Börnin eru framtíðin Elín Anna Baldursdóttir skrifar 10. maí 2026 14:33 Börn og ungmenni eru framtíð samfélagsins okkar í Hafnarfirði. Í barnæsku leggjum við grunninn fyrir framtíðina og þess vegna er velferð barna og ungmenna eitt af okkar stærstu baráttumálum Lækkum kostnað barnafjölskyldna Barnafjölskyldur eru oft undir miklu álagi, foreldrar eru að fóta sig á vinnumarkaði, koma sér upp heimili og sinna foreldrahlutverkinu um leið. Það fylgir barneignum ýmis kostnaður og foreldrar vilja líka geta varið þessum dýrmæta tíma með börnunum sínum, Þess vegna viljum við létta undir með barnafjölskyldum. Við viljum innleiða systkinaafslátt þannig að engin fjölskylda greiði meira en 50 þúsund krónur á mánuði fyrir leikskólavist, og að tekjulægri fjölskyldur greiði minna. Við viljum einnig finna leiðir til að jafna þann ósanngjarna kostnað sem getur fallið á barnafjölskyldur þegar brúa þarf bilið á milli fæðingarorlofsins og leikskólavistar. Frítt í strætó til 18 ára hefur verið eitt af okkar baráttumálum allt kjörtímabilið. Það minnkar skutl, dregur úr umferð og lækkar kostnað fjölskyldna. Önnur mikilvæg ástæða er að börn sem alast upp við að nota almenningssamgöngur velja frekar þann samgöngumáta á fullorðinsaldri. Við viljum hækka frístundastyrk og tryggja að öll börn geti stundað frístundir óháð efnahag eða uppruna. Frístundir eru mikilvægur liður í þroska einstaklinga, hafa mikið forvarnargildi, styrkja lýðheilsu og félagsleg tengsl. Einn stærsti grundvöllur vináttu er sameiginleg áhugamál sem frístundir skapa. Við viljum leggja sérstaka áherslu á að ná til þeirra hópa sem sem ekki sækja frístundastarfi í dag. Leik- og grunnskólar sem eru hornsteinn samfélagsins Leikskólarnir okkar eru frábærir og þar er unnið gott starf. Þeir eru einn mikilvægasti staðurinn til að veita snemmtæka íhlutun þegar kemur að sjálfstæði, málþroska eða félagsfærni barna. Við viljum halda áfram að efla faglegt starf leikskólanna í samstarfi við fagfólkið og finna hvata til að laða að fleiri menntaða leikskólakennara til Hafnarfjarðar. Við viljum líka hugsa stórt og finnst tímabært að lögfesta réttin til leikskólavistar í samstarfi við ríkisvaldið. Það væri heillar skref til að efla faglegt starf og brúa bilið eftir fæðingarorlof fyrir alvöru. Sama gildir um grunnskólana. Þar er einnig unnið gott starf en enginn neitar því að grunnskólarnir standa frammi fyrir sífellt flóknari áskorunum. Við trúum á skóla án aðgreiningar og hugmyndina um að öll börn eigi rétt á að tilheyra. En þessari hugmyndafræði þarf að fylgja sterk þjónusta í hverjum skóla, sem tryggir að allir nemendur fái tækifæri til að þroskast og eflast, sem ekki hefur tekist nægilega vel. Þess vegna viljum við fjölga fagstéttum innan skólanna, efla stoðþjónustu og tryggja þrepaskiptan stuðning við nemendur. Leita leiða til að fækka nemendum í hverjum bekk. Við viljum efla íslenskukennslu fyrir nemendur með íslensku sem annað tungumál, og tryggja að eineltisáætlanir séu sýnilegar nemendum og foreldrum og að unnið sé eftir þeim. Tónlistarskólinn okkar er löngu sprungin og nauðsynlegt að fara í uppbyggingu á húsnæði hans og jafnaðarfólk mun hefja þann undirbúning strax að loknum kosningum. Starfsfólkið er grunnurinn að góðum skóla Við getum ekki talað um gæði skólastarf án þess að tala um fólkið sem sinnir börnunum. Mörg okkar muna eflaust eftir kennara sem hafði áhrif á líf okkar. Það er hagur allra að við hlúum vel að starfsfólkinu. Við viljum leita leiða til að draga úr álagi, auka öryggi og styrkja handleiðslu og stuðning við starfsfólk. Sama hvaða hugmyndafræði við aðhyllumst eða hvaða kerfislegar breytingar við gerum, sterkur skóli byggir á sterku starfsfólki. Grípum börnin snemma Við viljum auka aðgengi að lágþröskuldsúrræðum þegar kemur að tilfinninga- og hegðunarvanda barna. Ég þekki það úr mínu eigin starfi sem sálfræðingur að snemmtæk íhlutun bætir lífsgæði barna og fjölskyldna. Það ætti alltaf að vera nóg til að réttlæta fjárfestinguna. En ég hef líka lært að til að ná athygli og eyrum sumra þarf ég að nefna tölur. Úrræði sem virka borga sig í lækkuðum kostnaði á heilbrigðis-, mennta- og velferðarkerfið. Snemmtæk íhlutun er því í raun ekki kostnaður fyrir samfélagið heldur fjárfesting til framtíðar. Barnabærinn Hafnarfjörður Við viljum að Hafnarfjörður sé bær þar sem börnum og ungmennum líður vel og finnst þau tilheyra. Það þýðir að við hlustum á raddir þeirra. Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna er okkur leiðarljós og við viljum auka lýðræðisvitund barna og þátttöku þeirra í ákvörðunum sem snúa að þeim. Barnvænt samfélag kemur að ýmsum hlutbundnum aðgerðum. Við viljum lengja opnunartíma sundlauganna, efla félagsmiðstöðvar og ungmennahús og auka aðgengi að skapandi greinum bæði innan skólakerfisins og í frístundastarfi. Miðbærinn okkar er æðislegur, en ef eitthvað vantar þar er það svæði fyrir börn. Mig dreymir um fallegt leiksvæði þar sem fjölskyldur hittast, börnin leika sér og foreldrar ræða lífið og tilveruna með kaffibolla í hönd. Sama á við um nýjustu hverfi bæjarins þar sem vantar græn og barnvæn svæði. Við viljum einnig tengja hverfi bæjarins með göngu- og hjólastígum þannig að börn komist örugg á milli hverfanna. Hafnarfjörður á að vera bær þar sem gott er að vera barn. Setjum börn og ungmenni í forgang í kosningunum 16. maí og kjósum Samfylkinguna í Hafnarfirði. XS - Sterkari saman Höfundur er sálfræðingur og skipar 4. sætið á lista Samfylkingarinnar í Hafnarfirði Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar