Halla Tómasdóttir

Fréttamynd

Þessi fjór­tán voru sæmd fálka­orðunni

Halla Tómasdóttir forseti sæmdi í dag fjórtán manns heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Þeirra á meðal eru rithöfundurinn Andri Snær Magnason, matreiðslumeistarinn Hrefna Sætran og fyrirliði Grindavíkur í körfuknattleik, Ólafur Ólafsson.

Innlent
Fréttamynd

Ræða Höllu: Styrk­leikar Ís­lendinga, sam­takamáttur og skoðana­skipti

Halla Tómasdóttir forseti Íslands fór um víðan völl í hátíðarræðu sinni á hátíðarstund lýðveldisins á Austurvelli í dag. Hún hafði meðal annars orð á því að styrkleikar Íslendinga væru mikilvægir á tímum átaka, umbreytinga og óvissu og að fram undan væru mikilvægar ákvarðanir um framtíð Íslands.

Innlent
Fréttamynd

Dag­skráin í Reykjavík á 17. júní verður svona

Þjóðhátíðardagur Íslendinga er á miðvikudaginn, þann 17. júní, og í tilefni hans verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá um allt land. Í miðbæ Reykjavíkur verður götum lokað á meðan hátíðarhöldunum stendur en meðal þess helsta sem fram kemur í upptalningu dagskrárliða á vef borgarinnar er skrúðganga, tíu ára plötusnúður, fornbílasýning og harmonikkuball. 

Lífið
Fréttamynd

Á­nægja með Höllu eykst

Rúmur helmingur þjóðarinnar er ánægður með störf Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands. Ánægjan með störf hennar hefur aukist það sem af er ári.

Innlent
Fréttamynd

„Hann heitir bara Leó páfi held ég“

Umdeildur málflutningur kanslara kaþólsku kirkjunnar á Íslandi um samkynhneigða var ekki ræddur á fundi forseta lýðveldisins með Leó fjórtánda páfa í dag. Forsetinn segist ávallt tala fyrir jafnréttisgildum Íslendinga en áherslan hafi frekar verið á stöðu heimsmálanna. Ljóst sé hvað nýi páfinn verði kallaður í samfélagsmiðlafærslum.

Innlent
Fréttamynd

For­setinn á fund páfans

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, mun funda með Leó XIV, páfa, í Vatíkaninu í dag. Hún er stödd á Ítalíu í vinnuferð en seinna í dag mun Halla einnig hitta æðsta embættismann Páfagarðs og forseta Ítalíu.

Innlent
Fréttamynd

Halla fagnaði átt­ræðum Karli Gústafi

Mikið er um dýrðir í Svíþjóð í dag þegar Karl Gústaf XVI Svíakonungur fagnar áttræðisafmæli. Halla Tómasdóttir forseti Íslands er í Stokkhólmi ásamt forsetamakanum Birni Skúlasyni en þjóðhöfðingjar allra Norðurlanda eru viðstaddir afmælishátíðina auk fjölda annarra þjóðarleiðtoga og gesta.

Innlent
Fréttamynd

Plokkað af krafti með forsetamaka

Stóri plokkdagurinn verður haldinn um allt land í dag. Dagurinn er orðinn fastur liður í vorinu og hefur verið haldinn árlega frá 2018, þegar verkefnið hófst sem samstillt átak til að hvetja almenning, félagasamtök, fyrirtæki og sveitarfélög til að taka höndum saman og hreinsa nærumhverfið.

Lífið
Fréttamynd

Halla gerir undan­tekningu vegna andlátsins

Halla Tómasdóttir forseti Íslands deilir mjög sjaldan færslum á sinni persónulegu Facebook-síðu. Í dag gerði hún hins vegar undantekningu á því er hún skrifaði fallega færslu þar sem hún minnist Björgvins Halldórssonar.

Lífið
Fréttamynd

Gervi­greind, á­byrgð og fram­tíð sam­fé­lags okkar

Á undanförnum árum höfum við orðið vitni að örum tækniframförum sem eru að breyta lífi okkar með margvíslegu móti. Í raun hefur bylting átt sér stað, bylting sem sér ekki fyrir endann á. Hröð þróun gervigreindar mun halda áfram að hafa djúpstæð og víðtæk áhrif á samfélag okkar, þar með talið menntun, störf og lýðræðislega umræðu.

Skoðun
Fréttamynd

For­seti Slóveníu mætir á af­mælis­degi Vig­dísar

Nataša Pirc Musar, forseti Slóveníu, kemur til landsins þann 15. apríl í tengslum við árlegt Velsældarþing í Reykjavík. Þar tekur hún ásamt Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, þátt í samtali um leiðtoga í breyttum heimi í Veröld, húsi Vigdísar, en dagurinn er einmitt afmælisdagur Vigdísar Finnbogadóttur. 

Innlent
Fréttamynd

„Kalli“ setti Höllu í ó­þægi­lega stöðu með ó­væntri gjöf

Karl Bretakonungur setti Höllu Tómasdóttur forseta í nokkuð óþægilega stöðu þegar hún heimsótti Buckingham-höll í nóvember síðastliðnum. Ákveðið hafði verið að engin gjafaskipti færu fram en „Kalli“ eins og hún kallaði hann kom henni á óvart með rauðri gjafaöskju en Halla kom tómhent til Bretlands.

Lífið
Fréttamynd

Björn kemst ekki til Melaniu

Birni Skúlasyni, eiginmanni Höllu Tómasdóttur forseta, hefur verið boðið að vera viðstaddur fyrsta fund átaksins Fostering the Future Together í Hvíta húsinu. Hann sér sér hins vegar ekki fært að þiggja boðið.

Innlent
Fréttamynd

Sig­ríður Björk og Jón Karl til Bessa­staða

Sigríður Björk Gunnarsdóttir hefur verið ráðin fjármála- og rekstrarstjóri embættis Forseta Íslands. Ráðningarferli fyrir stöðu sérfræðings hjá embættinu er einnig lokið og var Jón Karl Helgason ráðinn í starfið.

Innlent
Fréttamynd

Tók hálf­tíma að þróa full­komna eftir­líkingu af rödd Höllu

Stofnandi og framkvæmdastjóri Defend Iceland bjó til gervigreindarútgáfu af rödd Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands. Hann bjó til gervi-Höllu fyrir öryggisráðstefnu og til að sýna hversu auðvelt er að falsa raddir annarra. Umræða hófst eftir að lögregla frétti af fölskum símtölum í nafni fyrrverandi ríkislögreglustjóra.

Innlent
Fréttamynd

For­sætis­ráð­herra muni alltaf hafa sam­ráð við for­seta

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að mikilvægt sé að tryggja sjálfstæði forsetaembættisins og segir að tillaga um að forsætisráðherra skipi forsetaritara sé millileið. Tillagan komi frá forsætisráðherra en að viðhöfðu samráði við forsetann. Mikilvægt sé að tillagan verði tekin til umræðu í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd.

Innlent
Fréttamynd

Segir um að ræða al­var­lega að­för að sjálf­stæði for­seta Ís­lands

Ólafur Ragnar Grímsson fyrrverandi forseti Íslands segir að það yrði alvarleg aðför að að sjálfstæðri stöðu forseta Íslands ef forsætisráðherra verður falið vald yfir vali á forsetaritara, æðsta embættismanni forseta Íslands. Hann segist ekki hafa neina trú á því að Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra ætli sér að breyta um stefnu og efna í aðför að sjálfstæði embættisins.

Innlent
Fréttamynd

Halla T meðal sofandi risa

Elegansinn var í fyrirrúmi í opnunarteiti Kristjáns Maack á ljósmyndasýningunni Sofandi risar. Meðal gesta voru Heiða Björg borgarstjóri og Halla Tómasdóttir forseti.

Menning