Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Samúel Karl Ólason skrifar 29. apríl 2026 11:36 Elon Musk í dómshúsi í Kaliforníu í gær. AP/Godofredo A. Vásquez Fyrsti dagur réttarhaldanna í máli Elons Musk gegn Sam Altman, annars stofnanda og núverandi forstjóra gervigreindarfyrirtækisins OpenAI, fór fram í Kaliforníu í gær. Máluðu Musk og lögmenn Altmans mjög mismunandi myndir af uppruna fyrirtækisins en Musk sakaði Altman um að „stela góðgerðafélagi“.
Hann sagði Altman og aðra hafa platað sig svo hann héldi að hann hefði varið tugum milljóna dala í góðgerðafélag sem ætti að þróa gervigreind með þjónustu við mannkynið í huga. Það hafi þó verið blekking og þeir hafi breytt rekstri fyrirtækisins svo það yrði hagnaðardrifið. Lögmenn Altmans og OpenAI segja hins vegar að Musk hafi verið ljóst að til stæði að breyta rekstri félagsins. Hann hefði krafist þess að fá stjórn á félaginu en þegar því hafi verið hafnað hafi hann slitið tengslin við OpenAI í fússi og seinna meir stofnað eigið gervigreindarfyrirtæki. Þeir sögðu að markmið Musks með lögsóknum hans væri eingöngu að reyna að hægja á OpenAI. Sam Altman mætti einnig í dómsal en fór þaðan áður en vitnisburður Musks hófst.AP/Jessica Christian, San Francisco Chronicle OpenAI birti í gær ársfjórðungsuppgjör þar sem fram kom að fyrirtækið náði ekki þeim markmiðum sem stjórnendur höfðu sett þegar kemur að fjölgun notenda og tekjum. Einhverjir af stjórnendum fyrirtækisins eru sagðir hafa áhyggjur af því hvort félagið ráði við áframhaldandi fjárfestingar í gagnaverum. Þá hefur fjármálastjóri OpenAI varað við því að fyrirtækið gæti ekki staðið við skuldbindingar, takist ekki að auka tekjur þess. Hætti og stofnaði eigið fyrirtæki Musk, Altman og nokkrir vísindamenn á sviði gervigreindar stofnuðu OpenAI fyrir rúmum tíu árum, árið 2015. Félagið er hvað þekktast fyrir ChatGPT mállíkanið, sem fjölmargir nota víðsvegar um heiminn. Á endanum yfirgaf Musk þó félagið og stofnaði sitt eigið gervigreindarfyrirtæki árið 2023 sem heitir xAI. Forsvarsmönnum OpenAI varð fljótt ljóst að félagið þyrfti fúlgur fjár til að þróa gervigreind og til að fjárfesta í nauðsynlegum innviðum hennar, eins og gagnaverum. Var rekstri félagsins því breytt. Auðjöfurinn hefur höfðað mál gegn Altman og OpenAI á þeim grundvelli að á sínum tíma hafi stofnendur þess samþykkt að félagið yrði ekki rekið með hagnað í huga. Þess í stað ætti félagið að starfa í þágu mannkyns. Fyrsta málið lét hann falla niður en höfðaði nýtt dómsmál gegn Altman, Greg Brockman, nánasta samstarfsmanni Altmans, og Microsoft, sem hefur fjárfest verulega í OpenAI. Það mál er nú komið fyrir dóm en það gengur út á að Altman og Borckman hafi svikið Musk með því að breyta rekstri OpenAI svo það yrði rekið með hagnað í huga. Musk fer fram á 180 milljarða dala í skaðabætur en það samsvarar um 22 billjónum króna (22.000.000.000.000). Hann vill einnig að Altman og Brockman verði reknir frá OpenAI. Musk bar vitni í dómsal í gær þar sem hann sagði félaginu hafa verið rænt. Hann sagði að lögmenn Altmans myndu reyna að flækja málið en það væri í raun mjög einfalt. „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi.“ Enn fremur hélt Musk því fram að öll góðgerðafélög í Bandaríkjunum væru í hættu, ef hann myndi ekki vinna dómsmálið. Við það greip dómarinn inn í og sagði kviðdómendum að Musk væri að opinbera skoðun sína, sem hefði ekki nokkuð lagalegt gildi, samkvæmt frétt Wall Street Journal. Vildi sjálfur stjórna OpenAI Verjendur Altmans og OpenAI sögðu í gær að það hefðu ekki verið Altman og hinir sem vildu hagnast á OpenAI á sínum tíma heldur hafi það verið Musk. Þess vegna hafi hann hætt í fýlu og stofnað sitt eigið fyrirtæki. Sjá einnig: Birta tölvupósta frá Musk Í opnunarávarpi sínu sagði Wiliam Savitt, lögmaður OpenAI, að eina ástæðan fyrir réttarhöldunum væri sú að Musk hefði ekki fengið vilja sínum framgengt varðandi OpenAI. Hann sagði Musk hafa notað hótanir um fjárveitingar gegn öðrum stofnendum til að ná stjórn á félaginu og að hann hafi viljað sameina OpenAI við bílafyrirtækið Tesla. Lögmaðurinn sagði að Musk sjálfur hefði viljað gera OpenAi að hagnaðardrifnu félagi og að hann vildi sjálfur eiga meira en helminginn í því. Enn fremur sagði hann að engin gögn bentu til þess að Musk hafi verið lofað því að OpenAI yrði aldrei hagnaðardrifið félag, samkvæmt frétt AP fréttaveitunnar. Hefur áhyggjur af gervigreind Sjálfur sagðist Musk hafa viljað stjórna OpenAI til að tryggja að félagið yrði rekið á réttan hátt til að tryggja að engum stafaði ógn af gervigreind. Hann óttaðist á þessum tíma að innan veggja Google, þar sem unnið er að sambærilegri þróun, væri öryggi ekki ofarlega í huga manna. Steven Molo, lögmaður Musks, sagði að án hans hefði OpenAI aldrei orðið til. Hann hefði veitt félaginu fjármagn og fengið sérfræðinga til að vinna þar. Vísaði hann sérstaklega til áhyggja Musks vegna þróunar gervigreindar. Þá vísaði Molo einnig til vandamáls sem kom upp þegar verið var að velja kviðdómendur á mánudaginn. Margir sögðust ekki geta setið í kviðdómnum vegna þess að þeim væri mjög illa við Musk. „Hvort sem ykkur líkar við hann eða ekki, getið þið ekki sagt annað en að hann sé goðsögn í tækniheiminum.“ Þegar hann ræddi við Musk spurði Molo auðjöfurinn út í skoðanir sínar á gervigreind. Musk sagðist þeirrar skoðunar að gervigreind yrði snjallari en nokkur maður gæti orðið á næsta ári og gaf til kynna að hann óttaðist að erfitt yrði að stjórna slíkri greind. Musk rifjaði upp meint samtal sitt við Larry Page, einn af stofnendum Google, um hættuna á því að gervigreind þurrkaði mannkynið út. Hann sagði Page hafa sagt að það væri í góðu lagi, svo lengi sem gervigreindin lifði áfram og sagði Musk að þau ummæli væru „geðveik“. Þetta sagði Musk að hefði leitt til þess að hann teldi þörf á öðru gervigreindarfyrirtæki. Musk mun aftur bera vitni seinna í dag. Óljóst er hvenær Altman mun bera vitni en Satya Nadella, forstjóri Microsoft mun einnig bera vitni í málinu.
Gervigreind Elon Musk Microsoft Bandaríkin Tengdar fréttir OpenAI kippir Sora úr sambandi Sam Altman, forstjóri OpenAI, tilkynnti starfsmönnum í dag að fyrirtækið væri að hætta með Sora-myndbandaþjónustuna. Það er þjónusta sem hefur gert notendum kleift að búa til nokkuð raunveruleg en stutt myndbönd með aðstoð gervigreindar. Ákvörðunin er liður í nokkuð umfangsmiklum breytingum á rekstri gervigreindarfyrirtækisins. 24. mars 2026 22:59 Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Netflix hefur fest kaup á fyrirtækinu InterPositive, kvikmyndafyrirtæki stofnað af Hollywood-leikaranum Ben Affleck. Fyrirtækið framleiðir gervigreindartól fyrir kvikmyndagerð. 8. mars 2026 16:39 Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Vélbúnaðarstjóri OpenAI, sem á gervigreindarmállíkanið ChatGPT, hefur sagt af sér í kjölfar þess að fyrirtækið komst að samningi við Pentagon um notkun þeirra á gervigreindinni. Hún telur fyrirhugaða notkun varhugaverða þar sem Pentagon hafi heimild til að nýta gervigreind til að fylgjast með almennum borgurum. 8. mars 2026 14:24 Hringir viðvörunarbjöllum vegna samkeppni frá Google Sam Altman, forstjóri OpenAI, fyrirtækisins sem er hvað þekktast fyrir ChatGPT mállíkanið sagði starfsmönnum sínum í gær að forsvarsmenn fyrirtækisins væru að hringja viðvörunarbjöllum þar. Búið væri að lýsa yfir neyðarástandi og er það vegna aukinnar samkeppni frá öðrum fyrirtækjum á sviði gervigreindar, sérstaklega vegna samkeppni frá Google. 2. desember 2025 21:40 Mest lesið Verðbólga hjaðnar Viðskipti innlent Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Viðskipti erlent Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Viðskipti innlent Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Viðskipti innlent Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Viðskipti innlent Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Viðskipti innlent Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Viðskipti innlent Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Fleiri fréttir Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Forsvarsmenn Claude láku óvart sínum eigin frumkóða Norðmenn lækka álögur á eldsneyti til að létta undir með landsmönnum Apple hættir framleiðslu Mac Pro-borðtölvunnar Tímamótadómur: Fyrirtækin sjálf ábyrg en ekki notendur OpenAI kippir Sora úr sambandi Orkukreppan vegna Írans trompar öll fyrri skakkaföll Boðar fínstillingu á ETS-kerfinu á næstu dögum Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Ný gervigreindargrafík Nvidia strax umdeild Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Hvetja ESB til að láta ekki undan þrýstingi á ETS-kerfið Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Fellur frá málarekstri og býður Íslendingum afslætti í sáttargjöf Viðskipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu Ráku blaðamann vegna falskra gervigreindartilvitnana Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Sjá meira
OpenAI kippir Sora úr sambandi Sam Altman, forstjóri OpenAI, tilkynnti starfsmönnum í dag að fyrirtækið væri að hætta með Sora-myndbandaþjónustuna. Það er þjónusta sem hefur gert notendum kleift að búa til nokkuð raunveruleg en stutt myndbönd með aðstoð gervigreindar. Ákvörðunin er liður í nokkuð umfangsmiklum breytingum á rekstri gervigreindarfyrirtækisins. 24. mars 2026 22:59
Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Netflix hefur fest kaup á fyrirtækinu InterPositive, kvikmyndafyrirtæki stofnað af Hollywood-leikaranum Ben Affleck. Fyrirtækið framleiðir gervigreindartól fyrir kvikmyndagerð. 8. mars 2026 16:39
Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Vélbúnaðarstjóri OpenAI, sem á gervigreindarmállíkanið ChatGPT, hefur sagt af sér í kjölfar þess að fyrirtækið komst að samningi við Pentagon um notkun þeirra á gervigreindinni. Hún telur fyrirhugaða notkun varhugaverða þar sem Pentagon hafi heimild til að nýta gervigreind til að fylgjast með almennum borgurum. 8. mars 2026 14:24
Hringir viðvörunarbjöllum vegna samkeppni frá Google Sam Altman, forstjóri OpenAI, fyrirtækisins sem er hvað þekktast fyrir ChatGPT mállíkanið sagði starfsmönnum sínum í gær að forsvarsmenn fyrirtækisins væru að hringja viðvörunarbjöllum þar. Búið væri að lýsa yfir neyðarástandi og er það vegna aukinnar samkeppni frá öðrum fyrirtækjum á sviði gervigreindar, sérstaklega vegna samkeppni frá Google. 2. desember 2025 21:40