Hafi svikið tugi milljóna úr íslenskum banka Agnar Már Másson skrifar 10. maí 2026 23:23 Meint brot á að hafa átt sér stað í lok apríl. Áætlað tjón nemur um 400 þúsund evra, eða 57 milljónum króna. Rúmenska lögreglan Rúmenskur karlmaður hefur verið handtekinn í heimalandi sínu þar sem hann er grunaður um að nýta sér veikleika í kerfi íslensks banka í lok apríl til að millifæra á sig umtalsverðar fjárhæðir ólöglega. Áætlað tjón nemur um 57 milljónum króna. Hann verður framseldur til Íslands.
Hinn 6. maí handtók lögreglan í Búkarest 33 ára rúmenskan karlmann á grundvelli evrópskrar handtökuskipunar, að því er fram kemur í tilkynningu sem rúmsenska lögreglan gaf út í gær, laugardag. Maðurinn er til rannsóknar hjá íslenskum yfirvöldum fyrir fjársvik og peningaþvætti, að sögn rúmensku lögreglunnar. Í kjölfarið úrskurðaði dómstóll í Búkarest manninn í 30 daga gæsluvarðhald og að hann skyldi framseldur til Íslands. Ekkert hefur spurst út í íslenskum miðlum um þessi meintu fjársvik fyrr en nú. Vísir hefur sent fyrirspurn á embætti Ríkislögreglustjóra vegna málsins. Bankastofnunarinnar er ekki getið í tilkynningu lögreglunnar. Rúmenska lögreglan gaf út þessa ljósmynd með tilkynningunni, sem var birt 9. maí. „Viðkomandi er til rannsóknar hjá íslenskum yfirvöldum fyrir að hafa, á tímabilinu 23. til 27. apríl 2026, nýtt sér veikleika í kerfi íslenskrar bankastofnunar og millifært ólöglega umtalsverðar fjárhæðir. Áætlað tjón nemur um 400.000 evrum,“ segir í tilkynningu á vef rúmensku lögreglunnar. Fjárhæðin nemur 57 milljónum íslenskra króna. Veistu meira? Þú getur sent okkur fréttaskot hér. Fullum trúnaði heitið. Aðgerðirnar voru, samkvæmt tilkynningu rúmensku lögreglunnar, framkvæmdar innan ramma alþjóðlegs lögreglusamstarfs. „Rúmenska lögreglan heldur áfram samstarfi við alþjóðlega samstarfsaðila til að skýra öll atriði málsins og tryggja að aðgerðum sem dómstólar fyrirskipa verði framfylgt.“ Heimildarmaður úr bankakerfinu sem Vísir ræddi við sagðist kannast við umræddan veikleika en kvaðst ekki geta veitt frekari upplýsingar um málið.
Efnahagsbrot Fjármálafyrirtæki Rúmenía Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Innlent Fleiri fréttir Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Sjá meira