Viljum við að fatlað fólk sé á vinnumarkaði? Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar 29. apríl 2026 12:17 Nýlegar breytingar á almannatryggingakerfinu auka þörfina á hlutastörfum til handa fólki á hlutaörorku. Átak stjórnvalda hefur litlu skilað, og nú er brýnt að sveitarfélög, ráðuneyti og opinberar stofnanir leggi sitt af mörkum til að markmið breytinganna náist. Aukin atvinnuþátttaka lykilatriði Helstu markmiðin með breytingunum eru að einfalda almannatryggingakerfið, bæta kjör öryrkja og auka atvinnuþátttöku þeirra. Öll eru þessi markmið bæði göfug og ánægjuleg, en það þarf að fylgja breytingunum mun betur á eftir til að þau náist. Ein helsta nýjungin í breyttu kerfi er hlutaörorkulífeyrir. Hlutaörorku fá þau sem metin eru með 26-50% getu til þátttöku á vinnumarkaði og geta því sinnt allt að hálfu starfi. Það gefur auga leið að aukin atvinnuþátttaka þessa fólks krefst þess að fleiri hlutastörf séu í boði. Ábyrgðin liggur hjá fyrirtækjum landsins en ekki síður hjá ráðuneytum, sveitarfélögum og opinberum stofnunum sem nú þurfa að sýna frumkvæði og fordæmi. Það fyrsta sem til þarf er hugarfarsbreyting. Við þurfum að gera ráð fyrir því að fatlað fólk vilji vinna og geti skilað af sér góðu starfi. Öryrkjar eru gríðarlega fjölbreyttur hópur sem býr yfir margvíslegri þekkingu sem nýtist víða í atvinnulífinu. Rétt eins og annað fólk. Háleit markmið en takmarkaður árangur Þau fyrirtæki og stofnanir sem vilja leggja sitt að mörkum eiga greiðan aðgang að þjónustu sem auðveldar þeim að ráða fólk með mismikla starfsgetu. Þar má nefna Unndísi, verkefni á vegum Vinnumálastofnunar, sem veitir fyrirtækjum og stofnunum aðstoð við að meta og aðlaga vinnustaði og greina tækifæri til ráðninga í hlutastörf. Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið kom Unndísarverkefninu á fót að frumkvæði ÖBÍ réttindasamtaka haustið 2024, einmitt til að tryggja að fólk á hlutaörorku ætti greiðari aðgang að vinnumarkaði. Verkefnið hófst af miklum krafti og hlaut verðskuldaða athygli bæði ráðamanna og atvinnulífs. Eftir öfluga kynningu í upphafi hófu nokkur af stærri fyrirtækjum landsins vinnu við heildarmat Unndísar á aðgengi og inngildingu á vinnustað. Unndís hefur hins vegar ekki skilað þeim árangri sem vonast var eftir. Matsferlið er viðamikið og ekkert fyrirtækjanna hefur lokið því að fullu. Staða verkefnisstjóra var einungis fjármögnuð til loka árs 2025, en síðan þá hafa möguleikarnir til að kynna verkefnið og fjölga samstarfsaðilum verið takmarkaðir. Afskaplega lítið hefur því farið fyrir fjölgun hlutastarfa enn sem komið er. Þrátt fyrir mikla áherslu á þátttöku hins opinbera í þessu mikilvæga samfélagsverkefni hefur ekkert ráðuneytanna farið í gegnum matsferlið sem Unndís býður upp á. Einungis tvö sveitarfélög hafa nýtt sér þjónustuna að einhverju marki, annars vegar Árborg, sem var boðið sérstaklega að verða fyrsta sveitarfélagið sem færi í gegnum heildarmat verkefnisins, og hins vegar Reykjavíkurborg. Fleiri sveitarfélög hafa sýnt Unndísi áhuga, en ekkert þeirra hefur hellt sér út í verkefnið af fullum krafti. Betur má ef duga skal. Við þurfum að vinna markvisst að því að gera vinnumarkaðinn aðgengilegri fötluðu fólki og vekja athygli á þeim atvinnutækifærum sem í boði eru. Sú vinna krefst tíma, fjármagns og metnaðar. Það er ekki nóg að haka bara í boxið og bíða eftir því að fatlaður einstaklingur sæki um vinnu. Sveitarfélögin eru í kjöraðstöðu til að fjölga hlutastörfum og því er lítill áhugi þeirra á Unndísi mikil vonbrigði. Fjölbreyttur stuðningur í boði En hvað kemur fatlað fólk með að borðinu? Fyrst og fremst er það fjölbreytt starfsreynsla, menntun og þekking. Þá nefna Unndísarfyrirtækin að fjölbreyttari vinnumarkaður stuðli að auknum jöfnuði og samkennd, efli nýsköpun og styrki starfsumhverfið. Að aðgengi að atvinnu snúist um að veita fólki raunveruleg tækifæri til að leggja sitt af mörkum. Þar fyrir utan stendur ýmiss konar fjárhagslegur stuðningur til boða. Við ráðningu fólks með hlutaörorku eða sjúkra- og endurhæfingargreiðslur getur vinnuveitandi fengið greitt sem nemur grunnatvinnuleysisbótum í allt að tvö ár. Fullar slíkar bætur eru 384 þúsund krónur en greitt er í samræmi við starfshlutfall. Við ráðningu öryrkja býðst 75% endurgreiðsla launa og launatengdra gjalda fyrstu tvö árin. Eftir það lækkar endurgreiðslan um 10% á ári en verður aldrei minni en fjórðungur. Fleiri hlutastörf eru öllum í hag Hlutaörorkugreiðslur nema einungis 82% af fullum örorkulífeyri, en á móti kemur hærra frítekjumark atvinnutekna. Almennt frítekjumark er 105 þúsund krónur, en til viðbótar getur fólk á hlutaörorku haft allt að 263 þúsund krónum í atvinnutekjur á mánuði án þess að lífeyrisgreiðslur skerðist. Einstaklingar í þessum hópi eru því bókstaflega háðir því að finna sér hlutastarf til að tryggja sér mannsæmandi framfærslu til lengri tíma. Breytingarnar á almannatryggingakerfinu hafa ekki hlotið náðuga meðferð í pólitískri umræðu. Þar virðist allt leyfilegt þessa dagana, án tillits til þess hverjir verða fyrir beinskeyttum athugasemdum sem oft snúast um að ná höggi á pólitíska andstæðinga. Fyrrverandi dómsmálaráðherra Íslands leyfði sér til dæmis að kalla sjúkra- og endurhæfingargreiðslurnar „örorku light“, eins og þær væru einhvers konar aðgangsmiði að hinni margrómuðu og eftirsóttu tilveru íslenska öryrkjans. Markmiðið er hins vegar þveröfugt – að styðja fólk í því að snúa aftur á vinnumarkað eftir slys, sjúkdóma eða áföll. Við þurfum á öflugu átaki að halda til að fjölga hlutastörfum og greiða fyrir aukinni atvinnuþátttöku fatlaðs fólks. Það gerist ekki af sjálfu sér. Við í Sjálfsbjörg, landssambandi hreyfihamlaðra, hvetjum þau fyrirtæki og opinberar stofnanir sem hafið hafa samstarf við Unndísi eindregið til þess að klára verkið. Enn fremur hvetjum við sveitarfélög landsins til að taka virkan þátt í því mikilsverða verkefni sem fjölgun hlutastarfa vissulega er. Án frekari aðgerða ganga breytingarnar á almannatryggingakerfinu hreinlega ekki upp. Höfundur er formaður Sjálfsbjargar, landssambands hreyfihamlaðra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þuríður Harpa Sigurðardóttir Málefni fatlaðs fólks Mest lesið Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar