„Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Árni Sæberg skrifar 4. maí 2026 15:35 Haukur Ægir er hér lengst til hægri. Vísir/Vilhelm Svokallaður skutlari, sem hlaut dóm fyrir að áreita stúlku kynferðislega, áður en aðstandandi stúlkunnar veittist að honum, verður ekki ákærður fyrir að berja aðstandandann í höfuðið með spýtu í átökum þeirra.
Mál skutlarans hefur vakið talsverða athygli en Haukur Ægir Hauksson, sem var einn sakborninga í Sólheimajökulsmálinu svokallaða, var ákærður fyrir að hafa reynt að myrða hann í kjölfar kynferðisbrotsins. Hann var í apríl í fyrra dæmdur til eins árs fangelsisvistar fyrir líkamsárás gagnvart skutlaranum en sýknaður af ákæru fyrir tilraun til manndráps. Landsréttur þyngdi dóm skutlarans Skutlarinn var í janúar í fyrra dæmdur í tíu mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa aðfaranótt laugardagsins 11. mars 2023, í bifreið sem ók, á leið frá Hafnarstræti að ótilgreindum stað í Reykjavík, káfað á brjóstum og kynfærum stúlkunnar innanklæða og reynt að kyssa hana tungukossum. Í dómi héraðsdóms var sérstaklega tekið fram að við ákvörðun refsingar yrði litið til þess að í framhaldi af atvikum málsins hafi verið ráðist alvarlega á manninn og hann hefði ekki enn jafnað sig fyllilega af þeirri árás. Enga slíka umfjöllun var að finna í dómi Landsréttar, sem kveðinn var upp í nóvember síðastliðnum. Landsréttur dæmdi manninn í eins árs fangelsi og taldi, í ljósi skilorðsrofs hans á fyrri dómi og alvarleika brotsins, ekki efni til að binda refsinguna skilorði. Hafi lamið Hauk Ægi og vinkonu hans með kylfu Nokkra athygli vakti í janúar í fyrra þegar Haukur Ægir ræddi atvik þau sem hér um ræðir við Frosta Logason í hlaðvarpi hans, Brotkasti. Hann sagðist vera ranglega sakaður um tilraun til manndráps og að skutlarinn hefði átt upptök að átökum þeirra með því að lemja hann og vinkonu hans með kylfu. Vinkona hans er móðir stúlkunnar sem skutlarinn áreitti. Haukur Ægir deildi á dögunum bréfi frá Héraðssaksóknara á Facebook, þar sem honum er tilkynnt um ákvörðun embættisins að ákveðið hafi verið að falla frá saksókn á hendur skutlaranum. Þar segir að skutlarinn hafi verið kærður fyrir að hafa slegið Hauk Ægi með 53 sentimetra tréspýtu í höfuðið með þeim afleiðingum að hann hlaut kúlu með rispu hægra megin á höfði. Ákæruvaldið telji að ætluð háttsemdi skutlarans varði við ákvæði almennra hegningarlaga um sérstaklega hættulega líkamsárás. Hefði ekki hlotið frekari refsingu Aftur á móti segir að með vísan til laga um meðferð sakamála hafi verið ákveðið að falla frá saksókn á hendur skutlaranum vegna ætlaðs brots en samkvæmt lögunum sé heimilt að falla frá saksókn þegar svo stendur á að maður, sem búið er að dæma fyrir brot verður uppvís að því að hafa framið annað brot áður en hann var dæmdur, enda megi ætla að ekki verði um frekari refsingu þótt sakfellt yrði. Skutlarinn hafi, líkt og fjallað er um hér að framan, hlotið tólf mánaða fangelsisdóm með dómi Landsréttar frá nóvember 2025 en atvik málsins hafi átt sér stað fyrir uppkvaðningu dómsins og því væri um að ræða hegningarauka, kæmi til sakfellingar. Þá séu meira en þrjú ár liðin frá ætluðu broti. „Eins og atvik máls standa þykir því afar ólíklegt að kærða verði gerð frekari refsing verði hann fundinn sekur.“
Dómsmál Kynferðisofbeldi Leigubílar Lögreglumál Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Innlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Fleiri fréttir Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sjá meira