Brottflutningur bandarísks herliðs frá Evrópu Arnór Sigurjónsson skrifar 4. maí 2026 07:00 Trump, forseti Bandaríkjanna hefur ákveðið að fækka í her Bandaríkjamanna sem staðsettur er í Evrópu. Fyrstu fimm þúsund hermennirnir sem kvaddir eru heim eru staðsettir í Þýskalandi, en fleiri munu fylgja á eftir, þ.á.m. frá Ítalíu og Spáni. Þessi ákvörðun kemur í kjölfar rúmlega klukkustundar langs símtals forseta Bandaríkjanna og Rússlands í síðustu viku. Áhrifin af því að draga bandarískar bardagasveitir tilbaka með þessum hætti án samráðs við bandamenn veikir fælingarmátt og varnargetu NATO. Það fer ekki á milli mála að orð forsætisráðherra Póllands um þann skaða sem Trump forseti hefur valdið trúverðugleika og áframhaldandi starfi Atlantshafsbandalagsins eru orð að sönnu. Þetta eru að öllum líkindum fyrstu skref forseta Bandaríkjanna til að veikja bandalagið enn frekar. Hann getur ekki tilkynnt úrsögn Bandaríkjanna úr NATO án andstöðu bandaríska þingsins og atkvæðagreiðslu um slíka ákvörðun. Í stað þess að eiga það á hættu að tapa þeirri atkvæðagreiðslu vill hann draga úr þátttöku Bandaríkjanna í rekstri bandalagsins, þ.m.t. herliði. Í dag eru tæplega sjötíu þúsund bandarískir hermenn staðsettir víðsvegar um Evrópu. Á tímum kalda stríðsins voru þeir nokkur hundruð þúsund. Það sem stendur upp úr þegar ákvörðun Bandaríkjaforseta er skoðuð nánar er eftirfarandi: ·Trump og hans liðsmenn hafa allt aðra ógnarmynd en leiðtogar Evrópu. Fyrir þeim er Rússland stórveldi sem hann vill eiga vinsamleg samskipti við, stunda viðskipti og deila og drottna þar sem það á við. Árásarstríð Rússlands gegn Úkraínu er ekki talin vera ógn af hálfu Trump eins og nýbirt þjóðaröryggisstefna hans staðfestir. Fyrir Evrópu er innrás Rússa í Úkraínu alvarleg tilvistarógn. Takist Rússum að hafa Úkraínumenn undir í þessum átökum er það bara spurning um tíma hvenær þeir beina sjónum sínum að öðrum löndum í Evrópu. Enda er það yfirlýst stefna Pútíns forseta Rússlands að endurheimta fyrrum áhrifasvæði Sovétríkjanna. Leyniþjónustur vestrænna ríkja meta það svo að slík árás geti orðið innan þriggja til fimm ára. ·Leiðtogar Evrópu gera sér grein fyrir þessu og hafa aukið verulega eigin varnaviðbúnað. Viðbragðsáætlun ESB um varnarviðbúnað gerir ráð fyrir að árið 2030 verði nokkrum mikilvægum markmiðum náð hvað herstyrk bandalagsins varðar. Eftir stendur að NATO gegnir enn lykilhlutverki í samræmdri herstjórn og loftvörnum sem ESB skortir. Ef forseti Bandaríkjanna heldur áfram núverandi stefnu að veikja NATO, t.d. með því að draga úr fjárframlögun eða láta af hendi yfirstjórn hermála sem nú heyrir undir „Supreme Allied Commander Europe“ að þá hefur Evrópu ekki annan kost en þann að taka yfir þessa starfsemi eða koma á fót samskonar hernaðargetu. Allur tvíverknaður er af hinu illa og niðurstaðan getur þá ekki orðið önnur en sú að án bandarískrar forystu mun NATO heyra til fortíðar. ·Hvað Ísland varðar að þá tala forystumenn þjóðarinnar um hið íslenska varnarmódel sem eitthvað sérstakt framlag landsins til eigin varna. Hið rétta er að íslensk stjórnvöld og Alþingi hafa ákveðið að útvista alfarið öllum vörnum landsins til Bandaríkjamanna og Atlantshafsbandalagsins. Við ætlum ekki að verja eigið fullveldi og sjálfstæði ef þörf krefur. Mýtan um hvað við erum fá og fátæk ræður ríkjum. Það tryggingargjald sem felst í því að hafa eigin varnarviðbúnað til að mæta óvæntum eða ófyrséðum hættum á sama tíma og við treystum á bandalög líkt þenkjandi þjóða virðist vera of hátt. Íslenska varnarmódelið er uppgjöf fyrir þeirri staðreynd að enginn er annars bróðir í leik eða störfum! Höfundur er sérfræðingur í varnarmálum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Arnór Sigurjónsson Bandaríkin Þýskaland Öryggis- og varnarmál Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar