Körfubolti

OKC sópaði Lakers og methálfleikur hjá Mitchell

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Chet Holmgren treður boltanum án þess að LeBron James eða Austin Reaves komi vörnum við.
Chet Holmgren treður boltanum án þess að LeBron James eða Austin Reaves komi vörnum við. getty/Luke Hales

Meistarar Oklahoma City Thunder eru komnir í úrslit Vesturdeildar NBA eftir að hafa sópað Los Angeles Lakers. Í Austurdeildinni jafnaði Cleveland Cavaliers metin gegn Detroit Pistons, þökk sé ótrúlegum seinni hálfleik hjá Donovan Mitchell.

Shai Gilgeous-Alexander skoraði 35 stig fyrir OKC sem sigraði Lakers á útivelli, 110-115. Meistararnir unnu einvígið, 4-0, og hafa unnið alla átta leiki sína í úrslitakeppninni.

LeBron James skoraði 24 stig og tók tólf fráköst fyrir Lakers. Hann fékk tækifæri til að koma Lakers yfir undir lokin en skot hans geigaði. Austin Reaves var stigahæstur hjá Lakers með 27 stig og Rui Hachimura skoraði 25.

Ajay Mitchell var með 28 stig hjá OKC sem mætir annað hvort Minnesota Timberwolves eða San Antonio Spurs í úrslitum Vesturdeildarinnar. Staðan í einvígi þeirra er jöfn, 2-2.

Mitchell skoraði 43 stig þegar Cleveland bar sigurorð af Detroit, 112-103. Öll stig hans nema fjögur komu í seinni hálfleik og Mitchell jafnaði met Erics Sleepy Floyd yfir flest stig í hálfleik í úrslitakeppni NBA.

Cleveland náði undirtökunum með 24-0 áhlaupi sitt hvoru megin við hálfleikinn. Mitchell skoraði fimmtán af þessum 24 stigum. Hann hitti úr þrettán af 26 skotum sínum og nýtti þrettán af fimmtán vítum sem hann tók.

James Harden skoraði 24 stig og gaf ellefu stoðsendingar fyrir Cleveland og Evan Mobley var með sautján stig, átta fráköst og fimm stoðsendingar.

Caris LaVert skoraði 24 stig fyrir Detroit og Cade Cunningham nítján.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×