Segir fimm milljóna punda gjöf „verðlaun“ fyrir Brexit Hólmfríður Gísladóttir skrifar 15. maí 2026 08:27 Reform er á blússandi siglingu og ekki útilokað að Farage tryggi sér forsætisráðherrastólinn í næstu kosningum. Getty/Dan Kitwood Nigel Farage, formaður breska stjórnmálaflokksins Reform, segir nú að fimm milljón punda „gjöf“ sem hann fékk frá auðmanninum Christopher Harborne, hafi verið „verðlaun“ fyrir baráttu sína fyrir Brexit.
Farage sætir rannsókn vegna gjafarinnar, sem hann hafði áður sagt að Harborne hefði gefið honum til að fjármagna öryggisgæslu sína fyrir lífstíð. Gagnrýnendur Farage segja að hann hefði átt að upplýsa þingið um gjöfina en sjálfur segir Farage hann ekki hafa þurft að gera það þar sem hann fékk fjármunina áður en hann bauð sig fram árið 2024. Tímasetning gjafarinnar hefur raunar vakið nokkra athygli en fyrir þingkosningarnar 2024 sagðist Farage ekki hafa í hyggju að bjóða sig fram. Hann skipti hins vegar um skoðun um mánuði áður en kosningarnar fóru fram, skömmu eftir að hann þáði peningagjöfina frá Harborne. Þá hefur einnig komið í ljós að eftir að hann fékk fjármunina í hendur fjárfesti hann í fasteign fyrir 1,4 milljónir punda. Harborne, sem auðgaðist á viðskiptum með rafmynt og er búsettur í Taílandi, sagði í samtali við Telegraph í síðasta mánuði að hann ætlaðist ekki til neins af Farage. Hann vildi aðeins tryggja öryggi hans. Hann hefði dáðst af staðfestu Farage og baráttu hans fyrir útgöngu Breta úr Evrópusambandinu. Farage sagði í kjölfarið í samtali við The Sun að gjöfinni hefðu ekki fylgt neinir skilmálar eða kvaðir; um væri að ræða verðlaun fyrir baráttu hans fyrir Brexit. Talsmenn Reform segja í yfirlýsingu að þessi nýja útskýring á gjöfinni sé ekki í mótsögn við fyrri útskýringar Farage þess efnis að gjöfinni hafi verið ætlað að standa straum af kostnaði við öryggisgæslu. „Bæði getur verið satt á sama tíma,“ segir í yfirlýsingunni. Um væri að ræða verðlaun vegna þeirrar hættu sem hann hefði búið við í mörg ár og byggi enn við.
Bretland Brexit Mest lesið „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Innlent Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Innlent Fleiri fréttir Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Sjá meira