Dagur óbærilegrar spennu Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar 16. maí 2026 06:03 Í dag hafa kjósendur síðasta orðið um hver sitja við stjórnvölin í sveitarstjórnum landsins næstu fjögur árin. Eins og gengur verður þetta dagur sigra og ósigra og á eftir að verða mörgum minnisstæður. Ríflega þrjú þúsund frambjóðendur á landinu öllu, þar af rúmlega fimm hundruð í Reykjavík, hafa ásamt miklum fjölda fólks barist fyrir sínum málum undanfarnar vikur. Spenna og jafnvel kvíði frambjóðenda í fremstu röðum nær hámarki þegar úrslitastundin nálgast. Mínúturnar þegar tíminn stendur kyrr Ég man hvernig tíminn stóð kyrr síðustu mínúturnar fyrir birtingu fyrstu talna, þegar ég leiddi Flokk fólksins í borgarstjórnarkosningum 2018 og 2022. Okkur oddvitunum var stillt upp í myndveri RÚV þar sem myndavélar biðu þess að grípa svipbrigði okkar þegar fyrstu tölurnar birtust. Kannanirnar sem ýmist sýndu mig inni eða úti reyndu á taugakerfið. Engin leið var að vita hvernig kvöldinu lyki. Spennan var slík á lokasekúndunum að mér fannst ég hreinlega yfirgefa líkamann, sem er þekkt viðbragð taugakerfisins við gríðarlegu álagi. Þarna var ég en samt ekki, en að lokum tók við léttir og gleði. Kæru frambjóðendur Ég ber ómælda virðingu fyrir þeim sem skella sér í framboð. Það krefst dugnaðar, kjarks, áræðni og þolinmæði. Framboð snýst ekki bara um átök milli framboða. Það eflir samhug og samkennd og svalar þörf okkar til að bæta samfélag okkar öllum til heilla. Þess vegna er hvert framboð, hvernig sem það endar, stórkostlegt framlag til samfélagsins og lýðræðisins. Ég er auðvitað ekki hlutlaus þegar kemur að úrslitum dagsins í dag en hugur minn er hjá öllum frambjóðendum. Hver sem niðurstaðan verður hefur barátta ykkar aldrei verið til einskis. Að lokum vil skora ég á alla að nýta kosningarétt sinn. Nú er valdið í ykkar höndum. Höfundur er þingkona Flokks fólksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Mest lesið Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Sjá meira
Í dag hafa kjósendur síðasta orðið um hver sitja við stjórnvölin í sveitarstjórnum landsins næstu fjögur árin. Eins og gengur verður þetta dagur sigra og ósigra og á eftir að verða mörgum minnisstæður. Ríflega þrjú þúsund frambjóðendur á landinu öllu, þar af rúmlega fimm hundruð í Reykjavík, hafa ásamt miklum fjölda fólks barist fyrir sínum málum undanfarnar vikur. Spenna og jafnvel kvíði frambjóðenda í fremstu röðum nær hámarki þegar úrslitastundin nálgast. Mínúturnar þegar tíminn stendur kyrr Ég man hvernig tíminn stóð kyrr síðustu mínúturnar fyrir birtingu fyrstu talna, þegar ég leiddi Flokk fólksins í borgarstjórnarkosningum 2018 og 2022. Okkur oddvitunum var stillt upp í myndveri RÚV þar sem myndavélar biðu þess að grípa svipbrigði okkar þegar fyrstu tölurnar birtust. Kannanirnar sem ýmist sýndu mig inni eða úti reyndu á taugakerfið. Engin leið var að vita hvernig kvöldinu lyki. Spennan var slík á lokasekúndunum að mér fannst ég hreinlega yfirgefa líkamann, sem er þekkt viðbragð taugakerfisins við gríðarlegu álagi. Þarna var ég en samt ekki, en að lokum tók við léttir og gleði. Kæru frambjóðendur Ég ber ómælda virðingu fyrir þeim sem skella sér í framboð. Það krefst dugnaðar, kjarks, áræðni og þolinmæði. Framboð snýst ekki bara um átök milli framboða. Það eflir samhug og samkennd og svalar þörf okkar til að bæta samfélag okkar öllum til heilla. Þess vegna er hvert framboð, hvernig sem það endar, stórkostlegt framlag til samfélagsins og lýðræðisins. Ég er auðvitað ekki hlutlaus þegar kemur að úrslitum dagsins í dag en hugur minn er hjá öllum frambjóðendum. Hver sem niðurstaðan verður hefur barátta ykkar aldrei verið til einskis. Að lokum vil skora ég á alla að nýta kosningarétt sinn. Nú er valdið í ykkar höndum. Höfundur er þingkona Flokks fólksins.
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar