Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Smári Jökull Jónsson skrifar 30. apríl 2026 15:23 Halla Tómasdóttir forseti Íslands og maki hennar Björn Skúlason voru viðstödd hátíðarmessu í Slottskyrkan í Stokkhólmi í morgun í tilefni af 80 ára afmælis Karls Gústafs XVI Svíakonungs. Vísir/Getty/Kungahuset Mikið er um dýrðir í Svíþjóð í dag þegar Karl Gústaf XVI Svíakonungur fagnar áttræðisafmæli. Halla Tómasdóttir forseti Íslands er í Stokkhólmi ásamt forsetamakanum Birni Skúlasyni en þjóðhöfðingjar allra Norðurlanda eru viðstaddir afmælishátíðina auk fjölda annarra þjóðarleiðtoga og gesta.
Karl Gústaf varð þjóðhöfðingi Svíþjóðar árið 1973 og er sá konungur sem lengst hefur setið í því embætti þar í landi. Hann tók við embætti þegar afi hans lést en faðir Karls hafði látist í flugslysi þegar Karl var aðeins nokkurra mánaða gamalla. Karl og Sylvía drottning hafa verið gift frá árinu 1976 og eiga þau þrjú börn, krónprinsessuna Viktoríu fædda árið 1977, Karl Filippus sem fæddur er 1979 og Magdalenu fædda árið 1982. Þá eiga þau Karl Gústaf og Sylvía níu barnabörn. Karl Gústaf og Sylvía ásamt börnum sínum og barnabörnum en lengst til hægri er Viktoría krónprinsessa.Vísir/Getty Veisluhöldin í Stokkhólmi hófust snemma í morgun. Sænska þjóðfánanum var flaggað klukkan átta um morguninn og fyrir hádegið var öll konungsfjölskyldan viðstödd guðsþjónustu í Slottskyrkan þar sem Halla Tómasdóttir forseti Íslands og maki hennar Björn Skúlason voru viðstödd ásamt þjóðhöfðingjum hinna Norðurlandanna. Halla Tómasdóttir forseti Íslands og Björn Skulason maki hennar voru viðstödd guðsþjónustu í Slottskyrkan í morgun.Kungahuset Hefð er fyrir því að sænski herinn heiðri konunginn í hallargarðinum á afmælisdaginn og þar hafði mikill fjöldi fólks safnast saman til að hylla Karl Gústaf. JAS-herþotur flughersins flugu yfir og fylgdist Karl Gústaf glaður með af svölum hallarinnar ásamt allri konungsfjölskyldunni. Hermenn sænska hersins hylltu Karl Svíakonung í morgun.Kungahuset Í kjölfarið afhentu börn konungnum blóm og nú eftir hádegið var á dagskrá hádegisverður í boði borgarráðs Stokkhólms og loks hátíðarkvöldverður í konungshöllinni í kvöld. Börn afhentu konungnum blóm.Vísir/Getty Karli Gústafi var fagnað á svölum konungshallarinnar í morgun ásamt fjölskyldu sinni.Vísir/Getty Halla Tómasdóttir sést hér á mynd ásamt meðal annars Friðriki Danakonungi og Alexander Stubb forseta Finnlands.Kungahuset JAS-herþotur flugu yfir konungshöllina.Vísir/Getty
Svíþjóð Kóngafólk Karl Gústaf XVI Svíakonungur Halla Tómasdóttir Forseti Íslands Tímamót Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira