Ísland og jarðhitinn á heimsvísu Alexander Richter skrifar 12. maí 2026 16:41 Þegar alþjóðlega jarðhitaráðstefnan, World Geothermal Congress, verður haldin í Calgary í Kanada í júní næstkomandi verður þátttaka frá Íslandi óvenju mikil. Um eitt hundrað fulltrúar frá öllum hornum íslenska jarðhitageirans taka þátt í ráðstefnunni undir merkjum Grænvangs (Green by Iceland). Ráðstefnan er sú stærsta á sínu sviði og fer fram á þriggja ára fresti. Það er auðvelt fyrir okkur að líta á jarðhitann sem sjálfsagðan hluta af daglegu lífi. Heitt vatn í húsum, sundlaugar víða um land og raforka sem margir horfa til með aðdáun. Á alþjóðavettvangi er staðan þó önnur. Þar er jarðhiti enn sérhæfð auðlind sem mörg lönd eru rétt að byrja að nýta. Þróunin síðustu tvo áratugi er athyglisverð. Ég kom inn í jarðhitageirann fyrir um tuttugu árum, í gegnum bankastarfsemi á Íslandi, á tíma þegar alþjóðlegt starf íslenskra fyrirtækja var þegar hafið en tók verulega við sér um það leyti. Síðan þá hafa Íslendingar komið að verkefnum víða um heim, meðal annars í Kína, Austur-Afríku og á Karabíska svæðinu. Að baki þessari sterku stöðu Íslands býr ekki aðeins aðgangur að jarðhita heldur líka áratugalangt frumkvöðlastarf og nýsköpun á sviðinu. Íslensk fyrirtæki og sérfræðingar hafa þróað lausnir í borunum, verkfræði, rekstri og fjármögnun sem eru eftirsóttar víða um heim. Þessi þekking er orðin að útflutningsvöru sem byggir á reynslu, samvinnu og fagmennsku. Hér má einnig nefna frumkvöðlaverkefni á borð við IDDP og KMT, þar sem unnið hefur verið að nýtingu ofurheits jarðhita og þrýst á mörk þess sem talið var mögulegt. Eftirspurn eftir jarðhitaþekkingu fer vaxandi, samhliða orkuskiptum og aukinni áherslu á stöðuga endurnýjanlega orku. Sú staða sem Ísland hefur byggt upp er þó ekki sjálfgefin. Hún krefst áframhaldandi þátttöku á alþjóðavettvangi og vilja til að sækja tækifæri utan landssteinanna, jafnvel þegar hægir á uppbyggingu hér heima. Það er því afar ánægjulegt að sjá Ísland mæta svo sterkt til leiks í Calgary í sumar. Sameiginlegt átak undir merkjum Grænvangs sýnir vel hvað er hægt að gera þegar ólíkir aðilar vinna saman. Um leið er það áminning um það hlutverk sem Ísland gegnir áfram á alþjóðavettvangi. Ég hlakka til að taka þátt í þessum hópi í Calgary og hitta þar bæði íslenska og erlenda samstarfsfélaga og fagna því starfi sem hefur verið byggt upp hér á landi í jarðhita, bæði heima og erlendis. Höfundur er stofnandi ThinkGeoEnergy.com, fyrrverandi forseti Alþjóða jarðhitasambandsins (IGA) og situr í stjórn Rafals ehf. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jarðhiti Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson Skoðun Skoðun Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar