Gerum betur – og gerum það á málefnalegum grunni Anna Sigríður Guðnadóttir skrifar 11. maí 2026 08:51 Í Mosfellsbæ er gott að búa. Það er ekki tilviljun heldur afrakstur stöðugrar uppbyggingar í gegnum árin. En það er líka alltaf hægt að gera betur – og það hefur verið leiðarljós meirihluta Framsóknar, Viðreisnar og Samfylkingar á þessu kjörtímabili. Við höfum sett börn og eldri borgara í forgang, bætt þjónustu, aukið öryggi og byggt upp faglegt, gagnadrifið sveitarfélag án þess að gera lítið úr því sem á undan kom. Við höfum styrkt grunnþjónustu bæjarins: – Sálfræðiþjónusta í skólum, – samningur við Bergið Headspace, – foreldrafærninámskeið, – félagsmiðstöðin Bólið opin allt árið, – endurbætur á skólalóðum og leiksvæðum eru allt dæmi um það. Við höfum samþætt upplýsingakerfi, aukið skilvirkni og ráðist í markvissa stafræna vegferð. Félagsstarf eldri borgara hefur verið stóreflt og félags- og heilbrigðisþjónusta samþætt. Þetta er raunveruleg þjónustuaukning. Þess vegna var athyglisvert að sjá grein Bryndísar Haraldsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins í Kraganum, þar sem hún reynir að gera lítið úr árangri kjörtímabilsins í Mosfellsbæ. Tvö atriði í hennar málflutningi kalla sérstaklega á viðbrögð að þessu sinni, útsvarið og Mosó‑módelið. Útsvarið Álagningarhlutfall útsvars á tekjur einstaklinga var á árinu 2023 hækkað í 14,74% sem var hámarksútsvar. Árið áður, undir stjórn sjálfstæðismanna, var útsvar 4 punktum undir hámarki. Áhrifin af þessari hækkun eru eftirfarandi. Einstaklingur með 1,6 milljónir í mánaðarlaun, grunnlaun þingmanna, hefði greitt 640 krónum minna á mánuði ef útsvarið hefði verið óbreytt. Þetta er „skattpíningin“ sem Sjálfstæðisflokkurinn talar um. Fyrir bæjarsjóð skiptir þessi hækkun útsvars hins vegar máli: 33 milljónir króna á árinu 2025. Sú fjárhæð myndi duga til að ráða 2–3 sérfræðinga inn í skóla- eða velferðarþjónustu. Ef það er áætlun sjálfstæðismanna að útsvar verði 4 punktum undir hámarki líkt og 2022, verði úrslit kosninganna á laugardag þeim hagfelld, væri fróðlegt að vita hvaða þjónusta yrði skorin niður til að mæta því. Kjarni málsins er þessi: Útsvarslækkun sem skilar eins og einum kaffibolla á mánuði til tekjuhárra einstaklinga kostar bæjarfélagið tugmilljónir sem annars nýtast í þjónustu við börn, fjölskyldur og eldri borgara. Mosó‑módelið Öll sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu stóðu frammi fyrir miklum áskorunum í rekstri leikskóla: manneklu, veikindum, styttingu vinnuviku og lengra sumarleyfi starfsfólks. Mosfellsbær valdi að bregðast við með Mosó‑módelinu. Módelið felur í sér: Skráningu eftir kl. 14 á föstudögum og allt að 10 skráningardaga á ári, enga refsingu í formi hærri gjalda fyrir foreldra sem þurfa að nýta þjónustuna og skrá börn sín, umbun í formi afsláttar af gjöldum fyrir þá foreldra sem geta sótt fyrr eða haft börnin heima á skráningardögum, leikskólagjöld sem eru með þeim lægstu á landinu, eða 33.669 krónur á mánuði fyrir 8 klst. vistun. Ný könnun sýnir að 83% starfsfólks telja breytingarnar hafa jákvæð áhrif á líðan barna, – 70% telja leikskólann eftirsóknarverðari vinnustað, – 50% foreldra upplifa meiri samveru fjölskyldunnar. Mjög gagnlegar ábendingar komu fram í könnununni m.a. um verklag í kringum skráningar og betri kynningu á möguleikum varðandi sveigjanlegan vistunartíma. Þær eru þegar komnar í úrvinnslu. Módelið er í stöðugri þróun, einmitt eins og fagleg stjórnsýsla á að vera. Gerum betur – líka í umræðunni Rekstur sveitarfélags krefst stöðugrar endurskoðunar og umbóta. Meirihluti Framsóknar, Viðreisnar og Samfylkingar í Mosfellsbæ hefur sýnt að hægt er að efla þjónustu, styrkja fagmennsku og halda góðum rekstri. Það væri reyndar æskilegt að umræðan sjálf færi í gegnum sömu gæðastjórnun – líka þegar hún er skrifuð til heimabæjarbrúks. Höfundur er bæjarfulltrúi Samfylkingar í Mosfellsbæ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar