Körfubolti

Úr­slitein­vígið hefst í kvöld: Mun tala sinn skít ef þess er þörf

Aron Guðmundsson skrifar
DeAndre Kane er klár í úrslitaeinvígi Bónus deildarinnar með liði sínu Grindavík. Þar mætir hann sínum gamla liðsfélaga, Dedrick Basile í liði Tindastóls.
DeAndre Kane er klár í úrslitaeinvígi Bónus deildarinnar með liði sínu Grindavík. Þar mætir hann sínum gamla liðsfélaga, Dedrick Basile í liði Tindastóls. Vísir/Samsett

DeAndre Kane, leikmaður Grindavíkur, er klár í baráttuna sem úrslitaeinvígi Bónus deildarinnar í körfubolta verður þar sem að Grindavík og Tindastóll berjast um Íslandsmeistaratitilinn. Einvígið hefst í kvöld í Grindavík. 

Kane, sem er algjör lykilmaður í liði Grindavíkur og einn besti leikmaður Bónus deildarinnar settist niður með Stefáni Árna Pálssyni í HS-orku höllinni í Grindavík og rýndi í stöðuna fyrir leik eitt.

„Ég er fullur sjálfstrausts,“ byrjaði Kane svar sitt við fyrstu spurningu Stefáns og líklegast ekki oft, ef einhvern tímann, sem Kane hefur skort sjálfstraust.  

Klippa: DeAndre Kane fyrir fyrsta leik úrslitaeinvígisins

„Við höfum unnið þetta lið áður. Við töpuðum fyrir þeim í Síkinu fyrr á tímabilinu en vorum ekki upp á okkar besta þar en unnum næstum því leikinn. Svo hér í Grindavík, án mín, Breka og fleiri leikmanna unnum við þá örugglega með yfir tuttugu stigum. Við vitum að Tindastóll er með gott lið. Þeir eru að spila á háu gæðastigi þessa stundina, eru vel þjálfaðir og með nokkra góða leikmenn. En ef við höldum áfram að standa okkur vel, sér í lagi í varnarleiknum, þá verður þetta allt í góðu fyrir okkur í þessu einvígi.“

Aðspurður um stöðuna á sér þegar að svona langt er liðið á úrslitakeppnina sagði Kane hana vera góða.

„Eins og ég hef sagt við strákana. Nú er ekki tíminn til þess að kvarta undan einhverjum smávægilegum meiðslum. Þú verður að berjast í gegnum þau. Halda áfram að keyra á þetta.“

Með heimavallarréttinn

Lið Grindavíkur vann deildarkeppni Bónus deildarinnar og er því með heimavallarrétt í úrslitaeinvíginu. En hversu mikilvægur er heimavallarrétturinnn að mati Kane?

Það er ávallt frábær stemning í HS-orku höllinniVísir/Guðmundur Þórlaugarson

„Mjög mikilvægur. Með því að taka leik eitt gefum við okkur tækifæri á því að halda í Síkið og reyna komast í 2-0. Fáum þá tækifæri á því að loka einvíginu næst þegar að við komum til Grindavíkur. Það er erfitt að spila við okkur hér. Fyrir Tindastól að þurfa að keyra hingað í yfir fjóra tíma og mæta okkur í leik sem spilaður er á háu tempói. Það er dálítið okkur í hag. Heimavallarrétturinn er gífurlega mikilvægur.“

„Basile er minn maður“

Í liði Tindastóls mætir Kane sínum gamla liðsfélaga, Dedrick Basile, en þeir spiluðu saman á fyrsta ári Kane hér á landi.

„Það verður mjög gaman. Við spiluðum saman hér þegar að ég kom fyrst til Íslands. Við fórum alla leið í úrslitaeinvígið og töpuðum í oddaleik fyrir Val þar sem að Taiwo Badmus var að spila. Nú eru þeir saman í liði. Basile er minn maður. Frábær leikmaður sem hefur staðið sig vel fyrir félagið. Hann er búinn að vera frábær í úrslitakeppninni.“

Basile er frábær leikmaðurVísir/Pawel

Vinskapurinn verður hins vegar lagður til hliðar í úrslitaeinvíginu. Kane er þekktur fyrir að reyna brjóta niður andstæðinga sína, ekki bara inn á vellinum með hæfileikum sínum í körfubolta. Heldur einnig í gegnum sálfræðistíl þar sem Kane getur verið að láta menn heyra það í tilraun sinni til þess að komast inn í hausinn á þeim. 

„Basile fær ekkert gefins hjá mér. Ég gæti talað smá skít við hann fyrir leik og á meðan að leik stendur. Það er bara það sem ég geri. Þannig er ég bara og það hjálpar mér við að ná mér í gang. Ef þörf er á mun ég klárlega tala minn skít við hann.“

Leikur eitt í úrslitaeinvígi Grindavíkur og Tindastóls hefst klukkan korter yfir sjö í kvöld í HS-orku höllinni í Grindavík og verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland. Upphitun fyrir leik með Stefáni Árna og sérfræðingum hans hefst klukkan hálf sjö.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×