Á því geta verið skýringar, hagsmunagæsla er ekki alltaf háð opinberlega. Sú staða er hins vegar óhjákvæmilega veik að einn stærsti sveitarstjórnarflokkur Akureyrar til margra ára virðist hafa litla sem enga tengingu við Alþingi og þar með takmarkaðar leiðir til samtals og áhrifa. Framtíðarsamtölin Viðreisn hefur haft á sér yfirbragð höfuðborgarflokks og oft fengið ákúrur fyrir að hirða lítt um landsbyggðirnar, gjarnan ranglega. Þegar grannt er skoðað er mikil gerjun í gangi með því að öflug svæðisfélög eru að rísa upp víða um land og það er algerlega ljóst á þeirri þróun sem er að eiga sér stað innan flokksins að Viðreisn ætlar sér að verða verðugur flokkur allra landsmanna. Í þeirri vegferð mun flokksforystan ekki komast upp með neitt annað en að hlusta grannt eftir því sem frá Akureyri kemur. Viðreisn á Akureyri mun leggja sérstaka áherslu á að vera sterk rödd sveitarfélagsins gagnvart ríkisvaldinu og vinna markvisst að því að standa vörð um og efla lykilinnviði til framtíðar. Höfundur er sjúkraþjálfari, frv. formaður Félags sjúkraþjálfara og skipar 7. sæti á framboðslista Viðreisnar á Akureyri fyrir bæjarstjórnarkosningar þann 16. maí 2026. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Akureyri Mest lesið Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Skoðun Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Akureyri stendur á tímamótum. Samþykkt hefur verið þingsályktunartillaga þess efnis að Akureyri verði skilgreind sem svæðisborg, sem felur í sér viðurkenningu á hlutverki Akureyrar sem þjónustukjarna fyrir mun stærra svæði en bæjarmörkin ein og sér ná yfir. Það hlutverk er brýnt að efla. Í samtölum við hagaðila bæði innan Akureyrar og um allt Norðurland, hefur komið skýrt fram að erlendir fjárfestar leggja ríka áherslu á grunninnviði þegar þeir kanna tækifæri á svæðinu. Meðal algengustu spurninga þeirra eru: Hvar er næsti háskóli? Hvar er næsta sjúkrahús? Hvar er næsti alþjóðaflugvöllur?Hér hefur Akureyri miklu hlutverki að gegna og ber mikla ábyrgð á því að þessir innviðir séu í lagi. Háskólar, sjúkrahús og flugvellir eru á ábyrgð ríkisins, ekki sveitarfélaga. Þegar ákvarðanir eru teknar fjarri og þekking á staðbundnum aðstæðum gjarnan mismikil, skiptir öflug hagsmunagæsla á Alþingi höfuðmáli. Slík hagsmunagæsla hefur verið lítt áberandi undanfarið. Á því geta verið skýringar, hagsmunagæsla er ekki alltaf háð opinberlega. Sú staða er hins vegar óhjákvæmilega veik að einn stærsti sveitarstjórnarflokkur Akureyrar til margra ára virðist hafa litla sem enga tengingu við Alþingi og þar með takmarkaðar leiðir til samtals og áhrifa. Framtíðarsamtölin Viðreisn hefur haft á sér yfirbragð höfuðborgarflokks og oft fengið ákúrur fyrir að hirða lítt um landsbyggðirnar, gjarnan ranglega. Þegar grannt er skoðað er mikil gerjun í gangi með því að öflug svæðisfélög eru að rísa upp víða um land og það er algerlega ljóst á þeirri þróun sem er að eiga sér stað innan flokksins að Viðreisn ætlar sér að verða verðugur flokkur allra landsmanna. Í þeirri vegferð mun flokksforystan ekki komast upp með neitt annað en að hlusta grannt eftir því sem frá Akureyri kemur. Viðreisn á Akureyri mun leggja sérstaka áherslu á að vera sterk rödd sveitarfélagsins gagnvart ríkisvaldinu og vinna markvisst að því að standa vörð um og efla lykilinnviði til framtíðar. Höfundur er sjúkraþjálfari, frv. formaður Félags sjúkraþjálfara og skipar 7. sæti á framboðslista Viðreisnar á Akureyri fyrir bæjarstjórnarkosningar þann 16. maí 2026.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar