Er byggðastefna á Íslandi? Eyþór Stefánsson skrifar 3. maí 2026 09:01 Af mörgum ómerkilegum plöggum ríkisvaldsins hljóta byggðaáætlanir og aðgerðaáætlanir þeirra að vera eitt það alla ómerkilegasta. Í landi hvar leitun er að annarri eins bjögun á íbúadreifingu er niðurlægjandi fyrir landsbyggðirnar að litlum 650 milljónum sé varið í byggðamál. Það er plástur á svöðusár. Byggðastofnun og Innviðaráðuneytið héldu nýverið fund á Egilsstöðum þar sem farið var yfir drög að nýrri aðgerðaáætlun byggðaáætlunar. Óskandi væri að einhver þingmaður hvað þá ráðherra færi að sýna byggðamálum raunverulegan áhuga. Stöðugreining Frá 2011(sjá mynd) hefur hlutfall íbúa á Höfuðborgarsvæðinu ríflega staðið í stað í ca. 63 % á tíma þar sem húsnæðismál í höfuðborginni hafa verið með versta móti. Svæði í kringum höfuðborgarsvæðið hafa notið góðs af því og hefur hlutfall íbúa milli Hvítánna farið úr ríflega 75% árið 2000 í ríflega 80% árið 2025 (sem réttir hlut landsbyggðarinnar í grafinu hér fyrir neðan). Sé markmið byggðaáætlunar að halda vondu ástandi í horfinu má því færa rök fyrir að það hafi tekist. Markmið byggðaáætlunar Markmið byggðaáætlunar skiptast í þrennt; Jafna aðgengi að þjónustu, jafna tækifæri til atvinnu og stuðla að sjálfbærri þróun byggða um allt land. Settar eru fram aðgerðir og mælikvarðar til að ná fram þessum markmiðum. Af hverju er ekki aðalmarkmið og jafnvel eina markmið byggðaáætlunar að minnka hlutfall þeirra sem búa milli Hvítánna? Af hverju er ekki helsti mælikvarði byggðaáætlunar hlutfall íbúa á höfuðborgarsvæðinu og fjármagn sett í málaflokkinn í samræmi við árangur? Þjóð meðal þjóða? Metnaðarleysi Íslendinga í byggðamálum er viðvarandi og algert. Það væri kannski ekki jafnathyglivert nema fyrir hversu bjöguð íbúadreifingin er á Íslandi og höfuðborgin þar að auki á virku jarðskjálftasvæði. Aðrar þjóðir hafa talið eðlilegt að fara í metnaðarfullar aðgerðir til að vinna að fólksfjölgun annars staðar en á sínu þéttasta svæði en þar má nefna sem dæmi: Kuwait – Um 70-90% þegna Kuwait búa í kringum höfuðborgina Kuwait city. Yfirvöld þar í landi vinna að því að byggja 12 nýjar borgir í gegnum verkefnið Vision 2035 sem staðsettar eru fjarri þéttbýlasta svæðinu. Írland – Írar settu af stað verkefnið Project Ireland sem hefur það m.a. að markmiði að íbúafjölgun landsins fari fram utan Dublin með sérstakri áherslu á staðina Cork, Limerick, Galway og Waterford. Noregur – Noregur býður upp á skattkerfi sem hvetur til búsetu fjarri Osló t.d. með þrepaskiptu tryggingagjaldi (því fjær Osló því hærri afsláttur), hærri persónuafslætti og lægri tekjuskatti einstaklinga sem búa fjærst Osló. Japan – Til að vinna gegn þéttingu í Tokyo hafa Japönsk stjórnvöld t.d. veitt einstaklingum og fjölskyldum styrki upp 1-3 milljón jen fyrir það að flytja frá Tokyo yfir í skilgreind dreifbýlari svæði. Stjórnvöld á Íslandi setja hins vegar umtalsvert meira fjármagn í samgöngusáttmála höfuðborgarinnar heldur en í málaflokkinn byggðamál. Sama gamla sagan Í drögum að nýrri aðgerðaáætlun eru margar kunnuglegar aðgerðir sem verið hafa þar um nokkurra hríð ásamt nokkrum nýjum. Auðvitað eru margar aðgerðirnar góðar og gagnlegar en þær verða ekki þess valdandi að veita landsbyggðunum nauðsynlega viðspyrnu. Þetta er ennþá byggðastefnan „Allir suður“. Meðal annars eru aðgerðir um Borgarstefnu partur af byggðaáætlun sem er fjarri því sem byggðamál á Íslandi ættu að snúast um. Þó er ein ný aðgerð sem er meira spennandi en aðrar en hún snýr að því greina byggðatengdar ívilnanir. Þó aðgerðin ein og sér muni ljúka með skýrslu sem líkast til verður ekkert gert með gæti þessi aðgerð orðið fyrsta skref í því að koma upp áþekku kerfi og í Noregi þar sem er þrepaskipt tryggingagjald og skattar á þegna fjærst höfuðborginni yrðu lækkaðir. En það sem vantar áþreifanlega að mati undirritaðs í aðgerðaáætlunina er m.a. eftirfarandi: Aðgengi að háskólanámi – Það þarf að tryggja fjarnám svo fólk sem skotið hefur rótum á landsbyggðinni þurfi ekki að rífa þær upp til að mennta sig. Hér þarf bæði að huga að grunnnámi og framhaldsnámi. Þetta var hægt í Covid. Flug sem almenningssamgöngur – Á Íslandi er ekki lestarkerfi og því þarf innanlandsflugið að þjóna íbúum landsbyggðarinnar sem slíkt. Ekki bara til að sækja nauðsynlega heilbrigðisþjónustu heldur þær stofnanir og þjónustu sem ríkið velur að staðsetja á suðvesturhorninu t.d. Keflavíkurflugvöll, Hörpu tónleikahús okkar allra, Þjóðleikhúsið okkar allra, þjóðarleikvanginn okkar allra, Sinfoníuhljómsveit okkar allra, dansflokkurinn okkar allra o.fl. o.fl. o.fl. (hér væri hægt að halda endalaust áfram). Vetrarþjónusta – Hvað er vetrarþjónusta af hálfu ríkisins annað en eitt stærsta byggðamál landsins? Fjármagn til byggðamála – Aðgerðin myndi snúa að því að setja nýjan mælikvarða á byggðaáætlun í heild sem fæli í sér að stjórnvöld hvers tíma settu fram töluleg markmið um hversu hátt hlutfall landsmanna skal búa milli Hvítánna. Fjármagni yrði svo varið í málaflokkinn byggðamál út frá því hvernig gengi að ná því markmiði. Það er tími til kominn að landsbyggðunum sé gert hærra undir höfði og hlutur þeirra réttur.. Við búum öll saman í þessu landi og mál til komið að byggðum þessa lands sé sýnd sú lágmarksvirðing að byggðamál fái einhvern sess í fjárlögum. Með sanna jafnaðarmenn við stjórn ætti það að geta raungerst. Höfundur er sveitarstjórnarfulltrúi í Múlaþingi og stjórnarmaður í SSA. Hann er einnig í 2.sæti á L-lista sameiginlegu framboði Austurlistans og Viðreisnar í Múlaþingi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Múlaþing Byggðamál Mest lesið Þjóðin og valdið Guðmundur Ari Sigurjónsson Skoðun „Noregur hefur aðildarviðræður við Evrópusambandið“ Gunnar H. Garðarsson Skoðun Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun Sjáum hvað landsbyggðunum býðst Sæunn Gísladóttir Skoðun Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal Skoðun Hver er munurinn fyrir vinstrið á EES og ESB? Jökull Sólberg Auðunsson Skoðun Hver er maðurinn? Ragnhildur Jónsdóttir Skoðun Innihald náms skiptir máli – ekki umbúðirnar! Ragnheiður Stephensen Skoðun Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson Skoðun Við viljum ekki ganga í ESB Jón Ívar Einarsson Skoðun Skoðun Skoðun Framtíðarsýn um réttlæti og stöðugleika Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Á eigin skinni Gauti Kristmannsson skrifar Skoðun Nú á þjóðin leik – já til að sjá 29. ágúst Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Loksins sameinuð! Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Næsta stafræna gjá Íslands er þegar að myndast Stefán Atli Rúnarsson skrifar Skoðun Varanlegar undanþágur: skýjaborgir eða raunhæf samningsmarkmið? Birgir Finnsson skrifar Skoðun Helvíti hægt Ármann Halldórsson skrifar Skoðun „Noregur hefur aðildarviðræður við Evrópusambandið“ Gunnar H. Garðarsson skrifar Skoðun Umsnúningur hugmyndafræði xD Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Að taka mynd eða að skapa mynd Stefán Hrafn Jónsson skrifar Skoðun Hver er maðurinn? Ragnhildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Tækifæri til bættra samganga Arna Lára Jónsdóttir skrifar Skoðun Þjóðin og valdið Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Innihald náms skiptir máli – ekki umbúðirnar! Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Þegar framsetning verður að umbótum Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir skrifar Skoðun JÁ til að sjá eða NEI til að bjarga sjálfstæðinu? Jón Daníelsson skrifar Skoðun Verðið er skilgreint – varan ekki Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Á meðan þjóðin ræðir ESB er heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga lagt niður Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Sjáum hvað landsbyggðunum býðst Sæunn Gísladóttir skrifar Skoðun Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal skrifar Skoðun Leiftursókn gegn lýðheilsu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Er Ísland í alvöru svo miklu ríkara en umheimurinn? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Hvers vegna ég segi nei 29. ágúst Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þjóðin er alltaf klofin Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Auðlindirnar eru okkar, hvort sem við erum í EES eða ESB Lárus M. K. Ólafsson skrifar Skoðun Bændur á bremsunni Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Vilt þú að Ísland ábyrgist 250 ma.kr. af skuldum ESB? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Hver er munurinn fyrir vinstrið á EES og ESB? Jökull Sólberg Auðunsson skrifar Skoðun Við viljum ekki ganga í ESB Jón Ívar Einarsson skrifar Sjá meira
Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun
Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal Skoðun
Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson Skoðun
Skoðun Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir skrifar
Skoðun Á meðan þjóðin ræðir ESB er heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga lagt niður Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal skrifar
Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun
Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal Skoðun
Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson Skoðun