Ætti sumarstarf frístundaheimila að vera hluti af grunnþjónustu sveitarfélaga? Gísli Ólafsson skrifar 9. maí 2026 08:18 Nú þegar pólitískir fulltrúar keppast við að lofa öllu fögru heyrast fögur loforð um þjónustu frístundaheimila á höfuðborgarsvæðinu.Tækifæri til sóknar eru svo sannarlega til staðar þar sem frístundaheimili í mörgum sveitarfélögum eru hreinlega lokuð yfir sumartímann. Sum hver eru opin í lok sumars fyrir verðandi 1. bekk, önnur eru alfarið tengd við skólaárið. Í tilefni þessarar umræðu pólitískra fulltrúa langar mig að fara aðeins yfir kosti þess að sveitarfélög forgangsraði í þágu barna og sinni frístundastarfi fyrir þennan aldurshóp af krafti með því að bjóða börnum í 1.-4. bekk upp á skipulagt starf frístundaheimila í sumarfríi grunnskóla. Frístundaheimili sem er opið allt árið um kring getur ráðið starfsfólk til lengri tíma í heilsár störf og myndað þannig sterkari og faglegri starfsmannahóp. Raunveruleiki frístundaheimila í dag er sá að þar er ráðið inn hlutastarfsfólk sem vinnur með námi eða öðrum verkefnum og leitar svo annað yfir sumartímann. Það þarf því að ná þessu fólki aftur inn næsta vetur. Frístundaheimili sem getur boðið vinnu allt árið heldur betur í starfsfólk og dregur því úr þörf á að ráða inn nýtt fólk við upphaf hvers skólaárs. Frístundaheimili er umhverfi sem börnin þekkja og þar er starfsfólk sem börnin þekkja. Það getur reynst mörgum börnum mjög mikilvægt að geta sótt í starf sem þau þekkja yfir sumartímann. Þetta á sérstaklega við börn sem þurfa meiri stuðning en mörg önnur börn, þar sem viðbrögð og viðhorf starfsfólks getur gert gæfumuninn um hvort barnið njóti sín í starfinu. Frístundaheimilum er stýrt af fagfólki sem leggur áherslu á að búa til umhverfi sem styrkir sjálfsmynd og félagslega hæfni barna. Þar er hægt að búa til faglega dagskrá sem bæði höfðar til allra og einblínir á að kynnast fjölbreyttum viðfangsefnum. Viðfangsefnin taka mið af félagslegri stöðu barnanna og einblínir á að styrkja þau sem standa höllum fæti. Frístundaheimili nýta mörg hver sumartímann til þess að hvetja börnin til þess að tengjast náttúrunni. Tækifærin í styttri og lengri ferðalögum eru gríðarleg, þar má bæði kynna börnum fyrir tækifærum í þeirra nærumhverfi en líka kynna þau fyrir stærri útivistarsvæðum og möguleikum sem þeim fylgja. Hvort sem það er að fá að dýfa tánum í sjóinn og kynnast lífríkinu í fjörunni eða hlaupa um í skóglendinu og læra um flóruna sem þar vex. Á tímum skjásins og alls þess sem sækja að yngstu kynslóðinni má ekki gleyma mikilvægi leiksins. Að kunna að fara saman í leiki er hæfileiki sem ég veit að margir af eldri kynslóðum óttast að sé að deyja út. Það er ekki börnunum að kenna, heldur er það okkar sem eldri eru að búa til umhverfið þar sem leikurinn fær að blómstra. Frístundaheimili er hinn fullkomni staður til þess að upphefja leikinn og leyfa börnunum að vera börn eins lengi og hægt er. Fyrir okkur foreldra er auðvitað ótrúlega mikilvægt að geta gengið að því vísu að hafa stað þar sem börn geta sótt starf sem bæði vekur áhuga og öryggi í þeirra huga. Mörg börn vilja auðvitað sækja sérhæft starf sem höfðar til þeirra áhugasviðs og það er gott og gilt. Frístundaheimili geta hins vegar boðið upp á heilsdags sumarnámskeið sem höfða til áhugasviðs flestra og byggir á þeirri hugmyndafræði að þar geta börn lært nýja hluti og fengið tækifæri til þess að sinna sínum áhugamálum. Þetta er aðeins lítill hluti af því sem við getum gefið börnunum okkar með því að leggja áherslu á að fjármagna og forgangsraða starfsemi frístundaheimila í sveitarstjórnarkosningunum. Látum okkar pólitísku fulltrúa vita að það skiptir okkur máli að búa börnunum okkar til umhverfi sem leyfir þeim að njóta sín í góðra vina hópi undir handleiðslu fagfólks í frítíma. Höfundur er formaður Fagfrí, landssamtaka um fagþróun frístundaheimila á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Frístund barna Börn og uppeldi Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Sama fötlun en ólík réttindi - Aldurinn ræður úrslitum - Ásta Ólafsdóttir skrifar Skoðun Umskiptingar Flokks fólksins á Alþingi Júlíus Valsson skrifar Skoðun Okkar fé í Heimum Bergur Hauksson skrifar Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Er alveg sama hvað Ísland er dýrt? Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Krossinn er ekki matseðill Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Við mælum hávaða en mælum við óskýrleikann? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Hvað gerist í síðari hálfleik? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson skrifar Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar Skoðun Nýtum betur gagnreyndar aðferðir í skólum Skúli Helgason skrifar Sjá meira
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar
Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun