Ársæll fékk aftur nei við vitnaleiðslubeiðni Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 7. maí 2026 12:39 Ársæll Guðmundsson skólameistari Borgarholtsskóla. Ársæll Guðmundsson, fyrrverandi skólastjóri í Borgarholtsskóla, fær ekki að leiða forsætis- og menntamálaráðherra til vitnis í baráttu sinni við ríkið. Landsréttur hefur staðfest niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis.
Ársæll lét lögmann sinn leggja fram svonefnda vitnaleiðslubeiðni til þess að knýja fram vitnisburð ráðherranna eftir að Guðmundur Ingi Kristinsson, þáverandi menntamálaráðherra, ákvað í fyrra að auglýsa stöðu sem Ársæll hefur gegnt sem skólameistari Borgarholtsskóla. Auk Kristrúnar Frostadóttur og Ingu Sæland vildi Ársæll að aðstoðarmenn Kristrúnar og Guðmundar Inga yrðu leiddir fyrir dóm til að bera vitni. Beiðnir af þessu tagi eru til þess að hægt sé að meta hvort dómsmál skuli höfðað í kjölfarið. Í úrskurði Landsréttar kom meðal annars fram að í beiðni Ársæls væri ekki rökstutt sérstaklega hvaða atvik hann teldi þörf á að leita sönnunar um með því að leiða hvert vitni og með hvaða hætti hvert vitni gæti borið um þau atvik. Var því ekki talið að Ársæll hefði sýnt fram á að hann hefði lögvarða hagsmuni af því að umbeðnar vitnaleiðslur færu fram fyrir dómi. Af því leiddi að dómara var jafnframt ófært að taka afstöðu til vitnaskyldu og hvort Ársæll hefði þegar undir höndum næg gögn til að leggja mat á tilefni málshöfðunar. Þá var talið að einn þeirra sem óskað var að leiða fyrir dóm gæti ekki haft stöðu vitnis vegna beinnar aðildar að mögulegri málssókn. Því væru ekki skilyrði til að taka skýrslu af honum fyrir dómi.
Mál skólameistara Borgarholtsskóla Skóla- og menntamál Dómsmál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Framhaldsskólar Tengdar fréttir Árni vill stöðuna þrátt fyrir auglýsingu Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur birt lista yfir umsækjendur um þrjú embætti skólameistara, sem auglýst voru laus til umsóknar þann 19. mars síðastliðinn. Meðal tveggja umsækjenda um embætti skólameistara Menntaskólans á Egilsstöðum er núverandi skólameistari skólans, sem heyrði í fréttum að staða hans yrði auglýst. 15. apríl 2026 11:30 Ársæll hættur sem skólameistari Ársæll Guðmundsson hefur lokið störfum sem skólameistari Borgarholtsskóla en skipunartími hans rennur út í júní. Hann hefur ekki ákveðið hvað hann hyggst gera í framhaldinu en segist stoltur af ferlinum. 29. mars 2026 13:12 Mest lesið Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Innlent Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Innlent Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Innlent Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Innlent Hættulegt að lána lyf Innlent Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Innlent Inga í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Nei eða já? Af eða á? Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Hættulegt að lána lyf Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Styttan af Séra Friðriki fer upp, bara ekki strax Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Truflanir á island.is Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Þrír mánuðir til stefnu Stefán Jökulsson er látinn Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Inga í veikindaleyfi Slagurinn um ESB og sumarhretið fyrir austan Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Bein útsending: Ópíóíðar og verkjalyf á Íslandi Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Sjá meira
Árni vill stöðuna þrátt fyrir auglýsingu Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur birt lista yfir umsækjendur um þrjú embætti skólameistara, sem auglýst voru laus til umsóknar þann 19. mars síðastliðinn. Meðal tveggja umsækjenda um embætti skólameistara Menntaskólans á Egilsstöðum er núverandi skólameistari skólans, sem heyrði í fréttum að staða hans yrði auglýst. 15. apríl 2026 11:30
Ársæll hættur sem skólameistari Ársæll Guðmundsson hefur lokið störfum sem skólameistari Borgarholtsskóla en skipunartími hans rennur út í júní. Hann hefur ekki ákveðið hvað hann hyggst gera í framhaldinu en segist stoltur af ferlinum. 29. mars 2026 13:12