Garðabær: Menning, umhverfi og lífsgæði fyrir okkur öll Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir skrifar 8. maí 2026 22:31 Garðabæjarlistinn gengur nú til kosninga óháður öllum stjórnmálaflokkum. Hann hefur setið í bæjarstjórn í tvö kjörtímabil og fékk 20.9% atkvæða í síðustu kosningum og tvo menn kjörna, en aðeins vantaði 12 atkvæði til að þriðji maður næði kjöri. Garðabæjarlistinn er stærsti flokkurinn í stjórnarandstöðu. Það er skrítið að tala um stjórnarandstöðu í bæjarmálum. Að kosningum loknum eiga allir flokkar að sjálfsögðu að taka höndum saman að framgangi bæjarins í sameiningu og láta alla flokkadrætti lönd og leið. Því miður hefur það ekki tíðkast í íslenskum stjórnmálum nema til undantekninga. Þeir sem veljast til forystu í bænum okkar að loknum kosningum ættu að hafa þetta í huga og samþykkja allar góðar tillögur, hvaðan sem þær koma og í sameiningu að efla bæinn okkar allra. Ég tel að flestir bæjarbúar geti tekið undir þessa kröfu. Ég er íbúi á Álftanesi og hef fyrir hönd Garðabæjarlistans setið í menningar- og safnanefnd og í öldungaráði á kjörtímabilinu. Hér eru þau atriði sem ég vil vekja athygli á nú í aðdraganda kosninga. Menningarmálin Það hefur margt gott verið gert á undanförnum árum og þar má t.d. nefna menningarmál sem hafa tekið stakkaskiptum síðan ráðinn var menningarfulltrúi bæjarins árið 2020 og var ætlað að efla starfsemi Hönnunarsafns Íslands, Bókasafns Garðabæjar, minjagarðsins Hofs, burstabæjarins Króks og aðra starfsemi á sviði menningar í bænum. Ólöf Breiðfjörð var ráðin í starfið og vorum við einstaklega heppin að fá svo dugmikinn, metnaðarfullan og hæfan fulltrúa sem raun ber vitni. Ólöf hefur lyft grettistaki í menningarmálum á þessum 5 árum, m.a. í barnamenningu svo ég tali nú ekki um Jazzþorpið sem sló öll met í aðsókn þetta árið og stendur sannarlega fyrir sínu. Nú er svo komið að okkur sárvantar menningarhús fyrir menningarstarfsemi í bænum og þó fyrr hefði verið. Menningarhús hefur verið til umræðu í Garðabæ í mörg ár en nú er komið að því að gera eitthvað í málunum. Staðsetningin hefur t.d. lengi vafist fyrir mönnum. Bókasafn Garðabæjar er í algjörlega ófullnægjandi húsnæði og ótrúlegt hvað starfsfólk safnsins getur boðið uppá við þessar aðstæður. Einnig vantar góðan sal til tónleikahalds og listsýninga. Allt þetta ætti að rúmast í menningarhúsi, ásamt fleiru. Þar sem bærinn er svo dreifður eins og raun ber vitni er nauðsynlegt að stuðlað sé að menningarviðburðum í úthverfum svo sem Álftanesi og Urriðaholti. Það mætti hugsar sér hverfisstjórn sem hefði m.a. viðburði á sinni könnu. Loksins var komið að Tónlistarskólanum en fyrsta skóflustunga var tekin að stækkun skólans á dögunum og gert er ráð fyrir að kennsla geti hafist í nýju álfunni haustið 2028. Þetta er sannarlega fagnaðarefni en meira þarf til en húsnæði. Meira fjármagn þarf til reksturs skólans svo að stytta megi biðlista, sérstaklega þar sem íbúum er stöðugt að fjölga, en það er óásættanlegt með öllu að börn þurfi að bíða í ár eða lengur til að komast í tónlistarnám. List þarf þar að auki að vera sýnilegri í bænum en Garðabær er fátækur af útilistaverkum og þau sem eru fyrir eru kannski ekki staðsett á réttum stöðum. Úr þessu þarf að bæta. Garðatorg Garðatorg hefur verið hálfgert vandræðabarn þar sem það var ekki hugsað til enda frá byrjun heldur í smáskömmtum. Það er höfuðverkur að vita hvað best er að gera í stöðunni eins og hún er í dag, en það er alveg ljóst að of mikið er af bílum og steinsteypu. Við þurfum mannvænlegra torg með með grasi og gróðri. Garðabær er mjög ríkur af fjölbreyttum og fallegum útivistarsvæðum en við þurfum líka á fallegri náttúru að halda í byggð svo sem almenningsgörðum sem ættu að vera í öllum hverfum bæjarins. Álftanes Uppbygging hefur verið gríðarleg á Álftanesi á undanförnum árum og er enn. Við megum ekki gleyma okkur í steinsteypu, við þurfum grænt og náttúrulegt umhverfi til að halda geðheilsu. Álftanes hefur sérstöðu sem fuglaparadís við þurfum einnig að taka tillit til fuglanna í allri uppbyggingu. Sjávarvarnir eru í algjöru lamasessi á nesinu og hafa verið til margra ára. Sjórinn gengur langt inná land í verstu veðrum og skilur eftir sig sand og þang langt inn á tún. Við þetta verður ekki unað mikið lengur, ýta þarf á Vegagerðina að gera eitthvað í málunum. Bæta þarf og leggja nýja gangstíga víða um nesið. Nú þegar hjólreiðastefna hefur verið samþykkt, að frumkvæði Garðabæjarlistans, er nauðsynlegt að breikka stíga svo þeir rými bæði hjólandi og gangandi vegfarendur. Huga þarf að staðsetningu bekkja við gerð göngustíga, til þess að bæta aðgengi þeirra sem þurfa að hvílast. Þar má t.d. nefna eldra fólk. Eldra fólk Eldra fólk er fjölmennt í Garðabæ og margir þurfa á þjónustu að halda þegar aldurinn færist yfir. Flestir vilja búa sem lengst heima og hafa aðgengi að þjónustu. Bæta þarf aðgengi að heilsugæslu, en hún nær ekki að anna eftirspurn. Flestir vilja einstaklingsmiðaða þjónustu, jafnræði og virkt samráð. Brýnt er að fjölga hjúkrunarrýmum í bænum og tryggja viðeigandi stuðning meðan á bið stendur. Biðtími er of langur eða um 133 dagar að meðaltali. Leggja þarf áherslu á við heilbrigðisráðuneytið að hraða uppbyggingu hjúkrunarheimilis eins og kostur er. Fjölga þarf almennum og sértækum dagdvalarrýmum á Ísafold. Forvarnir eru svo mikilvægur þáttur, ekki síst fyrir aldraða. Janus heilsuefling hefur sannað sig og nauðsynlegt er að halda áfram að styrkja eldra fólk til heilsuræktar. Það er kominn tími á að taka upp hvatapeninga fyrir aldraða, sem innleiða mætti í skrefum, svo fólk hafi meira val um það hvert það sækir sína heilsueflingu. Auk þess er mikilvægt er að efla samskipti milli eldri og yngri kynslóða, t.d. með uppbyggingu húsnæðis fyrir alla hópa og með því að efla samfélagsleg rými á borð við bókasöfn og sundlaugar. Að lokum Garðabæjarlistinn hefur skýra sýn á bæinn okkar, reynslu og vilja til þess að gera hlutina þannig úr garði að Garðabær verði til framtíðar bæjarfélag þar sem öllum getur liðið vel í heilnæmu og skapandi umhverfi. Við óskum eftir umboði til þess að vinna að því - fyrir okkur öll. Höfundur skipar 9. sæti Garðabæjarlistans, X-G. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar