Aron búinn að skipta um skoðun og vill Carrick áfram Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. maí 2026 11:01 Manchester United hefur unnið tíu af fjórtán leikjum undir stjórn Michaels Carrick. getty/Mark Cosgrove Fyrir nokkrum vikum vildi Aron Jóhannsson ekki að Michael Carrick yrði ráðinn þjálfari Manchester United til frambúðar. En nú hefur hann skipt um skoðun.
United vann Liverpool, 3-2, í ensku úrvalsdeildinni í gær. Með sigrinum tryggðu Rauðu djöflarnir sér Meistaradeildarsæti þrátt fyrir að þremur umferðum í ensku úrvalsdeildinni sé ólokið. Carrick tók við United í byrjun árs eftir að Ruben Amorim var rekinn. United hefur spilað fjórtán leiki undir stjórn Carricks, unnið tíu, gert tvö jafntefli og tapað tveimur. Ekkert lið í ensku úrvalsdeildinni hefur náð í fleiri stig en United síðan Carrick tók við. Fyrir tveimur mánuðum var Aron á þeirri skoðun að Carrick væri ekki rétti maðurinn fyrir United til frambúðar. En nú hefur honum snúist hugur. „Það er oft búið að spyrja mig hvort hann eigi ekki bara að fá þetta starf og nú er ég kominn á það; negla þetta bara. Gefa honum þetta starf. Hann er búinn að vinna sér inn fyrir því og gera þetta vel. Þeir lentu í smá hiksti um daginn, töpuðu fyrir Leeds, en hafa komið til baka,“ sagði Aron í Sunnudagsmessunni. Klippa: Messan - vill hafa Carrick áfram Arnar Gunnlaugsson tók við boltanum og sagðist ekki skilja hvernig Amorim nálgaðist starfið hjá United. „Svo má alveg ræða hvað í ósköpunum Amorim var að pæla. Þegar þú ert með eina af bestu tíunum í heimsfótboltanum, hvað var að frétta og hvað var í gangi,“ sagði Arnar og vísaði til ákvörðunar Amorims að nota Bruno Fernandes aftar á vellinum en hann hefur jafnan spilað. Skildi egóið eftir heima Arnar er hrifinn af því sem Carrick hefur gert með lið United. „Þetta sýnir líka bara hvað tímabilið er langt. Það er eins og það séu tíu ár síðan Amorim var hjá United. Carrick er búinn að vinna frábært starf því hann tekur við liði sem var keypt til að spila ákveðna tegund af fótbolta. Hann hefur notað sinn fótboltaheila í að breyta öllu og fá sjálfstraust í liðið og spila sitt kerfi sem er allt annað en hjá Amorim,“ sagði Arnar. „Er það ekki aðalstyrkleiki góðra þjálfara, að skilja egóið eftir heima og spila eftir styrkleikum hópsins sem þú ert með. Eins og við töluðum um áðan er augljóst að United, sama þótt ég elski pressufótbolta, réði aldrei við það. Þannig að hann hannaði fótbolta sem hentar ekki bara bestu leikmönnum liðsins heldur öllu liðinu í heild.“ United er í 3. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 64 stig, sex stigum á undan Liverpool sem er í 4. sætinu. Næsti leikur United er gegn nýliðum Sunderland á útivelli á laugardaginn kemur. Innslagið úr Messunni má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Enski boltinn Manchester United Messan Tengdar fréttir Mjög brugðið við fréttirnar af Ferguson Michael Carrick, þjálfara Manchester United, var líkt og fleirum mjög brugðið þegar það fréttist að Sir Alex Ferguson, lærifaðir hans, hefði verið fluttur af Old Trafford á sjúkrahús fyrir 3-2 sigur United gegn Liverpool í gær. 4. maí 2026 08:03 „Svona hefur þetta verið allt mitt líf“ Markaskorarinn Matheus Cunha ræddi við Hjörvar Hafliðason eftir 3-2 sigur Manchester United gegn Liverpool í dag. 3. maí 2026 23:05 Ferguson fluttur á spítala Sir Alex Ferguson, fyrrverandi knattspyrnustjóri Manchester United, var fluttur á spítala af Old Trafford í aðdraganda leiks United við Liverpool. 3. maí 2026 15:12 Mest lesið Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport „Takk fyrir ástina“ Fótbolti HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti Mætti seint á æfingu fyrir leik en svaraði með þrennu Fótbolti „Tímabilinu sem aldrei hófst er nú lokið“ Sport Hefja formlegar viðræður við Iraola Enski boltinn Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Fleiri fréttir Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Sjá meira
Mjög brugðið við fréttirnar af Ferguson Michael Carrick, þjálfara Manchester United, var líkt og fleirum mjög brugðið þegar það fréttist að Sir Alex Ferguson, lærifaðir hans, hefði verið fluttur af Old Trafford á sjúkrahús fyrir 3-2 sigur United gegn Liverpool í gær. 4. maí 2026 08:03
„Svona hefur þetta verið allt mitt líf“ Markaskorarinn Matheus Cunha ræddi við Hjörvar Hafliðason eftir 3-2 sigur Manchester United gegn Liverpool í dag. 3. maí 2026 23:05
Ferguson fluttur á spítala Sir Alex Ferguson, fyrrverandi knattspyrnustjóri Manchester United, var fluttur á spítala af Old Trafford í aðdraganda leiks United við Liverpool. 3. maí 2026 15:12