Formúla 1

Verstappen fá­máll um fram­tíð sína

Aron Guðmundsson skrifar
Max Verstappen er allt annað en hrifinn af blaðamanni The Guardian
Max Verstappen er allt annað en hrifinn af blaðamanni The Guardian Vísir/Getty

Fjórfaldi Formúlu 1 heimsmeistarinn Max Verstappen, ökuþór Red Bull Racing, segist gefa sér þann tíma sem hann þurfi til að íhuga framtíð sína í mótaröðinni.

Greint var frá því eftir keppnishelgi Formúlu 1 í Japan undir lok mars að svo gæti farið að Verstappen, sem hefur verið óánægður með þróunina í mótaröðinni, gæti yfirgefið Formúlu 1 eftir yfirstandandi tímabil. 

Sökum ástandsins í Mið-Austurlöndum varð ekkert af keppnishelgum Formúlu 1 í Sádi-Arabíu og Katar og því hefur liðið rúmur mánuður frá síðustu keppnihelgi. 

Red Bull hefur ekki farið vel af stað á tímabilinu og hefur Verstappen nýtt pásuna í Formúlu 1 til þess að reyna fyrir sér í öðrum keppnum, til að mynda á Nordchleife í Þýskalandi. 

„Ég hef enn tíma og mun taka mér þann tíma sem ég þarf,“ sagði Verstappen aðspurður um framtíð sína í Formúlu 1 af blaðamönnum í Miami þar sem að keppnishelgi Formúlu 1 hefst í dag. 

Óvissa er uppi varðandi það hvort Red Bull hafi tekist að minnka bilið í keppninauta sína í pásunni sem stóð yfir í Formúlu 1.

„Ég vona bara að við náum að hrista af okkur þetta miðjumoð. Farið að berjast framar.“ 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×