Af hverju Viðreisn? Berglind Robertson Grétarsdóttir skrifar 6. maí 2026 15:46 Það er stór ákvörðun að skrá sig í stjórnmálaflokk og stíga sín fyrstu skref í pólitík. En hvað varð til þess að rúmlega fimmtug kona kaus að ganga í ungan stjórnmálaflokk sem margir halda að leggi bara áherslu á Evrópumál? Ég hef alltaf fylgst með stjórnmálum, haft skoðanir og reynt að fylgjast með. Fyrir Alþingiskosningarnar 2024 kom í ljós að skoðanir mínar pössuðu best við Viðreisn svo ég skráði mig í flokkinn og sé ekki eftir því! Síðan þá hef ég tekið þátt í flokksstarfinu og hefur þetta verið afar skemmtilegur og lærdómsríkur tími. Ég hef kynnst ógrynni af frábæru fólki sem brennur fyrir betra samfélagi þar sem allir fá að njóta sín. Viðreisn leggur áherslu á almannahagsmuni framyfir sérhagsmuni og það skiptir gríðarlega miklu máli í svona litlu samfélagi eins og Ísland er. Það á ekki að skipta máli hver pabbi “Jóns” er eða hvort móðurfjölskylda hans hafi átt fyrirtæki í bæjarfélaginu þínu síðastliðin 50 ár. Þeirra skoðun er ekki mikilvægari en annarra og á ekki að stýra ákvörðunum sem eru teknar fyrir hönd bæjarbúa. Börnin okkar Ég er sérstaklega stolt af því að tilheyra flokki sem setur börn í forgang og áttar sig á mikilvægi snemmtækrar íhlutunar. Ég brenn fyrir málefnum barna og foreldra og er svo heppin að vinna með þeim á hverjum degi sem leikskólastjóri. Viðreisn hefur verið í meirihluta í Mosfellsbæ undanfarin fjögur ár og eins og Mosfellingar vita að þá hefur verkefnið Börnin okkar verið afar farsælt og fékk nýlega tilnefningu til Nýsköpunarverðlauna hins opinbera. Við erum á góðri leið þegar kemur að málefnum barna og viljum halda þeirri vegferð áfram. Hvað meira? En varla fórstu bara í stjórnmál til að styðja við börn og fjölskyldur? gæti einhver spurt. Svarið er já og nei, maður verður að brenna fyrir einhverju en að sjálfsögðu hefur maður skoðanir á öðrum málum. Það þykir ekki mjög “sexy” að tala um ábyrgan rekstur en það skiptir þó gríðarlegu miklu máli fyrir bæjarbúa því ef það er afgangur af rekstri, eru meiri líkur á því að það verði hægt að lækka álögur á okkur án þess að skerða þjónustu. Blikastaðaland er vel skipulagt og spennandi hverfi þar sem horft var til náttúrunnar og umhverfisins við hönnun þess. Margir sjá eingöngu rökræður um þéttleika hverfisins en ég hvet íbúa til að kynna sér svæðið og sjá hversu mikið hefur verið vandað til verka í hönnuninni. Sjálf gæti ég vel hugsað mér að búa þarna í framtíðinni. Mosfellsbær eftir 10 ár Ef ég hugsa um Mosfellsbæ eftir 10 ár þá vil ég blómlegt mannlíf, framúrskarandi skóla þar sem einkaframtakið fær að njóta sín. Ég vil almenningssamgöngur sem virka og að Sundabraut sé komin svo að minni umferð fari í gegnum Mosfellsbæ. Og síðast en ekki síst vil ég að það sé gott að eldast í fallega bæjarfélaginu okkar. Ég vona að ég fái atkvæði Mosfellinga 16. maí næstkomandi. Setjið x við C. Höfundur skipar 4. sæti hjá Viðreisn í Mosfellsbæ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Viðreisn Mest lesið Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson Skoðun Skoðun Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Skoðun Húsnæðisstefnan sem gerði ungt fólk að leiguliðum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Veist þú í raun hvernig gervigreind virkar? Bjarki Sigurjónsson Thorarensen skrifar Sjá meira
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar