Úkraínskir drónaflugmenn „rústuðu“ Svíum Samúel Karl Ólason skrifar 13. maí 2026 14:47 Úkraínskur hermaður að fljúga dróna á Gotlandi. AP/Emma Burrows Svíar og önnur aðildarríki Atlantshafsbandalagsins tóku nýverið á móti úkraínskum drónaflugmönnum á æfingu á Gotlandi. Þar áttu úkraínsku hermennirnir að kynna Svía og aðra fyrir drónahernaði. Úkraínumennirnir stóðu sig svo vel að Svíarnir stöðvuðu æfinguna þrisvar sinnum til að hugsa sinn gang og reyna að breyta aðferðum sínum.
Æfingunni hefur verið tekið sem alvarlegri viðvörun til herja NATO um að taka upp notkun sjálfsprengidróna og þróa leiðir til að verjast þeim. Blaðamenn AP fréttaveitunnar fengu að fylgjast með æfingunni en hún snerist um það að ótilgreint ríki væri að safna hermönnum nærri landamærum NATO í austri. Gotland stóð frammi fyrir rafmagnsleysi og matvælaskorti vegna skemmdarverka og þurftu sveitir NATO að verja eyjuna gegn Úkraínumönnum, sem léku hina ótilgreindu þjóð. AP fréttaveitan segir úkraínsku hermennina hafa rústað sænsku hermönnunum á æfingunni. Einn 24 ára úkraínskur hermaður sagði Svíana hafa stöðvað æfinguna þrisvar sinnum til að reyna að breyta til að sjá hvort þeim gæti gengið betur gegn drónum Úkraínumanna. Hermaðurinn sagði að ef æfingin hefði verið raunveruleg hefðu allir Svíarnir fallið. Sænskir hermenn á æfingunni. Svíar stöðvuðu hana þrisvar sinnum til að reyna að breyta aðferðum sínum og standa í hárinu á úkraínsku hermönnunum.AP/Emma Burrows Annar úkraínskur hermaður sagði sænsku hermennina góða en þeir þyrftu að girða sig í brók varðandi dróna. Stjórnendur þeirra þyrftu að skilja drónahernað betur og aðlagast honum. Það væri erfitt fyrir fólk að skilja þennan hernað án þess að hafa tekið beinan þátt í honum. AP hefur eftir Michael Claesson, æðsta herforingja Svíþjóðar, að Vesturlönd þurfi að læra hratt hvernig hægt sé að beita sjálfsprengidrónum og sömuleiðis verjast þeim. Besta leiðin til þess væri að hlusta á Úkraínumenn. Hér að neðan má sjá samansafn af myndefni frá Gotlandi og þar á meðal eru nokkur stutt viðtöl við menn sem tóku þátt í æfingunni. Curtis King, bandarískur herforingi sem tók þátt í æfingunni, sagði að úkraínsku hermennirnir hefðu sýnt hermönnum NATO að þeir þyrftu að leggja áherslu á aðferðir til að komast hjá því að vera séðir af drónum og ef það klikkar, hvernig þeir geti varist þeim. Þá sé einnig ljóst að Vesturlönd þurfi að auka getu sína til að finna langdræga sjálfsprengidróna úr fjarska. Slíka getu þurfi sérstaklega í austurhluta Evrópu. Gotland varð fyrir valinu fyrir æfinguna því eyjan er gífurlega mikilvæg þegar kemur að stjórn Eystrasaltshafs og er staðsett ekki langt frá Kaliningrad. Eystrasaltið má kalla einskonar fjárhagslega líflínu Rússa þar sem skuggaflotinn svokallaði flytur olíu og jarðgas þaðan sem er selt til að fjármagna stríðsrekstur Rússa í Úkraínu. Claesson segir það raunhæfa sviðsmynd að Vladimír Pútín, forseti Rússlands, gæti í framtíðinni látið reyna á samheldni innan NATO með árásum eða fjölþátta ógnum á Gotlandi.
Svíþjóð Úkraína NATO Innrás Rússa í Úkraínu Hernaður Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Sjá meira