Þegar hagnaður einstaklinga vegur þyngra en heilsa þjóðar Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, Ösp Árnadóttir og Kjartan Hreinn Njálsson skrifa 6. maí 2026 10:31 Frumvarp til laga um breytingu á áfengislögum nr. 75/1998 er nú til meðferðar á Alþingi. Með frumvarpinu er lagt til að heimila innlenda vefverslun með áfengi auk heimsendinga á áfengi. Verði frumvarpið að lögum mun núverandi fyrirkomulag og áfengisstefna í raun gjörbreytast. Þessi breyting mun leiða til aukinnar samkeppni og verðlækkunar sem mun að öllum líkindum leiða til aukinnar áfengisnotkunar með tilheyrandi skaðlegum afleiðingum fyrir einstaklinga og samfélagið í heild. Embætti landlæknis veitti málinu umsögn og byggir sú umsögn á gagnreyndri þekkingu og lýðheilsusjónarmiðum enda er það eitt af lögbundnum verkefnum embættisins að stuðla að því að áherslur og starf í lýðheilsumálum hér á landi byggi á bestu þekkingu og reynslu á hverjum tíma, s.b. 1. gr. laga nr 41/2007 um landlækni og lýðheilsu. Út frá fyrirliggjandi gögnum og þekkingu er ljóst að þær breytingar sem frumvarpið gerir ráð fyrir muni leiða til aukins skaða vegna áfengisnotkunar. Áfengisnotkun getur valdið bæði bráðum og langvinnum sjúkdómum. Skaðlegar afleiðingar ná ekki ekki einungis til þess sem neytir áfengis. Áhrif á aðra en þann sem drekkur koma m.a. fram í gegnum fósturskaða, slys, ofbeldi, sundrung í fjölskyldum, andlega vanheilsu og sjálfsvíg. Þannig hefur áfengisnotkun ekki bara áhrif á heilbrigðiskerfið heldur líka félagslega kerfið, löggæslu, dómskerfið sem og efnahag þjóða. Áfengi er leiðandi áhættuþáttur í heiminum fyrir slæma heilsu og ótímabær dauðsföll, einkum í aldurshópnum 25-59 ára. Vitað er um 200 sjúkdóma þar sem áfengi er áhættuþáttur. Á síðustu árum hafa rannsóknir leitt í ljós að áfengi er sterkur áhættuþáttur krabbameina, einkum í ristli, brjóstum, munni, vélinda, lifur, hálsi og barkakýli. Ljóst er að aðgerðir til að lágmarka neyslu áfengis munu skipta miklu máli í því að draga úr fyrirséðri fjölgun krabbameinstilfella á komandi árum. Þá sýna nýjar rannsóknir aukningu í áfengistengdum innlögnum á Landspítala undanfarna áratugi og að nýgengi áfengistengdrar skorpulifrar hefur aukist síðustu ár. Flestir eru sammála um mikilvægi forvarna og gagnsemi þess að koma í veg fyrir skaða fremur en að meðhöndla afleiðingarnar. Við viljum koma í veg fyrir fósturskaða, slys, ofbeldi, sjálfsvíg og lífshættulega sjúkdóma. Hér er því mikilvægt að taka ákvarðanir í samræmi við rannsóknir þegar um ræðir árangursríkar forvarnaraðgerðir. Rannsóknir hafa sýnt ótvírætt að takmörkun á aðgengi vegur þyngst sem forvörn við áfengisneyslu. Verði frumvarpið samþykkt munaðgengi að áfengi aukast sem eykur á skaða og þjáningu meðal einstaklinga í samfélaginu, auka drykkju ungmenna veikja forvarnir, sem og stórauka kostnað í heilbrigðiskerfinu vegna beins og óbeins skaða af völdum notkunar á áfengi. Embættið vekur jafnframt athygli á þeim áhrifum sem aukið aðgengi í formi heimsendinga með áfengi hefur í för með sér. Áfengi sem selt er í gegnum netverslun (með lager hérlendis) getur borist kaupanda samdægurs og jafnvel innan klukkutíma eftir pöntun. Þetta auðvelda aðgengi hefur mest og verst áhrif á þau sem síst skyldi og er til þess fallið að auka áfengisdrykkju í heimahúsum meðal þeirra sem standa höllum fæti og fá áfengi sent heim að dyrum. Þá getur ungt fólk undir áfengiskaupaaldri jafnvel fengið áfengi sent í heimahús, teiti eða aðra viðburði, enda bendir nýleg úttekt embættis landlæknis á sölufyrirkomulagi netverslana til þess að víða sé pottur brotinn og að aldurseftirliti sé verulega ábótavant. Það er mat embættisins að ákvæði frumvarpsins gangi í berhögg við gagnreynda þekkingu og góða skynsemi enda er engin tilraun gerð í frumvarpinu til að meta þau áhrif sem umræddar breytingar munu hafa á lýðheilsu og heilbrigðiskerfið. Allir helstu sérfræðingar sem láta sig heilsu og velferð landsmanna varða eru sammála að samþykkt frumvarpsins í núverandi mynd væri óheillaskref fyrir lýðheilsu á Íslandi. Þannig tekur embættið undir með fjölda fagfélaga sem lýst hafa áhyggjum af samþykkt frumvarpsins og ítrekar á ný andstöðu sína við að draga úr forvörnum með auknu aðgengi að áfengi. Embættið hvetur þingmenn til að taka afstöðu með lýðheilsu og gagnreyndri þekkingu og hafna bæði frumvarpinu og því þversagnakennda viðhorfi að eftirláta þeim einstaklingum sem hagnast á sölu áfengis að móta fyrirkomulag áfengissölu hér á landi. Með því yrðu hagsmunir fárra teknir fram yfir hagsmuni fjöldans og heilsa og velferð landsmanna, einkum barna og ungmenna, lögð að veði. Dóra Guðrún er sviðsstjóri lýðheilsusviðs hjá embætti landlæknis, Ösp er verkefnisstjóri á lýðheilsusviði og Kjartan Hreinn er aðstoðarmaður landlæknis. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Dóra Guðrún Guðmundsdóttir Kjartan Hreinn Njálsson Heilbrigðismál Mest lesið Halldór 5.9.2026 Halldór Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar