Við stýrum hraða í landi Blikastaða Hilmar Gunnarsson skrifar 8. maí 2026 08:31 Á Blikastaðalandi hefur lengi staðið til að byggja, jafnvel í marga áratugi og oftar en ekki staðið styr um. Nú hefur ákvörðunin verið fest í framkvæmd: 1. áfangi uppbyggingar hefur verið samþykktur, samhljóða af fráfarandi bæjarstjórn. Þar með er ljóst að breytingar eru fram undan á þessu svæði sem lengi hefur markað ákveðin skil milli Mosfellsbæjar og Reykjavíkur. Blikastaðaland hefur gegnt mikilvægu hlutverki í sjálfsmynd Mosfellsbæjar. Það hefur haldið bænum í ákveðinni fjarlægð frá þéttbýlinu og skarkalanum í höfuðborginni. Sú sýn að Mosfellsbær sé „sveit í borg“ lifir þó enn, þótt sífellt reynist erfiðara að viðhalda henni eftir því sem bærinn stækkar. Liggur eitthvað á? Skipulagið sem nú hefur verið samþykkt gerir ráð fyrir töluverðum þéttleika. Í fyrsta áfanga er gert ráð fyrir um 1.260 íbúðum. Margir, þar er ég meðtalinn, telja byggðina þétta. Hins vegar liggur fyrir að ef byggja á þétt einhvers staðar, þá er eðlilegast að það sé í jaðri bæjarins, í átt að Reykjavík. Það breytir þó ekki því að Mosfellingar þurfa sjálfir að halda um stýrið þegar kemur að því hvernig byggt er í bænum – ekki utanaðkomandi aðilar. Þótt ekki verði snúið við þeirri ákvörðun að hefja uppbyggingu, er eitt lykilatriði í höndum næstu bæjarstjórnar: hraði framkvæmda. Liggur eitthvað á? Mosfellsbær hefur skuldbundið sig til að heimila um 200 íbúðir á ári, sem þýðir að verkefnið í heild gæti spannað mörg mörg ár, jafnvel áratugi. Það gefur svigrúm til að vanda til verka – ef rétt er haldið á spilum. Uppbygging hlaupi ekki fram úr innviðum Óvissa um stór samgönguverkefni vegur þungt. Spurningar um tímasetningu og útfærslu Borgarlínu eru enn á reiki og Sundabraut hefur ítrekað frestast. Þó er ljóst að öflugar almenningssamgöngur eru nauðsynlegar til framtíðar. Þar til skýrari mynd fæst er eðlilegt að fara varlega í sakirnar og tryggja að uppbygging hlaupi ekki fram úr innviðum. Uppbygging í landi Blikastaða verður því að haldast í hendur við raunverulegar samgöngubætur. Það þarf að tryggja greiðar og öruggar tengingar inn og út úr hverfinu. Nýtt hverfi má ekki verða til þess að auka álag á þegar þunga umferð án þess að mótvægisaðgerðir fylgi með. Það er ekki nóg að reisa nýtt íbúðahverfi. Samhliða þarf að byggja upp samfélagið: skóla, leikskóla og ekki síður íþróttaaðstöðu. Mikilvægt er að íþróttahús rísi á svæðinu í takt við fjölgun íbúa, og að það verði gert í góðu samráði við ungmennafélagið Aftureldingu. Sterkt og sameinað íþróttastarf er hornsteinn í samfélagi Mosfellsbæjar, og mikilvægt að halda í það í lengstu lög að hér verði eitt sterkt félag. Jafnframt þarf að huga að fjölbreytni í húsnæði. Sérstaklega er brýnt að tryggja að fyrstu kaupendur eigi raunhæfan möguleika á að festa rætur í hverfinu. Að stuðla að því að almenningur geti eignast eigið heimili er grundvallaratriði í að tryggja raunverulegt fjárhagslegt frelsi. Þá kemur skýrt fram í nýlegum könnunum að Mosfellingar vilja áfram hafa bílastæði við heimili sín og forðast of þétta byggð. Slík sjónarmið þurfa að fá vægi í áframhaldandi þróun. Verkefni nýrrar bæjarstjórnar Mikilvægt er að horfa ekki eingöngu til Blikastaðalands á næstu misserum. Önnur svæði í Mosfellsbæ t.d. Akraland, Teigsland, Sólvellir, Lágafellsland o.fl. – eiga að halda sínum sérkennum og sveitabrag eins lengi og kostur er. Það er hluti af því sem gerir Mosfellsbæ aðlaðandi. Ný bæjarstjórn mun taka við verkefni sem þegar er komið af stað. Verkefnið snýst ekki lengur um hvort eigi að byggja, heldur hvernig og á hvaða hraða. Þar liggur ábyrgðin – að tryggja að uppbyggingin þjóni íbúum og styrki samfélagið. Húsnæðisstefna þarf að byggjast á því hvernig fólk vill búa, ekki á hugmyndafræði stjórnmálamanna um æskilegt búsetuform. Fram undan eru mikilvægar ákvarðanir. Ég er tilbúinn að leggja mitt af mörkum til að þær verði teknar af skynsemi og með hagsmuni Mosfellinga að leiðarljósi. Til þess býð ég mig fram í sveitarstjórnarkosningunum 16. maí. Höfundur er oddviti framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hilmar Gunnarsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar