Einars Ólafssonar minnst í Lúxemborg Kristján Már Unnarsson skrifar 10. maí 2026 07:50 Einar Ólafsson var fyrsti forstjóri Cargolux. Úr einkasafni Helstu fjölmiðlar í Lúxemborg hafa síðustu daga minnst Einars Ólafssonar, fyrsta forstjóra Cargolux og fyrsta starfsmanns, sem brautryðjanda í fraktflugi og lykilmanns í uppbyggingu félagsins. Einar lést á hjúkrunarheimilinu Boðaþingi í Kópavogi þann 2. maí síðastliðinn, níræður að aldri.
Hann stýrði Cargolux sem forstjóri um tólf ára skeið frá stofnun þess árið 1970 og til ársins 1982 og vann síðan að sérverkefnum hjá félaginu til ársins 1983. Á fréttasíðu RTL Luxembourg segir að Einar hafi verið einn af lykilmönnum í uppbyggingu Cargolux á upphafsárum félagsins. Enskumælandi miðillinn Luxembourg Times rifjar upp að Einar hafi byrjað sem stöðvarstjóri Loftleiða í Lúxemborg árið 1965 þegar félagið varð þekkt sem hippaflugfélagið. Þýskumælandi fréttamiðillinn Luxemburger Wort vitnar í gamalt viðtal þar sem Einar lýsir því að í upphafi hafi nánast ekkert verið á Findel-flugvelli. Þar hafi skort alla aðstöðu til vöruafgreiðslu. Frönskumælandi vefurinn L’essentiel fjallar um forystuhlutverk Einars á fyrstu árum fyrirtækisins. Fréttavefurinn Virgule fjallar einnig um feril Einars. Samsett mynd sem Cargolux birti af Einari Ólafssyni við ýmis tækifæri.Cargolux Cargolux minnist Einars á samfélagsmiðlum sínum. „Sem framsýnn leiðtogi og brautryðjandi í fraktflugi gegndi Einar Ólafsson lykilhlutverki í mótun Cargolux á upphafsárum þess. Stefnumótandi sýn hans, forysta og frumkvöðlaandi lagði grunninn að fyrirtæki okkar sem hefur haldið áfram að vaxa í meira en fimm áratugi,“ segir Cargolux í kveðju sinni. Cargolux er í dag stærsta fraktflugfélag í Evrópu og það sjötta stærsta á heimsvísu. Það er jafnframt eitt stærsta og mikilvægasta fyrirtæki Lúxemborgar, í starfsmannafjölda það tíunda stærsta með um 3.200 starfsmenn. Einar Ólafsson skrifar undir samning um kaup á fyrstu Boeing 747-200 þotum Cargolux í desember árið 1977. Fyrir aftan Einar stendur Gunnar Björgvinsson, yfirmaður tæknisviðs Cargolux, sem síðar efnaðist á flugvélaviðskiptum.Cargolux Á Findel-flugvelli rekur Cargolux stóra fraktflutningamiðstöð og viðhaldsstöð með flugskýli. Skýlið rúmar tvær Boeing 747-risaþotur en félagið er núna með þrjátíu slíkar vélar í flugflota sínum, bæði 747-400 og 747-8. Cargolux hefur jafnframt pantað tíu Boeing 777-8 fraktþotur til að leysa af 747-400 þoturnar. Velta Cargolux á síðasta ári nam 3.406 milljónum dollara, eða sem svarar 417 milljörðum íslenskra króna. Hagnaður eftir skatta nam 465 milljónum dollara, andvirði 57 milljarða íslenskra króna. Íslensk flugáhöfn Cargolux-vélar í Singapore árið 1976. Frá vinstri: Friðrik Guðjónsson, Ómar Steindórsson, Jóhannes Kristinsson og Eyjólfur Hauksson. Flugvélin, af gerðinni Canadair CL-44, kom frá Loftleiðum. Þar voru þessar flugvélar kallaðar Rolls Royce 400 en „monsar“ meðal starfsmanna.Cargolux Loftleiðamenn stofnuðu félagið í samstarfi við sænskt skipafélag og stjórnvöld í Lúxemborg og fleiri þarlenda aðila. Í upphafi héldu Íslendingar utan um flugrekstur Cargolux og varð til stór íslensk flugnýlenda í Lúxemborg. Framan af áttu Loftleiðir og síðar Flugleiðir þriðjungshlut í félaginu til ársins 1982 þegar stjórn Flugleiða ákvað að taka ekki þátt í hlutafjáraukningu. Við það minnkaði hlutur Flugleiða niður í 3,3 prósent. Þann hlut seldi félagið árið 1985 en þannig lýstu gamlir Loftleiða- og Cargoluxmenn þessum atburðum: Þáverandi stjórnarmaður í Flugleiðum sagði þessa sögu af skilnaði félagsins við Cargolux: Í tveimur þáttum Flugþjóðarinnar í fyrra var fjallað um Cargolux og íslenska flugsamfélagið í Lúxemborg. Þar kom fram að 65 Íslendingar voru enn starfandi hjá félaginu, þar af voru nokkrir í hópi stjórnenda.
Flug Lúxemborg Flugþjóðin Icelandair Tengdar fréttir Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux og síðast hrossabóndi á Snæfellsnesi, er látinn, níræður að aldri. Hann andaðist á hjúkrunarheimili Hrafnistu í Boðaþingi í Kópavogi síðastliðið laugardagskvöld, 2. maí. 4. maí 2026 13:30 Stoltir Íslendingar af þætti sínum í stærsta fraktflugfélagi Evrópu Hátt í fimmhundruð Íslendingar eru núna búsettir í Lúxemborg og er Cargolux enn í dag meðal stærstu vinnustaða Íslendinga í fluginu. 8. apríl 2025 22:44 Ævintýri um allan heim biðu ungra íslenskra flugmanna Ungir íslenskir flugmenn sem misstu vinnuna hjá Loftleiðum upp úr 1970 færðu sig flestir yfir til hins nýstofnaða félags Cargolux. Þar biðu þeirra meiri ævintýri en þeir höfðu áður kynnst en einnig miklar áskoranir. 13. apríl 2025 07:47 Mest lesið Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent „Þá bara krassa lungun“ Innlent Bruni við Breiðhöfða Innlent Dekk sprakk við lendingu vélar Innlent Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Innlent Fleiri fréttir Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero „Þá bara krassa lungun“ Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Sjá meira
Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux og síðast hrossabóndi á Snæfellsnesi, er látinn, níræður að aldri. Hann andaðist á hjúkrunarheimili Hrafnistu í Boðaþingi í Kópavogi síðastliðið laugardagskvöld, 2. maí. 4. maí 2026 13:30
Stoltir Íslendingar af þætti sínum í stærsta fraktflugfélagi Evrópu Hátt í fimmhundruð Íslendingar eru núna búsettir í Lúxemborg og er Cargolux enn í dag meðal stærstu vinnustaða Íslendinga í fluginu. 8. apríl 2025 22:44
Ævintýri um allan heim biðu ungra íslenskra flugmanna Ungir íslenskir flugmenn sem misstu vinnuna hjá Loftleiðum upp úr 1970 færðu sig flestir yfir til hins nýstofnaða félags Cargolux. Þar biðu þeirra meiri ævintýri en þeir höfðu áður kynnst en einnig miklar áskoranir. 13. apríl 2025 07:47